Morgunblaðið - 15.12.2015, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 15.12.2015, Qupperneq 31
Þetta ljóð tileinka ég þér og kalla Sjómanninn. Skrýtið að afi sé ekki innan kalla, sjómaðurinn sem sigldi um höfin blá. Minning þín lifir í hjörtum okkar allra, og hverfur okkur ekki frá. Erla Ragnarsdóttir. Í dag kveðjum við þig, elsku afi. Mikið rosalega er sárt og erf- itt að kveðja þig, elsku afi. Eftir sitja góðar minningar sem við munum varðveita. Bestu stund- irnar áttum við systkinin hjá ykk- ur ömmu á Arnarstapa. Á Stap- anum var alltaf best að vera, fyrir okkur var þetta algjör paradís. Á daginn var leikið og seinni- partinn var arkað niður á bryggju til að taka á móti þér koma í land á Draupni, trillunni þinni. Alltaf svaraðir þú okkur með bros á vör þegar við spurð- um þig hvernig veiði dagsins hefði gengið, sama hvernig hafði gengið. Þegar við systkinin lékum okkur meðan veðurfréttirnar voru í gangi var ekki sussað á okkur, ó nei það gerðir þú ekki. Kannski hækkað örlítið í sjón- varpinu, þó svo að veðurfréttir skipti miklu máli þegar hugað er að sjóferð næsta dags. Stundum, eftir mikið suð í ömmu, fengum við að kalla í þig út á sjó í gegnum talstöðina og alltaf svaraðir þú okkur, sama hversu litlar og ómerkilegar spurningar komu til þín og þó að allir hinir sjómenn- irnir væru að hlusta. Þér var sama. Börnin þín skiptu þig svo miklu máli og það vita allir sem þig þekktu. Þegar þið amma fluttuð í bæ- inn vorum við svo heppin að fá ykkur í hverfið okkar. Að stoppa hjá ykkur í Hraunbænum eftir skóla þar sem alltaf var boðið upp á góðgæti eins og pönnukökur, kleinuhringi og kleinur var svo gott. Einnig var alltaf gott að leggjast í sófann og loka augun- um. Í Hraunbænum var alltaf vel tekið á móti okkur og alltaf fórum við út södd og sæl. Góðmennska þín var svo mikil og erfitt að lýsa með orðum hversu góður maður og góður afi þú varst. Þú heilsaðir alltaf með þínu stóra faðmlagi og tveimur kossum á kinnina. Alltaf sýndir þú mikinn áhuga á því sem við systkinin og frændsystkinin tók- um okkur fyrir hendur. Það skipti ekki máli hversu lítið eða stórt, hvort sem það var skóli, vinna eða bílakaup, alltaf hlustað- ir þú af áhuga. Það var alltaf gaman að spjalla við þig um lífið og tilveruna. Góðmennska þín og dugnaður kenndi okkur öllum svo mikið. Þú varst svo duglegur að sækja sjó- inn og veiða fisk. Enda vildum við systkinin ekki láta fisk inn fyrir okkar varir nema hann væri veiddur af þér. Elsku afi, mikið eigum við eftir að sakna þín, sakna þíns stóra faðmlags og að fá tvo kossa á kinn- ina. Við erum ákaflega þakklát fyrir allt sem þú gerðir fyrir okk- ur og kenndir okkur. Þú átt stóran þátt í því hver við erum í dag. Elsku afi okkar, við vitum að þú ert kominn á betri stað núna þar sem vel er tekið á móti þér og boðið upp á pönnukökur. Þar er eflaust alltaf gott í sjóinn og Draupnir bíður eftir að þið leggið af stað í næstu sjóferð. Takk fyrir allt, elsku afi, við elskum þig og við vitum að þú vakir yfir okkur. Minning þín mun lifa með okkur. Kristín Erla, Heiðar Ingi, Andri Þór og Dagný Rut. MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2015 kökur undir gasloga. Hann bak- aði bestu flatkökur í heimi og það var dásamlegt að fylgjast með honum við þá iðju sína. Hann fór mikinn í brekkum fjallanna á Dalvík í berjatínslu. Tíndi tugi lítra og lét ekki holu- geitungana sem bitu hann grimmt eða miklar rigningar stöðva sig. Hann smitaði mann af áhuga sínum á þessu frábæra áhugamáli og við fórum í berja- ferðir norður á hverju hausti. Krafturinn í Matta var svo mikill að ekki var nóg að tína allan dag- inn heldur voru öll ber hreinsuð að kvöldi og einnig ber okkar sem komum að sunnan til að tína ber. Matti lét auðvitað góð ráð og upp- skriftir fylgja með. Matti talaði sitt sérstaka mál. Grímseyingur og skipstjóri sem hafði marga fjöruna sopið og kall- aði ekki allt ömmu sína. Við heyrðum hann tala um duglegan, gamlan mann sem „snarbratt helvíti“ og ófáir voru þeir veður- frasarnir: „bullandi logn og norð- an andskotans kuldasteyta“. Matti gerði ekki greinarmun á fólki og var ljúfur við alla menn og dýr. Hann kom fram við okkur eins og börnin sín og kærleikur- inn á milli okkar var mikill. Hann hafði alltaf áhuga á því sem við vorum að gera og starfa. Matti tók ávallt á móti okkur með bros á vör og okkur þótti einstaklega vænt um hann. Þó slokknað hafi á lífsljósi Matta, sama dag og slökkt er á friðarljósinu í Viðey, þá lifir hann ljóslifandi í huga okkar allra. Blásið, blásið vindar, í björtu seglin hans, svo fleyið beri hann fljótar til lands. Syngið við hann bylgjur, og þú, blástjarna, skín. Vísið honum, vísið honum veginn til mín. Svífið, hvítu álftir, og sjáið, hvar hann er. Komið svo til baka og hvíslið því að mér. Berið honum ástarkveðju Unu litlu frá. Kyssið þið hann, sólargeislar, kinnina á. (Davíð Stefánsson) Úlfhildur, Aldís og Urður, Ágústa, Hörður, Hörn og Aaron, Óli, Ólöf og Gabríel. Kynni okkar Matta hófust árið 1984 þegar ég starfaði sem fram- kvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar. Þá hafði ég frétt af fyrirtæki í Garðabæ sem var við það að fara í gjaldþrot en hafði þróað mjög áhugaverðar vörur fyrir íslenskan sjávarútveg. Stjórn Iðnþróunarfélagsins sam- þykkti að kaupa tæki og þá þróunarvinnu sem til var hjá fé- laginu í Garðabæ og fól mér að reyna fá til liðs við Iðnþróunar- félagið fjárfesta á Dalvík. Það var þannig sem Sæplast á Dalvík varð til og einn aðal-kjölfestufjár- festirinn varð Bliki, fyrirtæki þeirra bræðra, Matta og Ottó sf.. Matti varð stjórnarformaður Sæ- plasts. Það þarf ekki að tíunda hversu mikil lyftistöng þetta fé- lag hefur orðið fyrir Dalvík og þar á Matti ekki lítinn hlut. Sæ- plasti var alls staðar í gömlu ríkisbönkunum neitað um banka- viðskipti fyrstu árin. Bankarnir sögðu einum rómi að þeir hefðu ekki nokkra trú á þessu dæmi. En Matti og hans félagar á Dal- vík höfðu óbilandi trú á að þetta gæti gengið upp. Og Matti hafði traust hjá Sparisjóði Svarfdæla. Það sem bókstaflega bjargaði Sæplasti fyrstu árin var að Spari- sjóðurinn þorði að kaupa víxla af Sæplasti sem Matti skrifaði uppá. Það sem mér finnst að hafi einkennt Matta er sá góði eigin- leiki að fylgja alltaf eftir sann- færingu sinni og að berjast fyrir því sem þú hefur trú á. Það var ekkert sjálfgefið að leggja fram áhættufé í eitthvert iðnfyrirtæki sem var komið á hliðina í öðru sveitarfélagi. Matti skynjaði hins vegar hvaða gífurlega þýðingu þetta gæti haft fyrir hans byggðarlag ef dæmið gengi upp. Hann þorði að taka áhættu. Og það gekk heldur betur upp. Þetta iðnfyrirtæki á Dalvík er eitt af ör- fáum fyrirtækjum á Íslandi sem hefur í þrjá áratugi nánast alltaf verið rekið með hagnaði. Sæplast varð grunnurinn að öðru stór- veldi í plastiðnaði, Promens. Ég heyrði um daginn að þetta ár, sem nú er senn á enda, yrði eitt allra besta ár í sögu Sæplasts/ Promens á Dalvík. Matti hafði framtíðarsýn og sá að það var góður grunnur að þróa nýjar vörur í tengslum við sterkan sjávarútveg í heimabyggðinni. Hann sá að félagið mundi geta laðað að sér öfluga liðsmenn. Frábært starfsfólk, undir stjórn- arformennsku Matta, varð lykill- inn að því að þessi tilraun til að auka fjölbreytni í atvinnulífinu á Dalvík tókst með jafn frábærum hætti og raun ber vitni. Síðustu árin hef ég átt því láni að fagna að kynnast Leu Gestsdóttur Gayet, sonardóttur Matta, þar sem hún hefur starfað hér við sendiráðið í París. Mér finnst ég hafa færst nær Matta á nýjan leik í gegnum þau kynni en hún hefur erft marga af frábærum mannkostum afa síns. Ég votta aðstandendum innilega samúð mína við fráfall mikils höfðingja. Finnbogi Jónsson. Þriðjudagurinn 1. maí 1984 markaði tímamót í mínu lífi. Ég var á leið til Dalvíkur í fyrsta sinn á ævinni til fundar við stjórnar- formann Sæplasts að ræða við hann um hugsanlegt starf. Á móti mér á Akureyri tók Matthías Jakobsson, fyrrverandi skipstjóri og einn eigenda útgerðar og fisk- vinnslu Blika hf. Matthías var myndarlegur maður, ljós yfirlit- um með úfið hár og klæddur í gráa ullarpeysu og ljósar buxur. Í augunum mátti greina stríðnis- legt blik. Það var ekki hægt ann- að en að fá á honum traust og lað- ast að honum. Í Volvonum á leið út eftir fræddi hann mig um misjöfn veð- urskilyrði á Akureyri og Dalvík. „Ég get nú sagt þér það, vinur minn, að það getur verið arfavit- laust veður á Akureyri en rjóma- blíða á Dalvík.“ Hann sagði mér frá því að nokkrir Dalvíkingar hefðu keypt verksmiðju í Garða- bæ, vildu flytja hana til Dalvíkur til að skapa vinnu fyrir heima- menn og töldu að það væri hægt að græða á henni. Það varð úr að ég réðst til þeirra og um sumarið fékk ég að búa heima hjá Matt- híasi. „Þú ert nú ekkert of góður fyrir forsetarúmið,“ sagði hann og vísaði til þess að þáverandi forseti hafði gist hjá þeim á kosn- ingaferðalagi. Ég var alltaf vel- kominn og ætíð var hann tilbúinn að leggja gott til málanna. Matthías var hafsjór af fróð- leik og gat sagt endalausar sögur af sjómennsku sinni bæði hér við land og á síldinni í Norðursjón- um. Honum féll nánast aldrei verk úr hendi. Á kvöldin sat hann og hnýtti spyrður. Eitt árið byggði hann sumarbústað í inn- keyrslunni. Hann eldaði dýrindis mat. Skreiðarstappa Matta Jak er nánast landsþekkt fyrirbrigði. Svo súrsaði hann sviðalappir, þar til þær urðu svo mjúkar „að það mátti sneiða þær með ostaskera“. Hann var kröfuharður í eigin garð og annarra. Hann taldi gæði vörunnar skipta öllu fyrir afkomu fiskvinnslunnar og plastverk- smiðjunnar. Hann vildi stöðugt gera hlutina betur og nota bestu tækni til framleiðslunnar. Í fisk- vinnslunni varð saltfiskurinn að vera betri en hjá öðrum og skreiðin sömuleiðis. Matthías lét sér ekki bregða þótt ýmislegt dyndi yfir á upp- hafsárum Sæplasts. Það var ekki auðveldara þá að ná í fjármagn en nú. „Við vorum reknir út úr bankanum eins og barðir hundar,“ sagði hann eftir fund með bankastjórum eins aðal- banka landsins. Þegar Byggða- stofnun veitti lánsloforð upp á 1,5 milljónir króna þá var hann ásamt tveimur öðrum sóma- mönnum reiðubúinn að veðsetja íbúðarhúsið sitt. Allt fór það vel að lokum eins og í góðu ævintýri. Eðlilega lengdist á milli funda okkar eftir því sem árin liðu. Hann var orðinn veikur þegar ég heimsótti hann í sumar en hug- urinn var enn við sjóinn, afurðir hans og markaði. Hann stóð upp og leit í átt að verksmiðju Sæ- plasts og sagði eitthvað á þá leið að það mætti sjá að hann hefði átt þar leið um. Eins og ævinlega talaði hann líka um börnin og barnabörnin sem geta yljað sér um ókomin ár við minningar um frumkvöðul og athafnamann sem hvergi mátti vamm sitt vita. Ég votta þeim djúpa samúð. Ég verð forsjóninni ævinlega þakklátur að hafa kynnst öðling- num Matthíasi Jakobssyni. Pétur Reimarsson. Þegar við hugsum um Matt- hías þá sjáum við alltaf fyrir okk- ur mikið fallegt hár, góðleg augu og heyrum fallega djúpa rödd. Við munum líka eftir kraftmikl- um handaböndum og hörku-sam- ræðum. Við eigum bara góðar minning- ar af þessum ljúfum stundum sem við áttum saman á Öldugötunni, þangað var maður alltaf velkom- inn. Oft var saltkjöt og baunir í boði eða nokkrar vöfflur með miklum rjóma (afleiðingar rjómans sjást enn á okkur Sylvie í dag) og ber, humar frá Suðurland- inu, svo var góður kaffi- og kakó- ilmur þarna inni og stundum fékk maður sér smá koníak á kvöldin. Maður fór alltaf sáttur eftir nokkra daga heima hjá Matta og í töskunum okkar var alltaf mikið til að borða næstu vikurnar í Frakklandi. Frá frönskum aðdáendum, Marie-Paule og Sylvie. Sannkallaður höfðingi er fallinn frá. Þau ár sem við Sigurbjörg bjuggum á Dalvík kynntumst við miklum öðlingi, Matthíasi Jakobs- syni skipstjóra fæddum í Gríms- ey, og héldum alla tíð góðu sam- bandi við hann. Matthías byrjaði aðeins átta ára að sækja sjóinn frá Grímsey ásamt frænda sínum Willard Ólafssyni. Þeir dorguðu og fiskuðu vel þó að ekki væri allt- af beitu að hafa. Þetta sama ár tók frystihúsið til starfa í Grímsey og þar lögðu strákarnir upp aflann sem skipti einhverjum tonnum og efnuðust vel á þeirra tíma mæli- kvarða. Þeir félagar slægðu aflann og hreppstjórinn tók á móti aflanum þegar að landi var komið. Allur afli þeirra var þó ekki fiskur því eitt sinn drógu þeir mikinn planka að landi sem hefur líklega verið 2x6 að stærð og gátu selt hann og fengu fyrir það 35 krónur. Það voru fyrstu peningaseðlarnir sem Matthías man eftir að hafa unnið sér inn fyrir utan það sem fékkst fyrir aflann. Matthías var 11 ára þegar fjölskyldan flutti til Dalvíkur og þaðan fór hann á sjó á stærri bátum en kænunni þeirra Willards en var alltaf að stein- drepast úr sjóveiki, hvort sem það var gott eða slæmt veður, svo það kom margsinnis upp í hugann að hætta allri sjómennsku. En skyndilega hætti öll sjóveiki. Matthías var lengi á sjó en hann segir það hafa verið sína mestu gæfu að missa aldrei mann eða lenda í alvarlegum vanda þó að fyrir kæmi að hann lenti í vitlaus- um veðrum. Matthías segir að versta veður sem hann hafi lenti í hafi verið þegar verið var í sigl- ingu eitt sinn með afla til sölu á leið til Þýskalands á Björgúlfi. Hafið var slíkt norðan við Fær- eyjar að honum datt í hug stór fjöll en var ekki hræddur, hefur alltaf verið varkár þótt hann telji að svolítill ótti geti ekki skaðað. Þetta var í eina skiptið á ferlinum sem hann lét dæla olíu í sjóinn og það virkaði vel á ölduganginn. Það hefði verið alveg alveg ótrúlegt að sjá þegar brotin voru að ná bátn- um hvað úr mætti þeirra dró þeg- ar þau náðu olíuflekknum. Hér er einfaldlega lýst hlut- skipti gæfumanns á langri ævi. Nú er þessi maður horfinn yfir móðuna miklu, þessi maður sem hafði svo gaman af að segja frá og hrein unun var á að hlusta. Þeim stundum var vel varið sem rætt var við Matthías Jakobsson og þegið kaffi og meðlæti, hlustað á frásagnir hans eða skoðanir á mönnum og málefnum. Minning- in um þennan öðling mun lifa. Við Sigurbjörg sendum ætt- ingjum og vinum okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Geir A. Guðsteinsson. Árni föðurbróðir minn er allur. Það vekur minningar um síldarævintýrið á Siglufirði. Hann kom heim frá flugnámi í Ameríku og gaf mér fyrsta skíðasleðann, það var dýrðarljómi í kringum Árna í huga mínum upp frá því. Síldar- árin mín á Siglufirði var hús Árna og Helgu mitt annað heimili, þar var ég í hávegum hafður og hampað á alla lund. Árni og Vigfús faðir minn ráku umfangsmikla síldarsöltun á Siglufirði. Öll framkvæmd fyrir- tækisins, Íslenskur fiskur hf., var í höndum Árna sem hafði mikla skipulagshæfileika; nákvæmur og talnaglöggur og stóð fast á sínu þegar grunnprinsipp áttu í hlut. Ég var vart orðinn 12 ára þegar Árni skipaði mig síldar- ræsara, sem er mesta virðingar- staða sem mér hefur hlotnast um ævina. Ég fékk líka að hafa auga með Vigfúsi og Hjálmari, sonum Helgu og Árna, þegar þeir tóku sín fyrstu skref á bryggjunni. Árni mætti eldsnemma á planið og lagði línurnar um röð- ina á ræsun. Gjarnan var ræs- arinn látinn byrja úti í Bakka. Þegar söltun hófst fengu ræsar- Árni Jóhann Friðjónsson ✝ Árni JóhannFriðjónsson fæddist 25. ágúst 1927. Hann lést 3. desember 2015. Útför Árna fór fram 14. desember 2015. ar oft forgang á að keyra frá í stað þess að gefa salt á línuna og fá bros frá stúlk- unum þegar farið var upp undir pilsið og síldarmerki sett í stígvélið eða þröngan brjóst- vasa. Árni stóð fyrir mörgum nýjungum, hann lét reisa þak yfir söltunarplanið til að hlífa stúlkunum og vann að því að vinnufólk fengi fasta matar- og kaffitíma. Í síldarleysi dreif hann í því að sólþurrka saltfisk og setja síldarpasta í túbur. Allar skýrslur sem Árni vann voru gerðar af vandvirkni sem átti sér vart fordæmi. Árni var list- hneigður, málaði afbragðs mynd- ir og falleg söngrödd hans naut sín vel í Karlakórnum Vísi og í vikulokin þegar broddborgarar komu saman á skrifstofu stöðvar- innar. Á þessum árum snerist síldar- bransinn ekki síst um skipulags- reglur sem fjölluðu um hvenær mætti byrja að salta og kröfur kaupenda. Síldin gekk oft snemma inn á Grímseyjarsund. Þá skipti máli að salta hana sem ferskasta á Siglufirði áður en hún fór austur. Um þetta voru lát- lausar deilur og ólík túlkun á lög- um og reglum. Ég man að sænsk- ir síldarkaupendur lögðust einatt á sveif með Árna ef túlka þurfti vafaatriði. Eitt sinn gekk það svo langt að Árni var settur í gæslu- varðhald á grundvelli einokunar- laga fyrir að hafa farið yfir strikið og neitað að greiða sekt. Kallsað var um að málið væri hliðstætt máli Hólmfasts á Brunnastöðum á Vatnsleysuströnd sem 1698 seldi fisk í Keflavík, en átti að selja í Hafnarfirði en verslunin þar vildi raunar ekki taka. Eftir nokkurra stunda varðhald benti lögmaður Árna, Sveinn Snorra- son, ráðherra á að nokkuð langt væri seilst um hurð til lokunnar að setja mann í steininn fyrir það eitt að framleiða mat sem svo kom í ljós að ekki fékkst af- greiddur annars staðar það árið. Var Árna þá sleppt. Það var sárt fyrr á þessu ári að kveðja Vigfús Árnason sem hafði erft talna- og skipulagshæfileika föður síns og var lengi ráðgjafi fjölskyldu minnar og einstakur vinur. Okkur finnst afar mikils misst og draumurinn um að síldin komi aftur enn óljósari. Afkom- endum og fjölskyldum bræðr- anna sendi ég innilegar samúðar- kveðjur. Orri Vigfússon. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Vald. Briem) Ólöf G. Björnsdóttir. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn- ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.