Morgunblaðið - 15.12.2015, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 15.12.2015, Qupperneq 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2015 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Sestu nú niður og gerðu áætlun um að gera draum þinn að veruleika. Sumar skoðanir þínar ættirðu að geyma fyrir nokkra útvalda sem skilja húmorinn þinn. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú finnur til samkenndar með öðrum og vilt leggja þitt af mörkum. Taktu það til þín og sjáðu hvað allt verður miklu auðveldara en ef þú gerir allt með hangandi hendi. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Hafðu auga með öllum smá- atriðum, hvort sem þér finnst þau skipta ein- hverju máli eða ekki. Reyndu að standa meira á eiginn fótum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Reyndu að rífa þig upp úr gamla farinu þótt ekki sé nema að gera hlutina í annarri röð en í gær. En láttu þessa viku samt vera vikuna þar sem allt verður fullkomið. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Notaðu daginn í verslun og viðskipti. Ef til vill eru fjármunir ekki kjarni málsins heldur hver geti knúið sitt fram. Annars verður það áfram utan seilingar. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er jafnsjálfsagt að næra tilfinning- arnar og skrokkinn. Taktu honum fagnandi því þú getur ábyggilega launað í sömu mynt fyrr eða síðar. Notaðu kraftinn til að efla sam- starfið. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú ætlast til að þú sért alveg brilljant og þar af leiðandi gera aðrir það líka. En kannski er hún enn að velta fyrir sér hvar peningarnir eru. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Vinir og félagar eru öruggir, ágengir og oflætislegir í dag. Ef þú lætur hana ekki stíga þér til höfuðs halda viðskiptin áfram að blómstra. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Hver er ríkur? Það er sá sem nýt- ur þess sem hann á. Fallegasta stund dagsins verður þegar þú uppgötvar eitthvað alveg nýtt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Tilfinningasemi gerir vart við sig í dag og annað fólk á gott með að hafa áhrif á þig. En það er vandmeðfarið sem annað og má ekki misnota. Gættu þess þó að ganga ekki of langt í dag. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er aldrei hægt að gera svo öll- um líki né segja það sem allir samþykkja. Tal- aðu hreint út og jákvæð viðbrögð hjálpa þér. Byggðu þig frekar upp fyrir framtíðina. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er ekki staða þín heldur þol- inmæði og þrautseigja sem segja til um hversu flott persóna þú ert. Skemmtileg orðaskipti á Leirn-um byrjuðu með því, að sr. Skírnir Garðarsson rifjaði upp fyr- irspurn sína um nafnorð sem myndi dekka það sem lýsingarorðið „kvenglöggur“ eða „manglöggur“ þýðir. (Maður þekkir ekki aftur konu sem maður hefur hitt, en ætti að þekkja.) Sigmundur Benediktsson sagði að orðið kvenskýr væri fagurt ný- yrði, sem færi vel í málinu: Kalli var kvenskýr en vildi kynna sér hjónabands gildi, en hopaði frá því hann óðar sá skandal, sem alveg hann skildi. Helgi Zimsen kvað margt er skrafað út frá beiðni sr. Skírnis, – sagði best að leggja eitthvað van- hugsað í púkkið: „Þótt orðið kven- skýr falli ljúflega að sinni býður það upp á útúrsnúninga ófrómra eins og orðið kýrskýr, þ.e. skýr eins og belja, sum sagt baulandi bjálfi (þótt kýrnar viti vissulega sínu viti). Við skulum ekki bjóða hættunni heim. Auk þess er þetta ekki nafn- orð en eftir slíku var leitað af sr. Skírni Rökréttasta nafnorðið fyrir kvenglöggur eða manglöggur væri held ég kvengleggni eða man- gleggni, enda gleggni nafnorðið fyrir glöggur. En í þeim er út af fyrir sig engin hátimbruð fag- urfræði fólgin. Kvenþekkjari hljómar nokkuð vel en gæti leitt menn út í ógöngur í vísnagerð. T.d. væri freistandi að yrkja: Ari var kunnur kvenþekkjari, – konunum virtist hann þekkari samt var hann bölvaður blekkjari barnsmæðrum veitti oft skrekk Ari. Þetta hljómar þokkalega en er heldur vafasamt upp á stuðlasetn- ingu, sbr. fyrstu línu. Betur færi: Þórður var ætíð kvenþekkjari, þjóðkunnur meyjanna svekkjari Sálarlaus bölvaður blekkjari barnsmæðra ófétis hrekkjari. Kvenrýnir var annað orð sem upp á var stungið: Kynlegur margur er kvenrýnir kjólana sér en á spen’ rýnir. Píuna á sem er pen rýnir púðurs- þó -drósa á lén rýnir. Þetta er skemmtilegt orð, en svona og svona hvað má kreista út úr því í vísu að vísu, ef nota á það sem rímorð. Kvengleggni er skikk- anlegt þó þríliðað sé og ekki þessi stúfur á undan (kvenþekkjari) sem leitt getur menn villur vega: Kvengleggni þekkist af kalli, kotroskinn oft er á skralli. Bústýrur dregur af balli, besefinn held ég þá tralli. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Kvengleggni eða mangleggni Í klípu „ÉG KOM MEÐ KAFFI FYRIR ÞIG. ÞETTA GÆTI TEKIÐ DÁGÓÐA STUND.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „OG EITT ENN! ÉG ER AÐ VERÐA HUNDLEIÐ Á ÞVÍ HVAÐ ÞÚ ERT VIÐKUNNANLEGUR ÖLLUM STUNDUM.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að brenna kaloríun- um saman. ORFEA FRÆNKA MÍN SAGÐI ALLTAF: „JÓLIN KOMA BARA EINU SINNI Á ÁRI.“ SVO MYNDI HÚN SEGJA: „ALDREI FARA UNDIR MISTILTEIN MEÐ KJÚKLINGI SEM ER AÐ FELLA FJAÐRIR.“ SÍÐAN MYNDI HÚN SPILA Á ENNIÐ Á SÉR MEÐ SKEIÐUM ORFEU FRÆNKU VANTAÐI NOKKRAR RÚSÍNUR Í JÓLAKÖKUNA ÞETTA HEFUR VERIÐ ERFITT ÁR FYRIR BUDDUNA, ÞANNIG AÐ ÉG ER HRÆDD UM AÐ ÞIÐ MUNIÐ EKKI FÁ ALLAR GJAFIRNAR Á ÓSKALISTANUM YKKAR… ER ÞAÐ Í LAGI? AÐ SJÁLFSÖGÐU, MAMMA… VIÐ SKILJUM! Víkverji er grjótharður rokkari.Það er tengdasonur hans líka og fyrir skemmstu vitjuðu þeir í sam- einingu leiðis Jims Morrisons í Père Lachaise-kirkjugarðinum í París. Víkverji hafði komið þar áður en tengdasonurinn ekki og komst þarna aldeilis í snertingu við rokk- söguna. Leiðið lætur svo sem ekki mikið yfir sér en búið er að girða það af vegna ágangs aðdáenda söngvarans dáða úr The Doors. Gríðarlegur fjöldi heimsækir Morrison á ári hverju enda þótt 44 ár séu liðin frá andláti hans. x x x Morrison heyrir til 27-klúbbnumgóðkunna en aðild að honum eiga tónlistarmenn sem látist hafa 27 ára að aldri, svo sem Jimi Hend- rix, Janis Joplin og Brian Jones. Talið barst einmitt að þessum ágæta klúbbi þarna í kirkjugarð- inum og tengdasonurinn lét þess getið í því sambandi að árið 1994 hefði verið afskaplega vont fyrir tón- listina. Nú, jæja, sagði Víkverji. „Já,“ sagði tengdasonurinn. „Við misstum Kurt Cobain og fengum Justin Bieber í staðinn.“ Einmitt það. x x x Père Lachaise er stórmerkilegurkirkjugarður, ríflega tvö hundr- uð ára gamall og heilir 44 hektarar að stærð. Hann er stærsti kirkju- garðurinn í gömlu borginni en ennþá stærri garða mun vera að finna í út- hverfum Parísar. Íburðurinn er víða mikill og sumar grafir minna meira á íbúðarhús en leiði. Grafhýsi heilu fjölskyldnanna líkjast líka á köflum meira raðhúsum. Margt stórmenna hvílir í garð- inum og Morrison fyrir vikið ekki í amalegum félagsskap. Má þar nefna skáldin Oscar Wilde, Marcel Proust og Molière, tónskáldin Georges Biz- et og Gioachino Rossini og söngkon- una Edith Piaf. Molière lést raunar löngu fyrr, 1673, en jarðneskar leifar hans voru fluttar í Père Lachaise fyrsta árið sem garðurinn var opinn sem liður í markaðsátaki eigenda hans. víkverji@mbl.is Víkverji Drottinn er nálægur þeim sem hafa sundurmarið hjarta, hann hjálpar þeim sem hafa sundurkraminn anda. Sálm. 34:19 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.