Morgunblaðið - 15.12.2015, Síða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 2015
Good Dinosaur 1 3
Hunger Games Mockingjay part 2 2 4
Love the Coopers Ný Ný
In The Heart Of The Sea 5 2
Krampus 6 2
The Night Before 3 3
Spectre 4 6
The Bridge of Spies 7 3
The 33 Ný Ný
Solace 2015 8 4
Bíólistinn 11.–13. desember 2015
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Teiknimyndin Góða risaeðlan skil-
aði mestum miðasölutekjum yfir
helgina af þeim myndum sem sýnd-
ar eru í bíóhúsum landsins, líkt og
helgina á undan, og önnur tekju-
hæsta myndin var The Hunger
Games: Mockingjay – Part 2, líkt og
síðustu helgi. Rómantíska gaman-
myndin Love the Coopers er sú
þriðja tekjuhæsta, jólamynd sem
frumsýnd var fyrir helgi, og jóla-
hryllingsmyndin Krampus hækkar
um eitt sæti á listanum milli vikna,
fer úr sjötta sæti í það fimmta. Í
henni segir af jóladjöfli sem herjar
á sundurlynda fjölskyldu.
Bíóaðsókn helgarinnar
Risaeðlan enn vinsæl
Vinir Risaeðlan og frummannabarn-
ið í Góðu risaeðlunni.
Garðar Thór
Cortes, Gissur
Páll Gissurarson,
Dísella Lár-
usdóttir, Val-
gerður Guðna-
dóttir og Oddur
Arnþór Jónsson
koma fram á há-
tíðartónleik-
unum Óperu-
draugarnir í
Hörpu 30. desember, á nýársdag og
2. janúar og í Hofi á Akureyri 3.
janúar ásamt strengjasveit og pí-
anóleikara. Þau munu flytja sín
uppáhaldssönglög og -aríur á tón-
leikunum.
Óperudraugarnir
fagna áramótum
Garðar Thór
Cortes
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
ANNES nefnist djasskvintett sem
gaf fyrir örfáum dögum út sína
fyrstu hljómplötu, samnefnda hljóm-
sveitinni. ANNES mætti kalla ofur-
sveit því hún er skipuð þungavigtar-
mönnum úr
íslenskum
djassheimi,
þeim Ara
Braga Kára-
syni trompet-
leikara, Jóel
Pálssyni saxó-
fónleikara, Guðmundi Péturssyni
gítarleikara, Eyþóri Gunnarssyni pí-
anóleikara og trommuleikaranum
Einari Scheving. Platan hefur að
geyma frumsamin verk eftir alla
liðsmenn sveitarinnar nema Eyþór
og er tónlistinni lýst í tilkynningu
sem „blöndu rafmagnaðrar og óraf-
magnaðrar djasstónlistar þar sem
saman tvinnast ólík höfunda-
einkenni“. Tónlistin byggist á lifandi
laglínum og rótsterkum ryþmum
sem myndi í senn ævintýralegt og
rómantískt flæði.
Tóku upp og tvístruðust svo
Jóel segir nokkuð um liðið frá því
ANNES var stofnuð en upptökur
plötunnar fóru fram á þremur dög-
um í Hljóðrita í Hafnarfirði í október
í fyrra og viðbótarupptökur fóru
fram bæði þar og í Þykkvabæ á
þessu ári. Guðmundur, Eyþór og
Bergur Þórisson stýrðu þeim og
Guðmundur sá svo um hljóðblöndun.
Um masteringu, hljómjöfnun, sá
Noel nokkur Summerville hjá 3345
Mastering í Lundúnum. „Lundúna-
lævirkinn, eins og við köllum hann,“
segir Jóel um Summerville og hlær.
Jóel segir liðsmenn ANNES mjög
svo önnum kafna við að spila með
hinum og þessum og taka þátt í
margvíslegum verkefnum en á ein-
hverjum tímapunkti hafi þessi
hljómsveit þó orðið til, þótt hann
muni ekki nákvæmlega hvenær.
„Við tókum þetta upp og svo tvístr-
uðust bara allir hver í sína áttina og
það var Guðmundur Pétursson sem
tók af skarið og kláraði að mixa
þessar upptökur. Svo gaf ég þetta út
hjá mínu fyrirtæki,“ segir Jóel og á
þar við fyrirtækið Flugur ehf.
– Þið hafið sett ykkur það mark-
mið að flytja frumsamda tónlist?
„Já, það eru allir í hljómsveitinni
að skrifa einhverja tónlist. Venju-
lega gefa menn plöturnar sínar út
sjálfir, við erum þrír að gefa út plöt-
ur; ég með Stórsveit Reykjavíkur og
Gummi og Einar. Þetta er dálítið
mikil einyrkjastarfsemi og það er
gaman að vera í hljómsveit þar sem
allir eru á jafnræðisgrundvelli, eng-
inn einn leiðtogi,“ segir Jóel.
– Allir jafnmiklar stjörnur?
„Eða litlar, í þessu tilfelli,“ segir
Jóel og hlær. „Við prófuðum ým-
islegt og á þessari plötu erum við
svolítið að finna sándið fyrir þetta
band.“
Flókið að smala
Jóel er spurður hvort ANNES
hyggi á útrás, tónleikahald á er-
lendri grundu. „Það væri voða gam-
an en þetta er hópur af einhverjum
mest uppteknu hljóðfæraleikurum
landsins og það getur verið gríðar-
lega flókið að ná mannskapnum
saman þótt við séum bara fimm og
búum meira að segja allir í Reykja-
vík,“ segir Jóel.
– Það er s.s. nógu flókið að halda
útgáfutónleika?
„Það mun ekki hafast núna í des-
ember,“ segir Jóel og hlær. „Ætli við
gerum ekki eitthvað strax í upphafi
nýs árs til að fagna þessu?“
Allir jafnlitlar stjörnur
ANNES gefur út fyrstu plötu sína Ævintýralegt og rómantískt flæði
Sjóaðir Djasskvintettinn ANNES, frá vinstri Einar Scheving, Jóel Pálsson, Guðmundur Pétursson, Ari Bragi Kárason og Eyþór Gunnarsson.
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is HEYRNARSTÖ‹IN
Enn snjallara heyrnartæki
Beltone Legend
Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.
Beltone Legend gengur með iPhone 6s og eldri gerðum, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
™
Ókeypis
heyrnarmælingsíðan 2004
THE 33 8, 10:35
KRAMPUS 5:45, 8
THE NIGHT BEFORE 10:45
HUNGER GAMES 4 5:15, 8, 10:10
GÓÐA RISAEÐLAN 5:15
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ