Morgunblaðið - 15.12.2015, Síða 44

Morgunblaðið - 15.12.2015, Síða 44
ÞRIÐJUDAGUR 15. DESEMBER 349. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696 1. Maður lést á Suðurlandsvegi 2. Heilabilun afleiðing höfuðhögga 3. Maður á börn úti um allar trissur 4. Nafn mannsins sem lést »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Kvennakórinn Katla og Bartónar, karlakór Kaffibarsins, halda tvenna jólatónleika í Gamla bíói á fimmtu- daginn, 17. desember, kl. 18 og 20, undir dyggri stjórn Hildigunnar Ein- arsdóttur, Jóns Svavars Jósefssonar og Lilju Daggar Gunnarsdóttur. Tón- leikarnir eru til styrktar Sjónarhóli, ráðgjafarmiðstöð fyrir foreldra barna með sérþarfir. Morgunblaðið/Golli Katla og Bartónar styrkja Sjónarhól  Hið alþjóðlega ANS-tríó, skipað Agnari Má Magn- ússyni píanóleik- ara, franska kontrabassaleik- aranum Nicolas Moaux og banda- ríska trymblinum Scott McLemore, heldur tónleika á djasskvöldi Kex hostels í kvöld kl. 20.30. ANS-tríó leikur á djasskvöldi Kex  Jólatónleikarnir Jólasöngvar verða haldnir í Langholtskirkju um helgina og hefur færeyska söngkonan Eivør Pálsdóttir bæst í hóp einsöngvara fyrstu tvennra tónleikanna, 18. des. kl. 23 og 19. des. kl. 20. Þriðju tónleikarnir verða 20. des. kl. 20. Á tónleikunum syngja Kór Lang- holtskirkju og Gra- dualekór Lang- holtskirkju undir stjórn Árna Harð- arsonar. Eivör á Jólasöngvum Langholtskirkju Á miðvikudag Fremur hæg austlæg átt, skýjað og stöku skúrir eða él víða um land, en bjart að mestu norðanlands. Frostlaust með suður- og vesturströndinni, annars frost 0 til 6 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt, 3-10 m/s. Dálitlar skúrir eða él, einkum við suður- og vesturströndina, en léttir smám saman til norðaustan- og austanlands. Hiti víða 0-5 stig og kólnandi veður. VEÐUR Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson, þjálfarar karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu, gætu prófað allt að 40 leikmenn í vin- áttulandsleikjunum þremur sem fram fara í næsta mán- uði, þegar Ísland mætir Finnlandi, Sameinuðu arab- ísku furstadæmunum og Bandaríkjunum. Tveir fyrr- nefndu leikirnir fara fram í Abu Dhabi en sá þriðji í Los Angeles. »1 Fjölmargir fá tækifæri fyrir EM Bergvin Þór Gíslason, handknatt- leiksmaður frá Akureyri, hefur gengið í gegnum mikla og stranga endur- hæfingu eftir alvarleg axlarmeiðsli. Nú er hann kominn í gang og er leik- maður umferðarinnar eftir að hafa skorað þrettán mörk í sigri á Gróttu um helgina. Sverre Jakobsson, þjálfari Akureyringa, lýsir Bergvini fyrir les- endum Morgun- blaðsins. »4 Kominn í gang eftir stranga endurhæfingu Ekki er annað að sjá en að for- ráðamenn íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu hafi verið tiltölulega heppnir þegar þeir völdu sér alpa- bæinn Annecy sem dvalarstað á með- an liðið tekur þátt í úrslitakeppni Evr- ópumótsins í Frakklandi næsta sumar. Annecy var valinn úr hópi 50- 70 staða í Frakklandi sem til greina komu fyrir hópinn. »3 Annecy hentar íslenska landsliðinu afar vel ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hagleiksmanninum Haraldi Guð- bjartssyni, rafverktaka og rafvéla- virkja, er margt til lista lagt og fyr- ir rúmum tveimur árum hóf hann að búa til kleinu- og laufabrauðs- járn með framtíðina í huga. „Mig vantaði eitthvað til þess að vinna við í ellinni og þegar ég frétti að Ægir Björgvinsson, sem hafði gert þessi járn í 25 ár, ætlaði að selja tól og tæki hafði ég samband við hann og keypti þetta af honum,“ segir Haraldur. Hann segist þegar vera farinn að draga saman seglin í hefðbundinni vinnu og því sé ágætt að geta dundað sér við smíðina. Ekki hefð fyrir vestan Laufabrauðsgerð er víða vinsæl en Haraldur, sem er ættaður frá Patreksfirði og Rauðasandi, kynnt- ist henni ekki fyrr en hjá fjölskyldu eiginkonunnar. „Laufabrauð tíðk- aðist ekki fyrir vestan en þegar ég fór að fara í jólaboð hjá fjölskyldu konunnar kynntist ég þessari hefð og þessum rétti,“ segir hann. Haraldur er einn fárra sem fram- leiða handunnin laufabrauðsjárn. „Þetta er mikil vinna og ég er um þrjá tíma með hvert járn,“ segir hann og áréttar að hann noti ekki sjálfvirkar vélar. „Þetta er heil- mikið föndur og töluvert vanda- samt, því gæta þarf þess að bitið sé í lagi og hnífurinn skeri rétt.“ Hann bætir við að mikilvægt sé að hjólið sé rétt tennt til þess að fá nauðsyn- legan skáa. Listamaðurinn framleiðir þetta að því er virðist einfalda áhald und- ir merkinu Handverk Haraldar í tveimur stærðum (www.hand- verkharaldar.is). Hann segir að minni stærðin, 12 mm, sé sér- staklega vinsæl á Norðurlandi. „Hún er hentugri til þess að búa til myndir,“ segir hann. Bætir við að erlendir sælkerar hafi sýnt járn- unum áhuga. „Það virðist vera í tísku að matgæðingar, sem halda oft matarboð, vilji stöðugt brydda upp á einhverju nýju og slíkir menn hafa frekar keypt dýrari útgáfur af þessum laufabrauðsjárnum.“ Laufabrauðsjárnin eru seld víða um land og eins hefur eitthvað ver- ið um pantanir frá útlöndum. Har- aldur segir að fólk vilji halda í hefð- ina og algengt sé að eldra fólk gefi unga fólkinu laufabrauðsjárn í þeim tilgangi. „Laufabrauðsgerð er ríkur þáttur og hefð hjá mörgum fjölskyldum fyrir jólin og hún þjappar fólkinu saman,“ segir hann. „Það er mun skemmtilegra en að eyða öllum jólaundirbún- ingnum í búðaráp.“ Hefðin þjappar fólkinu saman  Vandasöm vinna að búa til laufabrauðsjárn Hagleiksmaður Haraldur Guðbjartsson segir að gæta þurfi þess að bitið sé í lagi og hnífurinn skeri rétt. List Haraldur er einn fárra sem framleiða handunnin laufabrauðsjárn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.