Morgunblaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Það er vorlegt í Þingeyjarsýslu og sólin hefur skinið
inn um gluggana undanfarna daga hjá mönnum og
málleysingjum. Kýrnar hafa baulað á sólina og beðið
með eftirvæntingu eftir því að fá að hoppa í haganum.
Hreyfingin úti er þeim lífsnauðsynleg og þær búa lengi
að útivistinni. Góð spá er næstu daga en þurrkur haml-
ar sprettu þannig að nokkuð langt er í að sláttur hefjist
í héraðinu. Á myndinni má sjá nokkrar af kúnum á
Laxamýri þar sem þær fagna sumrinu, en kýr fara lík-
lega út á flestum bæjum landsins í vikunni.
Kúnum á Laxamýri hleypt út í sumarið
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Umhverfisráðherra er að undirbúa
skipun starfshóps til að kortleggja
miðhálendi Íslands og skoða hug-
myndina um að gera það að einum
þjóðgarði. Sigrún Magnúsdóttir um-
hverfisráðherra vísar til umræðunnar
sem er um málið en tekur fram að sjálf
sjái hún alveg eins fyrir sér minni en
fleiri friðlýst svæði.
Á borði umhverfisráðherra liggur
skýrsla starfshóps um friðland að
Fjallabaki. Hópurinn lagði meðal ann-
ars til að skipaður yrði sérstakur
starfshópur til að vinna að stækkun
verndarsvæðisins og endurskoðun
friðlýsingarskilmála. Þar er meðal
annars rætt um að öll Torfajökulseld-
stöðin lendi innan friðlandsins, allur
Laugavegurinn, Veiðivötn, Hekla,
Eyjafjallajökull, Fimmvörðuháls og
Skógafoss, auk Landmannalauga og
annarra perla sem nú þegar eru í frið-
landinu.
Vert að skoða hugmyndina
Sigrún segir vel koma til greina að
gera þetta. „Maður horfir mjög til
þessa svæðis sem eins af gullmolum ís-
lenskrar náttúru. Það er vinsælt en
hefur látið á sjá. Æskilegt væri að
dreifa álaginu á fleiri staði innan frið-
landsins.“
Hún segist hafa áhyggjur af landinu
almennt og vilja reyna að bregðast við.
Margt sé í gerjum. Bendir hún á hug-
myndina um að gera miðhálendið að
einum þjóðgarði. Fluttar hafa verið
um það þingsályktunartillögur og hafa
náttúruverndar- og útivistarsamtök
og Samtök ferða-
þjónustunnar
sameinast í bar-
áttu fyrir málefn-
inu og safnað und-
irskriftum vegna
kröfunnar. Sigrún
bendir á að málið
hafi jafnvel bland-
ast inn í kosninga-
baráttu frambjóð-
enda til embættis
forseta Íslands.
Verkefni starfshópsins verður að
hennar sögn að kortleggja miðhálend-
ið með auðlindum, vegum og öðrum
innviðum og gera grein fyrir skipu-
lagsmálum. Gera meðal annars yfirlit
yfir núverandi friðlýst svæði á miðhá-
lendinu, helstu náttúruverðmæti og
hagsmuni. Einnig að fara yfir hug-
myndina um að gera hálendið að ein-
um þjóðgarði.
„Ég tel vert að skoða þessa hug-
mynd en tel að huga þurfi að mörgu
áður en því er slegið fram að þetta sé
ákjósanlegasta fyrirkomulagið,“ segir
Sigrún og bætir við: „Mín persónulega
skoðun er að það sé að mörgu leyti
eðlilegra að skipta landinu upp í minni
markaðssvæði í ferðamennsku.“
Sigrún segir að margir eigi hags-
muna að gæta á hálendinu og nefnir að
landið sé innan marka á þriðja tugar
sveitarfélaga. Hyggst hún leita eftir
tilnefningum fulltrúa hagsmunaaðila
og stofnana í starfshópinn.
Hún tekur það fram að henni finnist
rétt að skoða þessa hugmynd áður en
farið sé að skipa nefnd til að vinna að
stækkun friðlands að Fjallabaki því
þessi svæði skarist.
Nefnd skoði hálendisþjóðgarð
Verkefnið að kortleggja auðlindir, innviði og skipulag og fara yfir hugmyndina
Ráðherra vill skoða málið áður en ákveðið verður að stækka friðland að Fjallabaki
Sigrún
Magnúsdóttir
Meirihluti skóla-
og frístundaráðs
Reykjavíkur sam-
þykkti í gær að
stytta viðveru
barna á frístunda-
heimilum um
korter. Frá næsta
hausti verður
heimilunum lokað
kl. 17. Áætlað er
að þannig náist fram hagræðing sem
nemur um 4 milljónum á árinu 2016
og um 11 milljónir á árinu 2017. Um
200 börn af rúmlega 4.000 nýta þessa
þjónustu. „Þarna náum við að sam-
ræma opnunartíma í leik- og grunn-
skólum,“ segir Skúli Helgason, for-
maður ráðsins. „Það var verið að
setja mikla peninga í eitthvað sem af-
ar fáir nýta sér. Þetta eru í kringum
5% sem hafa nýtt sér þetta korter og
það vegur þungt. Það munar um
þessar milljónir í þessum rekstri,“
segir Skúli. Hann segir að sparnaðar-
tímabilið verði vonandi styttra en
stefndi í. „Við förum vonandi að snúa
vörn í sókn fljótlega.“
Í bókun Sjálfstæðisflokksins um
málið kemur fram að sá mikli niður-
skurður sem boðaður hafi verið á
skóla- og frístundasviði sé þegar far-
inn að bitna verulega á sjálfsagðri
grunnþjónustu sem snúi að börnum.
„Forgangsraða hefði átt í þágu skóla-
barna og tryggja þeim sem besta
þjónustu í stað þess að fara í hvert
gæluverkefnið á fætur á öðru.“ segir í
bókuninni. benedikt@mbl.is
Stytta
viðveru
um korter
Skúli Helgason
Frístundaheimilin
verða opin skemur
Jóhann Hjartarson er efstur eftir
áttundu umferð Skákþings Íslands,
sem tefld var í Tónlistarskóla Sel-
tjarnarness í gær. Jóhann hefur
hlotið sex vinninga, hálfum vinningi
meira en þrír aðrir. Jón Viktor
Gunnarsson, Héðinn Steingrímsson
og Bragi Þorfinnsson eru allir með
fimm og hálfan vinning eftir að þeir
gerðu jafntefli í gær.
Hart var barist, bæði á toppi og
botni, í áttundu umferð. Jóhann
lagði Einar Hjalta Jensson og mætir
Guðmundi Kjartanssyni í dag. At-
hygli vekur að stórmeistarinn
Hjörvar Steinn Grétarsson hefur að-
eins hlotið tvo og hálfan vinning.
Jóhann einn
í efsta sæti
Starfsmenn Reykjavíkurborgar voru mættir í
gróðursetningu á Austurvelli í gær, gulklæddir
með græna fingur. Sumarblómin eru sett niður
víða um borgina og allt kapp lagt á að því verki
sé lokið fyrir þjóðhátíðarhöldin 17. júní. Aðeins
rúm vika er til stefnu.
Morgunblaðið/Golli
Gulklædd með græna fingur í gróðursetningu