Morgunblaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 71
rekstur, stofnaði fyrirtækið Rafgeisla
og starfrækti það til 2014 er hann
seldi fyrirtækið þó að hann starfi þar
enn.
Tómas var vitavörður á Dalatanga
1967-68. Hann gekk í björgunar-
sveitina Gerpi á Norðfirði er 13 ára
og starfar þar enn, var formaður
hennar í 16 ár, gekk ungur í Slökkvi-
lið Norðfjarðar, starfaði með því í
áratugi og var slökkviliðsstjóri Norð-
fjarðar um 12 ára skeið.
Tómas hefur kennt rafvirkjun við
VMN í nokkur ár og hefur auk þess
verið snjóeftirlitsmaður Veðurstof-
unnar á Norðfirði frá 1996:
„Snjóeftirlitið fellst í því að fylgjast
með snjóalögum í fjallinu, en það er
að mestu gert með því að lesa á stikur
sem þar hefur verið komið fyrir.
Fylgst er með sumum þeirra með
tölvum en lesið á aðrar með góðum
kíki. Auk þess þarf að fara á vettvang,
taka snjógryfjur og meta snjóalög.
Ég vann hjá RARIK þegar mann-
skæða snjóflóðið féll hérna 20. des-
ember 1974 og var þá í Oddsskarðinu
að gera við rafmagnslínur. Ég hef
aldrei lent í eins miklum snjó.
Ég lenti hins vegar í lífsháska þeg-
ar við vorum að flytja snjóbíl frá
Kerlingarfjöllum á Eskifjörð 1975.
Við keyrðum upp á Vatnajökul frá
Jökulheimum og í Grímsfjöll og þar
féll ég í jökulsprungu, 20 metra
djúpa, höfuðkúpubrotnaði og festist.
Senda þurfti menn til að höggva mig
lausan. Þetta tók tvo klukkutíma og
ég var orðinn kaldur og votur. Þetta
voru lengstu tveir klukkutímar sem
ég hef upplifað.“
Fjölskylda
Eiginkona Tómsar er Sigurborg
Gísladóttir, f. 14.3. 1948, ræstitæknir.
Foreldrar hennar voru Gísli Bergvin
Björnsson, f. 1.6. 1908, d. 21.9, 1996,
bóndi á Höfðabrekku í Mjóafirði, og
k.h., Hrefna Einarsdóttir, f.
29.10.1914, d. 25.4. 1996, húsfreyja.
Börn Tómasar og Sigurborgar er
Hrefna Zoëga, f. 12.3. 1967, sjávar-
útvegsfræðingur og matreiðslukona á
Hótel Eddu á Norðfirði, en maður
hennar er Arnar Baldursson kerfis-
fræðingur og er dóttir þeirra Sigur-
borg auk þess sem Arnar á Elínu og
Helenu frá því áður; Reynir Zoëga, f.
8.8. 1968, eftirlitsmaður hjá Alcoa á
Reyðarfirði, en kona hans er Dýrunn
Pála Skaftadóttir, forstöðumaður Olís
á Norðfirði og á Reyðarfirði, og eru
synir þeirra Tómas Bergvin, og Svav-
ar Þór auk þess sem dætur Dýrunnar
eru Jóna Bára og Aníta Eir, og
Hjálmdís Zoëga, f. 9.3. 1976, hár-
greiðslukona og sjúkraliði á Norð-
firði, en maður hennar er Magnús
Guðmundsson, starfsmaður við álver
Alcoa á Reyðarfirði og eru börn
Hjálmdísar Ísak Tandri, Amalía og
Hrefna Lára.
Systkini Tómasar eru Jóhann
Zoëga, f. 26.2. 1942, vélvirki og kenn-
ari á Norðfirði; Ólöf Zoëga, f. 14.4.
1953, sjúkraliði á Norðfirði, og Stein-
unn Zoëga, f. 28.8. 1960, fisk-
verkakona á Vopnafirði.
Foreldrar Tómasar: Reynir Zoëga,
f. 27.6. 1920, rennismiður og fyrrv.
skrifstofumaður hjá Síldarvinnslu í
Neskaupsstað, og k.h., Guðlaug Sig-
ríður Jóhannsdóttir Zoëga, f. 12.12.
1921, d. 18.11. 1988, húsfreyja.
Úr frændgarði Tómasar R. Zoëga
Tómas R.
Zoëga
Ingibjörg Brynjólfsdóttir
húsfr. á Sandhóli
Gísli Þorláksson
útvegsb. á Sandhóli í Norðfirði
og fyrsti múrari á Norðfirði
Ólöf V. Gísladóttir
húsfr. á Norðfirði
Jóhann Gunnarsson
rafveitustj. á Norðfirði
Sigríður J. Zoëga
húsfr. á Norðfirði
Nikólína Sigurðardóttir
húsfr. í Holti
Gunnar Jónsson
útvegsb. á Holti í Mjóafirði
Jóhannes Zoëga
hitaveitustj. í
Rvík
Petrún Gísladóttir
húsfr. í Enni á Norðfirði
Bjarni
Jónsson
vígslu-
biskup í
Rvík
Friðrik Sigurjónsson
b. á Héraði
Áslaug
Geirsdóttir
Zoëga
húsfr. í Rvík
Guðrún Geirsdóttir Zoëga
húsfr. í Rvík
Geir Hallgrímsson
forsætisráðherra
Geir Þorsteinsson
verkfr. og forstj. Ræsis
Geir T. Zoëga
vegamálastjóri
Ingileif B.
Björnsdóttir
stjórnar-
form. í Rvík
Björn Hallgrímsson
forstjóri
Hallgrímur Geirsson
lögmaður
Gunnar Snorri Hallgrímsson
sendiherra
Kristinn Björnsson
forstjóri Skeljungs
Finnur Geirsson
forstj. Nóa-Síríus
Emilía B. Björnsdóttir
ljósmyndari við Morgunblaðið
Tómas Zoëga yfirlæknir
Guðrún Zoëga
verkfr. og fyrrv. borgarfulltr.
Benedikt Jóhannesson
stærðfræðingur og
form.Viðreisnar
Sigríður Davíðsdóttir
húsfr. á Iðunnarstöðum
Símon Jónsson
b. á Iðunnarstöðum í
Lundarreykjadal
Steinunn Símonardóttir
húsfr. á Norðfirði
Tómas Zoëga
sparisjóðsstj. á Norðfirði
Reynir Zoëga
rennismíðam., verkstj. og
fyrrv. bæjarfulltr. á Norðfirði
Geir
Zoëga
rektor
Lærða
skólans
í Rvík
Jóhannes Zoëga
Tómasson
skipstjóri í Rvík
Ólöf
Hafliðadóttir
húsfr. í Rvík
Guðný Hafliðadóttir
húsfr. í Rvík, af Engeyjarætt
ÍSLENDINGAR 71
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2016
Þór fæddist í Reykjavík 9.8.1930. Foreldrar hans voruVilhjálmur Þ. Gíslason,
skólastjóri VÍ og útvarpsstjóri í
Reykjavík, og Inga Oddný Árna-
dóttir. Vilhjálmur var sonur Þor-
steins Gíslasonar, ritstjóra og skálds
í Reykjavík, og Þórunnar Páls-
dóttur, en Ingileif var dóttir Árna
Jónssonar, alþm. og prófasts á
Skútustöðum og Auðar Gísladóttur.
Bróðir Vilhjálms var Gylfi Þ. Gísla-
son, prófessor, alþm. og ráðherra.
Eiginkona Þórs var Ragnhildur
Helgadóttir, hdl., alþingismaður og
ráðherra sem lést 29.1. sl. og eign-
uðust þau fjögur börn, Helga, Ingu,
Kristínu og Þórunni.
Þór lauk stúdentsprófi frá MR
1949, embættisprófi í lögfræði frá
HÍ 1957, stundaði framhaldsnám í
ríkisrétti við New York University
1958 og við Kaupmannahafnarhá-
skóla 1959 og sinnti eigin rann-
sóknum í Reykjavík 1959-60.
Þór var stundakennari við VÍ
1950-53, blaðamaður við Morgun-
blaðið 1957-59, upplýsingafulltrúi
SÞ og Evrópuráðsins, fulltrúi hjá
borgardómara 1960-62, var borgar-
dómari 1962-67, kenndi lögfræði við
HÍ frá 1959 og prófessor þar 1967-
76, var forstöðumaður Lagastofn-
unar HÍ 1974-76, skipaður hæsta-
réttardómari 1976, var forseti
Hæstaréttar 1983-84 og 1993, var
dómari í Mannréttindadómstóli Evr-
ópu 1971-98 og við EFTA-dómstól-
inn frá 1994 en lét af störfum 2002.
Þór gegndi fjölda trúnaðarstarfa,
var m.a. formaður Orators og SUS,
varaborgarfulltrúi fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn, sat í stjórnarnefnd Rík-
isspítalanna, í sendinefnd Íslands á
allsherjarþingi SÞ 1963, í stjórn nor-
rænu réttarfélagsfræðisamtakanna,
var formaður Félags háskólakenn-
ara, Lögfræðingafélags Íslands og
byggingarnefndar Lögbergs, var í
sendinefnd Íslands á fundum hafs-
botnsnefndar SÞ í New York og
Genf 1972 og 1973 og í sendi-
nefndum á hafréttarráðstefnum SÞ í
Caracas 1974 og í Genf 1975. Þá var
hann einn af forgöngumönnum und-
irskriftasöfnunar Varins lands 1974.
Þór lést 20.10. 2015.
Merkir Íslendingar
Þór
Vilhjálmsson
90 ára
Nanna Þrúður Júlíusdóttir
85 ára
Ragna Kristín Árnadóttir
Rögnvaldur Ólafsson
80 ára
Árni Sigurður Guðmunds-
son
Bjargmundur Júlíusson
Guðbjörg Alda
Jóhannsdóttir
Guðmundur Karlsson
Guðrún Erna Narfadóttir
Högni Gunnlaugsson
Rannveig Bjarnadóttir
75 ára
Bjarni Stefánsson
Hrafnhildur Óskarsdóttir
Hulda Ellertsdóttir
Margrét Kristjánsdóttir
70 ára
Ebba Valvesdóttir
Elsa Lísa Jónsdóttir
Erla Hrönn Snorradóttir
Fríður Ólafsdóttir
Guðmundur Sigurðsson
Haraldur E. Ingimarsson
Jón Þorsteinsson
Málfríður Sigurðardóttir
Ólafur Bjarnason
Salvatore Torrini
Sigríður Hauksdóttir
Sigríður Pálsdóttir
Tómas R. Zoéga
60 ára
Einar Páll Guðmannsson
Guðný B. Lúðvígsdóttir
Jakob Jóhann Jónsson
Sigurður Ingólfsson
Sigurður Viggó
Gunnarsson
Vilborg Einarsdóttir
50 ára
Alexandra S. Arnardóttir
Auðbjörg Jakobsdóttir
Ásgrímur Ásgrímsson
Eiður Freyr Jóhannsson
Ester Óskarsdóttir
Guðjón Guðjónsson
Guðmundur Karl Björnsson
Gunnar Nelke Einarsson
Ingvar Örn Karlsson
Laufey Ýr Sigurðardóttir
Maria Theresa Michelsen
Steinar Gíslason
Örn Guðnason
40 ára
Agnes Hlíf Andrésdóttir
Christophe Joseph Paccard
Derek Michael Murphy
Draupnir R. Draupnisson
Eiður Arnar Pálmason
Eiríkur Júlíus Þórðarson
Elísabet Anna Jónsdóttir
Elísabet Helgadóttir
Hólmfríður Guðnadóttir
Lilja Torfadóttir
Mekkin G. Bjarnadóttir
Páll Jakobsson
Piotr Szuba
River-Life Carmalt
Tomasz Dorozinski
Tomasz Uscio
30 ára
Alexander Dungal
Arnar Þór Tulinius
Ásta Ragna Stefánsdóttir
Bjartmar S. Guðjónsson
Dóra Sigfúsdóttir
Gígja Jóhannsdóttir
Gunnar Hrafn Jónsson
Gunnbjörn Gísli Kristinsson
Heimir Björnsson
Íris Daníelsdóttir
Svana L. Kristjánsdóttir
Svava Sigurjónsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Svana býr í
Hafnarfirði, lauk prófi í
vöruhönnun frá LHÍ, er
sjálfstæður hönnuður og
er með bloggsíðu: Svart á
hvítu á Trendnet.is.
Maki: Andrés Garðar
Andrésson, f. 1986, hús-
gagnasmiður.
Sonur: Bjartur Elías
Andrésson, f. 2014.
Foreldrar: Katrín Sveins-
dóttir, f. 1962, og Kristján
Rúnar Kristjánsson, f.
1958.
Svana Lovísa
Kristjánsdóttir
30 ára Íris býr á Dalvík,
lauk prófi í viðskiptafræði
frá HA og sér um bókhald
og laun hjá Marúlfi.
Maki: Kristinn Ingi Vals-
son, f. 1985, húsamálari
og tamningamaður.
Börn: Arnor Darri, f.
2010, og Daníela Björk, f.
2013.
Foreldrar: Svala Svein-
bergsdóttir, f. 1965, hár-
snyrtir, og Daníel Þór
Hilmarsson, f. 1964, d.
2002, húsasmíðam.
Íris
Daníelsdóttir
30 ára Gunnbjörn ólst
upp í Þorlákshöfn, er nú
búsettur í Reykjanesbæ
og starfar hjá Ace Handl-
ing í Leifsstöð.
Dætur: Emilía Mist og
Erla Kamilla, f. 2011.
Bróðir: Þorfinnur Kristinn
Árnason, f. 1979.
Foreldrar: Kristinn Gísla-
son, f. 1957, netagerðar-
maður í Þorlákshöfn, og
Anna María Hauksdóttir,
f. 1957, húsfreyja í
Reykjavík.
Gunnbjörn Gísli
Kristinsson
Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að dugmiklu
fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð.
Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga
og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana.
Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is
Hafðu samband í dag
og byrjaðu launaða líkamsrækt
strax á morgun.
www.mbl.is/laushverfi
Vantar þig aukapening?