Morgunblaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 68
68 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2016
Ýmislegt
Sælureitur í sveitinni!
Til sölu glæsilegar lóðir í Fjallalandi í
Landsveit. Veðursæld, fjallasýn og
ægifögur náttúra. Gönguleiðir
meðfram Ytri-Rangá. Aðeins 100 km
frá Reykjavík.
Uppl. s. 8935046 og á fjallaland.is
Bílar
SKODA OCTAVIA AMBIENTE
COMBI 5 dyra. Árg. 7/2012,
Ek: 102þ Sk:2018, 1600 Diesel-bsk.
Ný sumardekk og nagladekk
fylgja. Dráttarbeisli. Ný tímareim og
vatnsdæla. Nýlegir diskar og klossar.
Þjónustubók. Bíllinn er til sýnis hjá
Bílasölunni Bílfang Malarhöfða 2.
Uppl. í síma: 615-8080.
Toyota Avensis árg 2007
til sölu á 1490þ. Ekinn 169xxx.
Nýskoðaður án athugasemda. Nánari
uppl. gefur Ófeigur í síma 8693468
Smáauglýsingar
Atvinnublað
alla laugardaga
Sendu pöntun á augl@mbl.is
eða hafðu samband í síma 569-1100
Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og ámbl.is
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN
ÞÍN Á BESTA STAÐ?
✝ SigvaldiJóhannsson
fæddist 3. júlí 1932 á
Syðra-Lágafelli,
Miklaholtshreppi,
Snæfellsnesi, og ólst
þar upp. Hann lést á
Droplaugarstöðum
þann 29. maí 2016.
Foreldrar hans
voru Jóhann Magn-
ús Kristjánsson,
bóndi frá
Ytra-Lágafelli, f. 7.9. 1893, d.
29.8. 1965, og Borghildur Júlíana
Þórðardóttir frá Borgarholti í
sömu sveit, f. 9.7. 1897, d. 5.1.
1971. Systkini hans: Steinunn, f.
3.8. 1924, d. 25.1. 2010, Jóhann
Gunnar, f. 21.1. 1928, d. 12.2.
2001, Kristján f. 28.9. 1929, d.
20.2. 1999, Þórir, f. 28.9. 1929,
Sigurður, f. 22.12. 1930, Sesselja
Anna, f. 19.11. 1934, d. 2.4. 2009,
Vigdís Þórkatla, f. 8.8. 1939, d.
17.6. 2010.
Sigvaldi kvæntist þann 17. júní
1961 Hólmfríði Helgu Guðjóns-
dóttur, hjúkrunarfræðingi og
ljósmóður, f. 20.2. 1937. For-
Þórðardóttir, f. 2.1. 1999. Sig-
valdi starfaði sem bóndi að
Syðra-Lágafelli frá unglings
aldri þegar hann tók við búinu
vegna hnignandi heilsu föður
síns. Hann brá þó búi um eins árs
skeið og gerðist tollvörður í
Reykjavík. Sigvaldi flutti aftur
vestur með konu sinni og for-
eldrum árið 1962, gerðist sæð-
ingamaður hjá Búnaðarfélagi
Snæfellinga meðfram störfum
sínum sem bóndi. Sigvaldi og
Helga brugðu búi árið 1967 og
fluttu til Reykjavíkur, þar sem
hann gerðist þaklagningarmaður
og síðar meistari fyrir Jens Vil-
ladsen & Co. Hann starfaði síðar
sem verktaki með eigið þaklagn-
ingafyrirtæki. Sigvaldi var mikill
söngmaður og söng með Karla-
kórnum Fóstbræðrum og Kór
eldri borgara. Þá hafði hann mik-
inn áhuga á leiklist og lék í ýms-
um kvikmyndum, m.a. í Lénharði
fógeta, Paradísarheimt, Agnesi,
og Stellu í framboði. Hann var út-
lits síns vegna einnig vinsæll í
auglýsingum, t.d. við að leika
jólasvein. Sigvaldi var glaðlyndur
og oft hrókur alls fagnaðar, vel
liðinn og barngóður, enda vildu
afabörnin vera hjá honum sem
oftast.
Útför Sigvalda fer fram frá
Háteigskirkju í dag, 9. júní 2016,
klukkan 15.
eldrar hennar voru
Guðjón Guðbjörns-
son skipstjóri, f. 4.5.
1897, d. 8.1. 1976, og
Matthea Jónsdóttir,
f. 1.9. 1908, d. 5.9.
1978. Börn þeirra
eru: 1) Sigrún Matt-
hea, skrifstofumað-
ur, f. 29.4. 1962,
maki Már Sigur-
björnsson, f. 20.6.
1959. Þeirra synir:
a) Matthías, f. 31.7. 1998, b) Jó-
hannes Bjarki, f. 11.11. 2003 (Már
átti fyrir dótturina Örnu Sif, f.
2.11. 1984, d. 12.3. 2016, og son-
inn Sigurbjörn, f. 29.10. 1993). 2)
Guðjón leikstjóri og leiðsögu-
maður, f. 5.10. 1963. 3) Áslaug,
myndlistarmaður og kennari, f.
10.3. 1965, maki Þórður Ingimar
Runólfsson, f. 7.2. 1965, dætur: a)
Silja Ósk, f. 29.3.1987, maki Tumi
Ferrer, f. 4.5. 1988, synir Kol-
beinn Þinur, f. 19.7. 2011, og Þór-
bergur Váli, f. 14.12. 2013, b) Sól-
rún, f. 13.6. 1989, maki Atli Rafn
Sívertssen, f. 3.11. 1987, dóttir
Jenný Helga, f. 4.5. 2014, c) Helga
Kveðja til pabba.
Elsku, besti, fallegi pabbi
minn, þakka þér fyrir allt, minn
kæri.
Pabbi var skemmtilegur,
glaðlyndur, hrókur alls fagnaðar
og söngmaður góður. Hann var
blíður, umhyggjusamur, hvetj-
andi faðir.
Þjóðsöngurinn minnir mig á
þig. Á sunnudögum var ekki
slökkt á sjónvarpinu fyrr en bú-
ið var að spila þjóðsönginn, það
var svo oft sem við sátum sam-
an, horfðum á fallegar, tærar
myndir af Íslandi og hlustuðum.
Þegar ég horfi á jökulinn, hlusta
á veðurfréttirnar, heyri í lóu,
spóa, jaðrakan og hrossagauk
þá minnir þetta allt á þig, þig og
sumar og Lágafell.
Veiðiferðir inn í Baulárvalla-
vatn, í torfærum á grænum
Bronkó. Pabbi, mamma, börn og
bíll, við vorum saman í liði. Eftir
að við fluttum suður þá fórum
við ófáar ferðir vestur á Lága-
fell, þú við stýrið og við sungum.
Allar ferðir var sungið, þá tók
enga tvo tíma að aka vestur, það
tók rúma fjóra tíma.
Þú sagðir okkur frá því þegar
þú varst ungur, þá fórstu upp á
Kast og söngst hástöfum. Kastið
var þitt svið og sveitin hlustaði.
Söngur og sögur, það var
meðal þess sem einkenndi þig.
Þú kenndir okkur að njóta tón-
listar og það var allt frá óp-
erusöng með Jussi Björling yfir
í Kim Larsen.
Einn daginn á Kvisthaganum
komstu heim með sambyggðar
græjur plötuspilara, útvarp og
kassettutæki. Þetta var þvílíkt
flott. Þú fékkst lánaðar plötur
hjá Menningarstofnun Banda-
ríkjanna, Elvis, Harry Bela-
fonte, Mahaliu Jackson og
marga fleiri.
Þú varst lengi í Karlakór
Fóstbræðra og það var unun að
hlusta á þig æfa, hljómfögur
tenórrödd og þegar hlustað var
gat maður látið hugann svífa.
Þú varst heill í gegn, óeig-
ingjarn, gjafmildur, og stór-
huga.
Þú hjálpaðir og stóðst eins og
klettur með okkur í öllu því sem
okkur datt í hug. Leiklist,
myndlist, ferðalög, Trúðir á það
sem við vorum að gera og
fannst leiðir að takmarkinu með
okkur.
Þú studdir okkur Þórð og
tókst heilshugar undir þegar
okkur datt í hug að rækta og
byggja upp á Lágafelli. Þú tókst
þátt í að skapa það sem við höf-
um í dag.
Kappsamur í vinnu og ósér-
hlífinn. Svo kappsamur að þú
varst alltaf kominn á fætur eld-
snemma og kominn út á undan
öllum. Þú varst hreinskiptinn og
heiðarlegur.
Takk fyrir að kenna mér að
vera bjartsýn, og að lífið er leik-
ur og gleði. Takk fyrir að kenna
mér að trúa á hið góða í fólki.
Takk fyrir að kenna mér þraut-
seigju og vinnusemi. Takk fyrir
stuðninginn í náminu. Takk fyr-
ir sönginn og sögurnar. Takk
fyrir að vera fyrirmynd afa-
barnanna dætra og frænda
minna. Ég er fegin því að geta
verið með þér síðustu sporin, og
finna hve fallega þú lyftir þér á
vængjum með síðasta anda-
drættinum. Eins og blær.
Þín verður sárt saknað, elsku
pabbi minn, það eina sem hugg-
ar hjartað er trúin á að ég hitti
þig aftur svo óendanlega þykir
mér vænt um þig. Við hittumst
fyrir hinum megin, þú verður
búin að útbúa fallegt hús handa
þér og mömmu og við munum
hittast þar. Við hlustum og
heyrum rödd þína hljóma. Þá
finnum við þig.
Far í friði, elsku pabbi minn.
Þín
Áslaug.
Elsku afi.
Ef það er einhver staður sem
ég á eftir að minnast þín á þá er
það fyrir utan húsið á Lágafelli,
eldsnemma dags þar sem þú
sast á hvalbeininu og horfðir út
á jökulinn og sveitina. Í minn-
ingunni er alltaf gott veður og
smá tóbakslykt.
Núna ferð þú í ferð og mig
langar að senda sykur og salt
með þér svo þú getir bætt kaffið
og saltað matinn að þínum
hætti.
Mig langar að þakka þér fyrir
að hafa mig hjá þér þegar ég fór
í menntaskóla, kenna mér að
meta bækur, hjálpa mér með
margföldunartöfluna þegar við
bjuggum hjá ykkur ömmu eitt
árið og fyrir að vera fastur
punktur í tilverunni í horninu á
stofunni með bók og kaffi við
höndina.
Þín dótturdóttir,
Silja Ósk Þórðardóttir
Elsku afi.
Nú ert þú fallinn frá, en ég
veit að þú ert kominn á betri
stað, vestur á Snæfellsnes í
sveitablíðuna.
Mínar fyrstu minningar um
þig eru þegar þú greiddir flók-
ann minn með svörtu greiðunni
þinni sem þú varst alltaf með í
brjóstvasanum á skyrtunni
þinni, en þú varst sá eini sem
máttir greiða flókann úr hárinu.
Ég man ávallt eftir þér,
glettnum á svip raulandi lög og
ætíð var stutt í hláturinn.
Það var alltaf jafn spennandi
þegar við systurnar vissum að
þið amma væruð á leið vestur
því þá vissi ég að framundan
væru spennandi dagar í að bar-
dúsa við hitt og annað við
Syðra-Lágafell eða rölta eftir
girðingum til að laga þær eða
bera í opin svæði uppi í Kasti
eða Lágafellshyrnunni. Þú varst
alltaf með hugann við að betr-
umbæta landið og græða það
upp.
Þegar ég flutti í bæinn fékk
ég að búa hjá þér og ömmu á
Grettisgötunni ásamt Silju Ósk.
Mér fannst það mjög spennandi
enda aldrei verið jafn sjálfstæð
og fullorðin, 15 ára. Þið amma
tókuð okkur systrum opnum
örmum og var þetta okkur eins
og annað heimili. Varst þú ávallt
til staðar í gamla bláa hæg-
indastólnum, lesandi Moggann
með kaffibollann og smjörkex
eða dottandi yfir útvarpsfrétt-
um.
Það eru margar minningar
sem hrannast upp þegar ég
skrifa þér þessi lokaminningar-
orð og gæti ég skrifað heila bók
um allt sem ég upplifði og fékk
að bardúsa með þér.
En þessar minningar verða
ávallt í hjarta mínu eins og þú.
Elsku afi, ég mun ávallt
sakna þín en ég veit að þú horfir
til mín þegar ég kem vestur.
Þín dótturdóttir,
Sólrún Þórðardóttir.
Elsku afi.
Þegar ég hugsa til baka á ég
margar minningar um þig sem
mér þykir mjög vænt um, en sú
helsta sem stendur upp úr þeim
öllum er þegar ég kom suður á
Grettisgötuna með mömmu og
pabba einn vetur. Eins og í flest
öll skiptin fór ég út á leikvöll
fyrir aftan húsið til að leika, en
hafði ekki tekið neina vettlinga
með mér út. Þegar ég kom inn
þá var mér svo nístingskalt á
höndunum, en þú tókst þær í
þínar stóru hendur og byrjaðir
að ylja þeim og í leiðinni
söngstu: Kristín litla komdu hér
með kalda lófa þína.
Þessi minning sýnir hversu
góðhjartaður og yndislegur afi
þú varst.
Þín
Helga Þórðardóttir.
Ég og afi höfum alltaf verið
hinir mestu vinir, allt frá því að
ég var pínulítill og alveg fram
að dánardegi hans. Mamma seg-
ir mér oft frá því þegar ég var
lítill og lá á skiptiborðinu heima
og hún spurði mig oft og mörg-
um sinnum „hver væri best“
vonandi að svarið yrði
„mamma“, en þess í stað var
svar mitt alltaf það sama og það
var „afi“. Mömmu brá í fyrstu
við þetta en sá svo að ég og afi
vorum svo svakalega góðir vinir,
að hann var það besta í lífi
mínu. Ég man eftir því að þegar
ég var í heimsókn hjá ömmu og
afa í gegnum árin, þá sá afi allt-
af um það að ég væri snyrti-
legur og fínn, alveg frá því að ég
man eftir mér var hann alltaf að
taka upp greiðuna sína og
greiða mér svo að hárið stæði
ekki allt útí loftið og að ég liti
sómasamlega út. Það má halda
að þetta hafi orðið vani hjá mér,
því í gegnum árin þá hef ég allt-
af séð vel um hárið á mér fyrir
afa. Svo þegar ég varð eldri þá
fórum við að horfa meira á sjón-
varpið saman, afi var t.d. sá
fyrsti sem leyfði mér að horfa á
Lord of the Rings-myndirnar,
reyndar var mamma ekki sátt
með það en það má segja að afi
hafi kveikt áhuga minn á bíó-
myndum því ég horfði á margar
klassískar myndir hjá afa.
Hann afi minn hefur alltaf
verið mikið glæsimenni, bæði í
útliti og í hegðun, hann hefur
alltaf litið alveg stórkostlega út
með sitt glæsilega hár og skegg.
Einnig var hann mikið ljúfmenni
og kom hann alltaf vel fram við
alla sem hann talaði við. Það var
samt eitt sem hann stóð sig
langbest í og það var að sjá um
fjölskylduna, allt frá því ég man
eftir mér, þá hefur hann alltaf
verið uppáhaldsmanneskjan í
fjölskyldunni hjá mörgum fjöl-
skyldumeðlimum og sakaði það
ekki að hann átti alveg ynd-
islega konu sem var alveg jafn
góð og yndisleg og hann, sú
kona er að sjálfsögðu hún amma
mín.
Þinn
Matthías.
Ég man þegar ég kom og
spilaði fyrir afa á harmonikkuna
og sá að afi ljómaði allur upp og
varð mikið málglaðari þegar
hann sá mig koma röltandi inn
með harmonikkuna. Einnig
gladdi það mig þegar ég leit upp
frá nótunum og sá að afi hafði
tárast, ég hélt fyrst að þetta
væru sorgartár en þegar ég tók
eftir því að afi táraðist í hvert
skipti sem ég spilaði fyrir hann,
þá kveikti ég, þetta voru ekki
sorgartár, heldur gleðitár, sem
komu vegna þess að fagrir tón-
arnir gerðu hann svo óskaplega
glaðan og minntu hann á gamla
og góða tíma.
Þinn
Jóhannes Bjarki.
Vængjum vildi eg berast
í vinda léttum blæ,
djarft um fjöll og dali
og djúpan reginsæ;
Vængjum líða í lofti
við ljósblátt sólarhvel,
vængjum sælum svífa.
Með sigri yfir lífi og hel.
Vængi, vængi gef mér,
sem von og æskudraum.
Fagra, sterka og frjálsa,
að flýja úr sollnum glaum;
Vængi að fái eg flogið
og fundið sæluvist,
það allt sem eg þrái,
og þá sem eg hef misst.
Vængi í hæð að hefjast,
sem háfleygt arnakyn,
vængi loks er leiftra
við ljóssins hæsta skin;
Vængi er þjóta án þreytu,
en þiggja kyrrðar bið
þá bjartir saman sveipast
í sælum himins frið.
(J. H., IV.)
Stgr. Thorst. þýddi.
Með kveðju frá
Áslaugu og Þórði, Guð-
jóni, Sigrúnu og Má.
Sigvaldi
Jóhannsson