Morgunblaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2016
Barnaskór Hummel
Litur: Svart, nr 28-38
Hummel Stadil Leather
Verð áður: 11.995
Verð nú 8.995
Dömuskór Rieker
Litur svart, nr. 36-41
Leður hælasandalar
Verð áður: 14.995
Verð nú 12.995
TOLLALÆK
KUN
Skechers Air, herra
Cooled Memory Form
Litur: Burg
Verð áður: 15.995
Verð nú 13.995
„Við teljum að þessar minjar séu
frá 18. eða 19. öld, en það á eftir að
rannsaka þær frekar,“ segir Vala
Garðarsdóttir, fornleifafræðingur,
um fornleifar sem komið hafa í ljós
við uppgröft á lóðinni á milli Aðal-
strætis 7 og Vallarstrætis 4 í
Reykjavík.
Uppgröfturinn þar er liður í
sömu rannsókn og á lóð Landsím-
ans við Kirkjustræti þar sem
mannabein hafa fundist. Til stendur
að reisa stórt hótel á svæðinu og
var þess vegna ráðist í uppgröftinn.
Vala segir ekki útilokað að eldri
minjar eigi eftir að koma í ljós á
staðnum, en svæðið sé þó allt meira
og minna raskað af mannavöldum
frá tíð fyrri kynslóða Reykvíkinga.
Þarna hafi verið grafnir djúpir
kjallarar og lagðar leiðslur og rör.
Hún segir að rannsóknin í heild
gangi vel og sé innan tímaáætlunar.
Stefnt hefur verið að því að upp-
greftri verði lokið ekki síðar en í lok
ágúst.
Við uppgröftinn starfa nú 5 til 6
fornleifafræðingar, en að auki eru
nokkrir við úrvinnslu gagna.
gudmundur@mbl.is
Morgunblaðið/Þórður
Minjar frá 18. eða 19. öld
Guðni Einarsson
Anna Lilja Þórisdóttir
Vænta má talsverðra breytinga á
mannaskipan Alþingis eftir næstu
kosningar. Af núverandi 63 alþing-
ismönnum hafa 11 ákveðið að
hverfa af þingi og fjórir hafa ekki
enn gert upp hug sinn um hvort
þeir hyggjast gefa kost á sér til
áframhaldandi þingsetu.
Tveir alþingismenn vildu ekki
svara þegar Morgunblaðið spurði
hvort þeir hygðust áfram gefa kost
á sér til þingstarfa eða ætluðu að
hverfa af þingi.
Kosningar undirbúnar
Tæplega fjórðungur alþingis-
manna er því að hætta eða er
óákveðinn um framhaldið. Nærri 3⁄4
núverandi þingmanna ætla að gefa
áfram kost á sér eða 46 þeirra sem
nú sitja á Alþingi. Það er svo í
höndum stjórnmálaflokkanna og
kjósenda hverjir hreppa þingsæti í
alþingiskosningunum sem á að
halda í haust. Staðan hjá þingmönn-
unum sést nánar á meðfylgjandi
töflu.
Eins og fram hefur komið eru
stjórnmálaflokkarnir farnir að und-
irbúa kosningarnar. Frambjóðend-
ur verða ýmist valdir á lista í próf-
kjörum, sem geta verið opin eða
lokuð, á tvöföldum kjördæmisþing-
um, af uppstillinganefndum eða í
forvali. Að lokum eru það kjósend-
urnir sem mæta á kjörstað sem
ráða því hverjir munu setjast á
þing.
Eftir síðustu alþingiskosningar,
27. apríl 2013, tóku 27 nýir þing-
menn sæti á Alþingi eða tæplega
43% þingmanna. Þar munaði mest
um tólf nýja þingmenn Framsókn-
arflokksins og átta nýja þingmenn
Sjálfstæðisflokksins. Í kosningun-
um 2009 náðu einnig 27 nýir þing-
menn kjöri. Af þeim voru 14 endur-
kjörnir 2013.
Þingheimur breytist
Ellefu þingmenn hafa ákveðið að hætta Fjórir ekki gert
upp hug sinn Minnst 46 þingmenn stefna að endurkjöri
Alþingismenn
Hverjir halda áfram og hverjir hætta
Gefa kost á sér áfram
Árni Páll Árnason (S)
Ásmundur Einar Daðason (B)
Ásmundur Friðriksson (D)
Ásta Guðrún Helgadóttir (Þ)
Birgir Ármannsson (D)
Birgitta Jónsdóttir (Þ)
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (V)
Bjarni Benediktsson (D)
Björt Ólafsdóttir (A)
Brynjar Níelsson (D)
Elín Hirst (D)
Elsa Lára Arnardóttir (B)
Eygló Harðardóttir (B)
Guðlaugur Þór Þórðarson (D)
Gunnar Bragi Sveinsson (B)
Haraldur Benediktsson (D)
Helgi Hrafn Gunnarsson (Þ)
Helgi Hjörvar (S)
Höskuldur Þórhallsson (B)
Jón Gunnarsson (D)
Katrín Jakobsdóttir (V)
Kristján Þór Júlíusson (D)
Lilja Rafney Magnúsdóttir (V)
Líneik Anna Sævarsdóttir (B)
Oddný G. Harðardóttir (S)
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir (S)
Óttar Proppé (A)
Páll Valur Björnsson (A)
Ragnheiður Elín Árnadóttir (D)
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (B)
Sigríður Á.Andersen (D)
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (S)
Sigurður Ingi Jóhannsson (B)
Silja Dögg Gunnarsdóttir (B)
Steingrímur J. Sigfússon (V)
Steinunn Þóra Árnadóttir (V)
Svandís Svavarsdóttir (V)
Unnur Brá Konráðsdóttir (D)
Valgerður Bjarnadóttir (S)
Valgerður Gunnarsdóttir (D)
Vilhjálmur Árnason (D)
Vilhjálmur Bjarnason (D)
Willum Þór Þórsson (B)
Þorsteinn Sæmundsson (B)
Þórunn Egilsdóttir (B)
Össur Skarphéðinsson (S)
Ætla að hætta
Brynhildur Pétursdóttir (A)
Einar K. Guðfinnsson (D)
Frosti Sigurjónsson (B)
Hanna Birna Kristjánsdóttir (D)
Katrín Júlíusdóttir (S)
Kristján L. Möller (S)
Páll Jóhann Pálsson (B)
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (D)
Róbert Marshall (A)
Sigrún Magnúsdóttir (B)
Ögmundur Jónasson (V)
Óákveðin
Guðmundur Steingrímsson (A)
Haraldur Einarsson (B)
Karl Garðarsson (B)
Vigdís Hauksdóttir (B)
Vilja ekki svara
Illugi Gunnarsson (D)
Jóhanna María Sigmundsdóttir (B)
A: Björt framtíð
B: Framsóknarflokkur
D: Sjálfstæðisflokkur
S: Samfylkingin
V: Vinstri græn
Þ: Píratar
Morgunblaðið/Eggert
Alþingi Flestir þingmanna á þessari
mynd ætla að halda áfram.
Tvö tilboð bárust í gatnagerð og
lagnir fyrir veitur í væntanlegt
íbúðahverfi PCC Seaview Residen-
ces á Húsavík. Sérfræðingar eru að
fara yfir tilboðin og meta. PCC er
jafnframt í viðræðum við fyrirtæki
um uppbyggingu íbúðarhúsanna.
Mikill húsnæðisskortur er á
Húsavík, sérstaklega í ljósi mikillar
atvinnuuppbyggingar á vegum PCC
BakkiSilicon á iðnaðarsvæðinu á
Bakka. PCC, fyrirtækið sem reisir
kísilverið, er að athuga möguleika á
því að byggja 45 íbúðir og sveitarfé-
lagið Norðurþing tók frá lóðir í
Holtahverfi í því skyni.
Tilbúið haustið 2017
PCC Seaview Residences bauð
verkið út, í samvinnu við veitufyr-
irtæki, gatnagerð og lagnir í hverf-
inu. Verktakinn á að leggja fráveitu,
hitaveitu og rafmagn og skila götum
og gangstéttum malbikuðum og til-
búnum grassvæðum. Tvö fyrirtæki
lögðu fram tilboð en þau hafa ekki
verið birt.
Fyrirtækið óskaði í vor eftir hug-
myndum arkitekta og verktaka að
uppbyggingu svæðisins. Bergur Elí-
as Ágústsson sem stýrir verkefninu
segir að fyrirtækið eigi í viðræðum
við aðila um uppbygginguna. End-
anlegar ákvarðanir verði teknar
þegar allt verður klappað og klárt.
Áhugi hefur verið á því að íbúðirnar
yrðu að mestu tilbúnar áður en kís-
ilverið tekur til starfa, undir lok árs
2017. helgi@mbl.is
PCC skoðar til-
boð í byggingu
íbúðahverfis
Tvö tilboð í gatnagerð Rætt við
fyrirtæki um uppbygginguna
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Húsavík Séð m.a. yfir höfnina.
Lögreglumenn ríkislögreglustjóra
hafa þegar hafið störf í Frakklandi
í tengslum við Evrópumótið í knatt-
spyrnu. Tveir lögreglumenn verða
staðsettir í stjórnstöð mótsins í Par-
ís og sex lögreglumenn munu fylgja
íslenska liðinu og verða viðstaddir
leiki þess.
Lögreglumennirnir í stjórnstöð-
inni munu miðla upplýsingum milli
franskra yfirvalda og íslensku lög-
reglumannanna sem verða á leikj-
um Íslands. Stjórnstöðin verður op-
in allan sólarhringinn á meðan á
mótinu stendur og munu íslensku
lögreglumenn-
irnir hafa við-
veru þar á dag-
vinnutíma og
vera með bak-
vakt á nóttunni.
Hlutverk lög-
reglumannanna
á leikjunum er að
vera tengiliðir
milli íslenskra áhorfenda og
franskra yfirvalda. Öll stjórnun,
skipulag og ákvörðunarvald er í
höndum franskra yfirvalda, segir í
tilkynningu ríkislögreglustjóra.
Lögreglan hefur hafið störf í Frakklandi