Morgunblaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 81
MENNING 81
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2016
Katrín Hall hefur
verið ráðin list-
rænn stjórnandi
GöteborgsOperans
Danskompani. Til-
kynnt var um
ráðninguna á vef
sænska dans-
flokksins í gær.
Katrín tekur við
stöðunni af
Adolphe Binder þann 1. ágúst nk.
og er ráðningin til fjögurra ára.
Á ofangreindum vef er rifjað upp
að Katrín hafi verið listrænn stjórn-
andi Íslenska dansflokksins á ár-
unum 1996 til 2012. „Undir hennar
stjórn breyttist Íd í hágæða samtíð-
ardansflokk sem fór í sýningar-
ferðalög á erlendum vettvangi,“
segir í fréttinni og á það bent að sú
reynsla hennar hafi vegið þungt við
ráðninguna. Haft er eftir Katrínu
að henni finnist það mikill heiður
að fá að stýra GöteborgsOperans
Danskompani sem sé „einn af bestu
samtímadansflokkum Evrópu. Mig
langar að auka hróður flokksins
með listrænni sýn minni“.
Katrín ráðin list-
rænn stjórnandi
Katrín Hall
Gunnar Karel
Másson, tón-
skáld, hefur ver-
ið ráðinn list-
rænn stjórnandi
Myrkra músík-
daga (MM) 2017.
Tónlistarhátíðin
MM, sem var
stofnuð 1980, er
vettvangur fyrir
íslensk tónskáld
til að fá verk sín flutt. Gunnar Kar-
el lærði tónsmíðar við LHÍ og við
Konunglega tónlistarháskólann í
Kaupmannahöfn. „Gunnar Karel
hefur rekið tónlistarhátíðina Sonic
Festival í Kaupmannahöfn með
góðum árangri og hann er einnig
einn af listrænum stjórnendum tón-
listarhópsins Jaðarbers.“ Stjórn
MM óskar um þessar mundir eftir
umsóknum um þátttöku í MM sem
fram fer 26.-28. janúar 2017. Um-
sóknir skulu berast fyrir 20. júní á
netfangið:
myrkirmusikdagar@gmail.com.
Nýr listrænn
stjórnandi MM
Gunnar Karel
Másson
Sumarljósmynda-
keppni á mbl.is
Ferðasumar Ferðamaður skokkar neðan við Skógarfoss á mynd Jóns Ragnars Jónssonar.
Krukkuviti Vitinn í krukkunni heitir þessi ljós-
mynd eftir Birki Pétursson.
Leikur Jóhanna Kristín Þorsteinsdóttir
á þessa mynd úr leynifjörunni.
Svart/Hvítt Það er alltaf gaman í heita pottinum
sem sjá má á mynd Lilju Rósar Aðalsteinsdóttur.
Nú stendur yfir á mbl.is árleg Sumarljós-
myndakeppni mbl.is og Canon. Hægt er að taka
þátt í keppninni með því að fara inn á Fólkið á
mbl.is og smella á Ljósmyndasamkeppni í und-
irvalmyndinni.
Þátttaka í keppninni er ókeypis og öllum
heimil. Hver þátttakandi má senda inn eins
margar myndir og honum sýnist og engu skipt-
ir hvenær mynd er tekin eða á hvaða myndavél.
Einnig má skanna inn gamlar myndir og eins
má vinna myndirnar að vild.
Keppninni lýkur 31. ágúst næstkomandi og
þá velur sérstök dómnefnd þrjár bestu mynd-
irnar sem hljóta verðlaun.
1. verðlaun eru Canon EOS 650D myndavél
með 18–55mm linsu, 2. verðlaun Canon IXUS
240 HS myndavél og 3. verðlaun eru Canon
PIXMA MG5450 fjölnota prentari.
Sólarlag Albert Ómar Guðbrandsson kallar þessa mynd af gömlu húsi Gamalt hús.
Við eigum
Verið velkomin í sjónmælingu.
Sólgleraugu fylgja með í kaupæti
20 ára afmæli!
HAMRABORG 10, KÓPAVOGI - SÍMI: 554 3200 - OPIÐ: VIRKA DAGA 9:30-18, LOKAÐ Á LAUGARDÖGUM Í SUMAR
THE NICE GUYS 8, 10:30
FLORENCE FOSTER JENKINS 5:30, 8
WARCRAFT 8, 10:30
TMNT 2 5:30
ANGRY BIRDS ÍSL.TAL 5:30
BAD NEIGHBORS 2 10:20
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar