Morgunblaðið - 09.06.2016, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2016
Vertu upplýstur!
blattafram.is
MÖRG ÞEKKJUM VIÐ BÆÐI
ÞOLENDUR OG GERENDUR
KYNFERÐISOFBELDIS
PERSÓNULEGA.
ERUM VIÐ AÐ SAMÞYKKJA
ÞAÐ MEÐ ÞÖGNINNI?
Eyrnalokkagöt
Thealoz inniheldur trehalósa sem er náttúrulegt efni
sem finnst í mörgum jurtum og dýrum sem lifa í mjög
þurru umhverfi.
Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna
hornhimnunnar gegn þurrki.
Droparnir eru án rotvarnarefna
og má nota með linsum.
Ég fór í laseraðgerð hjá Sjónlagi í lok maí 2015. Keypti mér
Thealoz dropana eftir aðgerðina og var mjög ánægð, ákvað
samt að prufa að kaupa mér ódýrari dropa og fann rosalega
mikinn mun á gæðum. Þessir ódýrari voru bara ekki að
gera neitt fyrir mig og þurfti ég að nota mikið meira magn.
Mælti með dropunum við tengdamömmu og er hún alsæl
með Thealoz dropana.
Elín Björk Ragnarsdóttir
Þurrkur í augum?
Thealozaugndropar
Fæst í öllum helstu apótekum.
Þjóðhagsráð kom saman til síns
fyrsta fundar í gærmorgun en
fulltrúar launþegasamtakanna
mættu ekki til fundarins vegna
ágreinings um hlutverk ráðsins, eins
og greint var frá í frétt Morgun-
blaðsins í gær. Þennan stofnfund
ráðsins sátu því fulltrúar ríkisstjórn-
arinnar, Sambands íslenskra sveit-
arfélaga, Samtaka atvinnulífsins og
Seðlabankans. Í fréttatilkynningu
frá forsætisráðuneytinu í gær segir
að heildarsamtök launafólks sem að-
ild eiga að rammasamkomulaginu,
sem kennt er við Salek, hverju sinni
geti gerst aðilar að Þjóðhagsráði.
ASÍ og BSRB sendu frá sér sam-
eiginlega yfirlýsingu í gær þar sem
segir að fulltrúar BRSB og ASÍ hafi
lagt til að myndaður verði annar
samhliða vettvangur um samræðu
fulltrúa stjórnar og stjórnarand-
stöðu og fulltrúa samningsaðila á
vinnumarkaði. Þar geti þessir aðilar
freistað þess að mynda breiða sam-
stöðu um meginviðfangsefni og for-
gangsröðun í uppbyggingu velferð-
arkerfisins og fjármögnun þess.
Forsætisráðherra hafi nú boðað til
stofnfundar Þjóðhagsráðs þrátt fyrir
að engin niðurstaða sé um málsmeð-
ferð „um hina velferðarpólitísku hlið
málsins“. ASÍ og BSRB telja því
ótímabært að stofna Þjóðhagsráðið á
meðan ekki hafi náðst sátt um hlut-
verk þess og markmið.
Ljósmynd/Forsætisráðuneytið
Stofnfundur Ráðherrar, seðlabankastjóri, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og framkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins komu til fyrsta fundar Þjóðhagsráðs í gærmorgun. Fulltrúar launþegasamtaka mættu ekki.
Funduðu án ASÍ og BSRB
Launþegasamtök sögð geta hverju sinni gerst aðilar að
Þjóðhagsráði ASÍ og BSRB segja stofnun þess ótímabæra
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Mikill breytileiki er í þróun fast-
eignamats innan höfuðborgarsvæð-
isins og á milli staða á landsbyggð-
inni, samkvæmt nýrri fasteignamats-
skrá. Hluti af skýringunni er sú að
matsverð íbúða í fjölbýli, sérstaklega
á höfuðborgarsvæðinu, hækkar
meira en í sérbýli. Munar í mörgum
tilvikum nærri helmingi á hækkun í
fjölbýli og sérbýli.
Nýja fasteignamatið sem Þjóðskrá
Íslands kynnti í gærmorgun gildir á
árinu 2017. Það grundvallast á upp-
lýsingum um þinglýsta kaupsamn-
inga, auk fjölmargra annarra þátta
sem áhrif hafa á verðmæti fasteigna.
Það miðast við verðlag fasteigna í
febrúar sl. Eigendur hafa frest til 1.
september til að gera athugasemdir.
Mesta hækkun í Bústaðahverfi
Meðalhækkun á mati íbúðar-
húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu er
9,2%. Mikla hækkun má finna víða á
svæðinu, þó mest miðsvæðis. Mest
hækkar matið í Bústaðahverfi, um
rúm 20%, og um tæp 17% í Fellunum
í Breiðholti. Matið lækkar á Kjal-
arnesi og á tveimur matssvæðum í
Garðabæ, meðal annnars um rúm 4%
á Arnarnesi.
Enn meiri breytileiki er í þróun á
fasteignamati utan höfuðborg-
arsvæðisins. Áberandi er að matið
hækkar mikið í bæjum þar sem eft-
irsótt er að kaupa hús til sum-
ardvalar. Dæmi um það eru Stykk-
ishólmur, Vík í Mýrdal og
Siglufjörður.
Á Vesturlandi hækkar matið mest í
Búðardal, um rúm 23%, en í stærsta
byggðarlaginu, Akranesi, um rúm
7%.
Fasteignamat á Patreksfirði
hækkar um rúm 22% en í næsta firði,
Tálknafirði, lækkar matið um rúm
4%. Matið í eldri byggðinni á Ísafirði
og á Flateyri og Þingeyri hækkar um
12-13%.
Lækkun á Norðurlandi vestra
Norðurland vestra sker sig nokkuð
úr. Þar lækkar matið að meðaltali á
öllum matssvæðum. Það lækkar til
dæmis á Blönduósi um rúm 9% og um
0,2% á Sauðárkróki.
Á Akureyri hækkar matið um 6-
10%, mismunandi eftir hverfum bæj-
arins. Tæplega 11% hækkun er á
eignum á Siglufirði en 3,5% hækkun í
systurbænum Ólafsfirði. Matið lækk-
ar um 7,7% í Hrísey. Þá lækkar matið
um 1,6% á Húsavík, þrátt fyrir mikla
eftirspurn eftir fasteignum. Aftur á
móti er rúmlega 14% hækkun á Þórs-
höfn og 10,5% hækkun á Raufarhöfn.
Mesta hækkun á einstöku mats-
svæði á landinu öllu reynist vera á
Vopnafirði, 25%. Tæplega 8% hækk-
un er á eignum á Egilsstöðum. Matið
hækkar um 8,7% í Neskaupstað, mun
meira en í systurbæjunum í Fjarða-
byggð. Skörp hækkun er á Djúpa-
vogi, 20,5%, og 16% á Höfn.
Fasteignamatið hækkar um 20-
21% í Vík og á Kirkjubæjarklaustri.
Á Selfossi kemur fram 6,3% hækkun
og 7,1% í Hveragerði en aðeins tæp-
lega 1% hækkun í Þorlákshöfn. Í
Vestmannaeyjum lækkar fast-
eignamatið um 0,2%.
Fjölbýli hækkar meira en sérbýli
Fasteignamat hækkar mest í miðhluta höfuðborgarsvæðisins Tæplega 17% hækkun mats í
Fellunum í Breiðholti 25% hækkun á Vopnafirði Almenn verðlækkun á Norðurlandi vestra
Morgunblaðið/Ómar
Fasteignir Íbúðir í miðhluta höfuðborgarsvæðisins hækka meira en í jöðr-
unum. Hús í glæsihverfum Garðabæjar hækka minna eða jafnvel lækka.
Höfuðborgarsvæðið
Breytingar á fasteignamati (nokkur dæmi)
Heimild: Þjóðskrá Íslands
Matssvæði Breyting
Bústaðahverfi 20,10%
Vesturbær: Vestan Bræðraborgarstígs 16,00%
Miðbær: Frá Bræðraborgarstíg að Snorrabraut 14,90%
Hólar, Berg í Reykjavík 14,60%
Hagar/Melar: Vestan Hofsvallagötu 11,70%
Árbær 11,10%
Garðabær: Sjáland 10,80%
Holt/Tún í Reykjavík 10,30%
Kópavogur: Austurbær 10,20%
Mosfellsbær: Höfðar, Hlíðar 10,20%
Seljahverfi 9,60%
Hlíðar 9,50%
Hafnarfjörður 9,40%
Laugarneshverfi/Vogar 9,20%
Selás 9,20%
Grafarvogur: Hamrar, Foldir, Hús 8,10%
Grafarholt 7,40%
Fossvogur 7,10%
Mosfellsbær 6,40%
Norðlingaholt 5,40%
Kópavogur: Lindir, Salir 5,10%
Garðabær 4,40%
Seltjarnarnes 3,80%
Kjalarnes -0,80%
Garðabær: Arnarnes -4,10%
Hækkun fasteignamats Sérbýli Fjölbýli Atvinnuhúsnæði
Landið allt 6,20% 11,30% 7,60%
Höofuðborgarsvæðið 6,50% 11,70% 9,10%
Utan höfuðborgarsvæðis 5,50% 8,60% 4,10%
Meiri hækkun í fjölbýli