Morgunblaðið - 09.06.2016, Qupperneq 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2016
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Samþykkt var í bæjarstjórn í vik-
unni, með ellefu samhljóða atkvæð-
um, bókun sem sjálfstæðismaðurinn
Njáll Trausti Friðbertsson lagði
fram, þar sem skorað er á ríkis-
stjórn Íslands að taka til skoðunar
niðurgreiðslu- og jöfnunarkerfi í
innanlandsflugi.
Í bókun Njáls segir: „Í þessu
sambandi er bent á leið sem farin
hefur verið í Skotlandi til að koma til
móts við íbúa sem treysta á flug-
samgöngur á strjálbýlli svæðum
landsins. Þessi leið sem gengur und-
ir nafninu Air Discount Scheme for
the Highlands and Islands veitir íbú-
um með lögheimili á ákveðnum
svæðum rétt til 50% afsláttar af far-
gjöldum hjá flugfélögum sem taka
þátt í verkefninu.“
Síðar á árinu verður listaverk
eftir Elísabetu Geirmundsdóttur
sett upp á flötinni við Minjasafns-
tjörnina í Innbænum. Verkið, Útþrá,
verður senn sent til Þýskalands þar
sem gerð verður af því eftirmynd úr
bronsi, sem verður einn metri á hæð,
heldur stærri en listaverkið.
Elísabet Geirmundsdóttir bjó
alla tíð við Aðalstræti, í gamla Inn-
bænum sem gjarnan var og er
nefndur Fjaran. Hún var einmitt
sjaldnast kölluð annað en Lista-
konan í Fjörunni. Æskuheimili
hennar var númer 36 en þau Ás-
grímur Ágústsson, eiginmaður
hennar, byggðu sér síðan húsið núm-
er 70. Útþráin mun standa þar á
milli, en Minjasafnið er númer 58.
Árið 2015 hefði Elísabet orðið
100 ára og á þeim tímamótum færðu
börn hennar, Ásgrímur og Iðunn
Ágústsbörn, Minjasafninu á Akur-
eyri listaverkasafn Elísabetar til
eignar og varðveislu. Í tilefni af
þeirri góðu gjöf er Minjasafnið nú að
útbúa rými á efstu hæð safnsins þar
sem verður varanleg sýning á hluta
verka Elísabetar. Á afmælisárinu
var haldin vegleg yfirlitssýning á
verkum hennar í Listasafninu á
Akureyri.
Elísabet Ásgrímsdóttir, barna-
barn og nafna listakonunnar, hefur
veg og vanda af verkefninu. „Í kjöl-
far sýningarinnar á Listasafninu
kom fólk að máli við mig og fleiri, og
nefndi að það þyrfti endilega að
koma upp varanlegu útilistaverki
eftir ömmu,“ segir hún. „Svo lengi
sem ég man, og í raun fyrir mitt
minni, hefur verið um það rætt að
það megi til með að koma úti-
listaverki eftir Listakonuna í Fjör-
unni í varanlegt efni svo allir megi
sjá og njóta. Ég velti því fyrir mér
hvað þyrfti til, eftir hverju væri ver-
ið að bíða, og komst að því að líklega
væri ekki verið að bíða eftir neinu
nema helst sjálfri mér!“
Gert er ráð fyrir að verkefnið
kosti 2,7 milljónir króna. Leitað hef-
ur verið til ýmissa sjóða og er þegar
búið að safna 1,7 milljónum króna.
Fjörutíu ára afmæli Raftákns,
verkfræðistofu á rafmagnssviði með
höfuðstöðvar á Akureyri, var fagnað
með veglegri hátíð á dögunum í há-
tíðarsal Háskólans á Akureyri. Þar
var boðið upp á tónlist og önnur
skemmtiatriði.
Raftákn var stofnað 1. júní 1976
og hefur unnið að mjög margvís-
legum verkefnum, síðustu ár m.a.
séð um alla hönnun raflagna í Hval-
fjarðargöngum, Fáskrúðsfjarðar-
göngum, Almannaskarðsgöngum og
Héðinsfjarðargöngum. Fyrirtækið
sá einnig um hönnun lýsingar- og
rafkerfa fyrir Hófsgöngin á Suðurey
í Færeyjum, Múlagöng, Strákagöng
og Vestfjarðagöng.
Auk þess að þiggja gjafir eins og
gengur færði Raftákn Verkmennta-
skólanum á Akureyri eina og hálfa
milljón króna að gjöf í tilefni afmæl-
isins, ásamt fyrirtækinu Johan
Rönning. Féð er hugsað til þess að
endurnýja kennslubúnað í ljósastýr-
ingarkerfum.
Framkvæmdir hófust nýlega við
lagna- og gatnagerð á svokölluðum
Drottningarbrautarreit, svæðinu
sunnan við veitingastaðinn Bautann
þar sem hafa verið bílastæði. Þeim
mun fækka umtalsvert meðan á
framkvæmdum stendur. Stefnt er að
því að ljúka framkvæmdum undir
lok júlí í sumar.
Brátt hefjast framkvæmdir við
að bæta fjarskiptasamband í Gríms-
ey. Þar hafa menn lengi búið við lé-
legt og óstöðugt net- og síma-
samband en í fyrra fékk Grímsey
inngöngu í verkefnið Brothættar
byggðir á vegum Byggðastofnunar.
Markmiðið verkefnisins, sem
hlaut heitið Glæðum Grímsey, er að
heyra skoðanir íbúanna sjálfra á
framtíðarmöguleikum heima-
byggðarinnar og leita lausna á for-
sendum þeirra í samvinnu við ríkis-
valdið, sveitarfélagið og fleiri aðila.
„Í þessari vinnu hefur komið skýrt
fram að eitt af þeim málum sem íbú-
ar Grímseyjar hafa hvað mestar
áhyggjur af eru fjarskiptamálin,
bæði net- og símasamband. Því var
áhersla lögð á einmitt þann þátt,“
segir í frétt á heimasíðu Akureyrar.
Léttblúsað Skuggatríó Sigurðar
Flosasonar heldur tónleika í Hofi í
kvöld kl. 20. Þetta eru þeir fyrstu í
sumardagskrá Menningarfélags
Akureyrar í samstarfi við veitinga-
staðinn Bistro 1862 í menningarhús-
inu. Með Sigurði saxófónleikara
spila í tríóinu þeir Þórir Baldursson
á Hammond-orgel og Einar Schev-
ing á trommur.
Hljómsveitin AmabAdamA
verður með tónleika á Græna hatt-
inum annað kvöld, föstudagskvöld. Á
laugardaginn koma þar fram Vök,
sem sigraði í Músíktilraunum árið
2013, og CeaseTone.
Hvetja til niðurgreiðslna í innanlandsflugi
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Í Fjörunni Feðginin Elísabet Ásgrímsdóttir og Ásgrímur Ágústsson við
listaverkið Útþrá eftir Listakonuna í Fjörunni, Elísabetu Geirmundsdóttur.
Rafmagnað afmæli Baldvin Ringsted, sviðstjóri verk- og fjarnáms í Verk-
menntaskólanum á Akureyri, til vinstri, tók við peningjagjöf frá Raftákni
og Johan Rönning í afmæli Raftákns. Árni Viðar Friðriksson, framkvæmda-
stjóri Raftákns, er í miðjunni og til hægri Friðbjörn Bendiktsson, rekstrar-
stjóri Johan Rönning á Akureyri. Hér að ofan er forláta róbot sem starfs-
menn Raftákns forrituðu þannig að hann sótti veigar á flöskum og færði
nærstöddum. Fyrirtækið Vélfag smíðaði gripkló og upptakara af þessu til-
efni þannig að vélmennið gat opnað flöskur sjálft ef fólk kaus það!
Ljósmyndir/Auðunn Níelsson
Útgerðarfélagið Sydvest Fiskeri í
Bergen í Noregi fékk nú á dögunum
afhentan nýjan Cleopatra-bát frá
Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði.
Noregur er stærsti útflutningsmark-
aður Trefja á meginlandi Evrópu.
Að útgerð nýja bátsins stendur
Lars Tore Skår. Báturinn hefur hlot-
ið nafnið Skår Jr en hann mælist 11
brúttótonn. Skår Jr er af gerðinni
Cleopatra 33.
Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT
N90, 410 hestöfl tengd ZF286IV gír.
Báturinn er útbúinn sigl-
ingatækjum af gerðinni JRC og Sim-
rad. Báturinn er einnig útbúinn með
hliðarskrúfu að framan tengdri sjálf-
stýringu bátsins. Báturinn er útbúinn
til veiða með snurvoð. Spil, trommlur
og hífingarbúnaður er frá Hydema.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá
Viking.
Rými er fyrir 12 stk. 380 l kör í lest.
Svefnpláss er fyrir 2-3 í lúkar ásamt
eldunaraðstöðu með eldavél, ör-
bylgjuofni og ísskáp, segir í frétt frá
Trefjum.
Frá stofnun Trefja árið 1977 hefur
fyrirtækið framleitt rúmlega 400
báta. sisi@mbl.is
Ljósmynd/Trefjar
Skår Jr Hinn nýi bátur í reynslusiglingu í Hafnarfjarðarhöfn.
Bátur til
NoregsUndirfataverslun Glæsibæ
Full búð af
glæsilegum
vörum frá
Sendum um allt land