Morgunblaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 60
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Á
bænum Vogum við Mý-
vatn hefur orðið til áhuga-
verður rekstur þar sem
saman fara mjólkurbú,
sauðfjárbú, veitingastaður og nota-
legt gistihús. Ólöf Hallgrímsdóttir
rekur Vogafjós með manni sínum
Jóni Reyni Sigurjónssyni og einnig
koma að rekstrinum bróðir Ólafar,
Leifur, og hans kona Gunnhildur.
Segir Ólöf að ævintýrið hafi byrjað
þegar ljóst þótti að endurnýja þurfti
gamla fjósið á bænum.
„Við byggðum nýtt fjós árið
1998, helmingi stærra en það gamla,
og fórum úr 7 eða 8 kúm upp í 16
mjólkandi kýr. Þetta var ágætis við-
bót en til viðbótar erum við með um
120 kindur. Jörðin okkar er nokkuð
stór en ekki með beitarland og tún
hér heima fyrir stærri bústofn.
Samhliða því vorum við að spá í
hvað við gætum gert fleira til að
styðja við búskapinn og úr varð að
gera litla aðstöðu þar sem væri
hægt að taka á móti gestum og
gangandi, og leyfa þeim að fylgjast
með lífinu í fjósinu í gegnum glugga.
Opnar því kaffihúsið Vogafjós árið
1999, með sætum fyrir rétt um 30
anns.“
Eldað af metnaði
Árið 2004 missir Jón Reynir
vinnuna og var þá brugðið á það ráð
að efla starfsemina á bænum enn
frekar. „Við hugleiddum hvað við
gætum gert til að halda áfram að
búa hér og ákváðum að bæta við
gistihúsi, færa út kvíarnar og bæta
aðstöðu til að selja veitingar. Úr
varð gistihús með 26 herbergjum,
öll með baði og morgunverði. Árið
2009 stækkuðum við veitingasalinn
svo að hann rúmar núna á bilinu 70
til 80 manns.“
Er mikill metnaður lagður í
þjónustuna við gesti og sam-
anstendur t.d. matseðillinn í dag af
ómótstæðilegum réttum þar sem
uppistaðan er hráefni úr héraði og
af bænum sjálfum. „Við bjóðum t.d.
upp á heimatilbúinn mozarella-ost,
og notum einnig mikið okkar eigin
salatost. Bökum við líka hvera-
brauð, reykjum silung og hangikjöt
og lögum snaps hússins með
hvannarfræjum. Allar kökurnar eru
heimagerðar og leggjum við ríka
áherslu á að hafa allt hráefni ferskt
og í hæsta gæðaflokki. Til að halda
sem mestu af virðisaukanum heima
fyrir notum við á veitingastaðnum
allt kjöt sem framleitt er á búinu.“
Eitthvað um að vera allt árið
Reksturinn er í dag í miklum
blóma og eru þau Ólöf og Jón Reyn-
ir með um 20 manns á launaskrá yf-
ir veturinn en á bilinu 35 til 40 yfir
sumartímann. Er Ólöf með réttu
stolt þegar hún bendir á að veitinga-
staðurinn í Vogafjósi er efstur á
lista ferðamannavefsíðunnar Trip-
advisor yfir veitingastaði í Mývatns-
sveit.
Herbergin eru snotur og hlý-
leg, maturinn freistandi og mörgum
þykir skemmtilegt að geta skyggnst
inn í lífið á mjólkurbúi. Hjálpar líka
til að vaxandi straumur ferðamanna
liggur að Mývatni, árið um kring.
„Mikil uppbygging hefur orðið hér á
svæðinu og margt breyst, hér er
meira og minna allt orðið opið allan
ársins hring. Fyrir bæði innlenda og
erlenda ferðamenn er þetta ákveð-
inn upphafspunktur, t.d. í ferðum
upp að Herðubreiðarlindum, í Jök-
ulsárþjóðgarð og inn á hálendið. Að-
eins er um klukkutíma akstur hing-
Sveitasæla og norðurljósadýrð
Straumur gesta liggur
að bænum Vogum árið um
kring Á veitingastaðnum
eru galdraðir fram réttir þar
sem hráefni úr héraði og af
sjálfum bænum er í aðal-
hlutverki
Þægindi Herbergi gistihússins eru vel útbúin, með baði og hita í gólfum. Morgunverður fylgir með gistingunni og Vogar er góður staður til að á um stund t.d. á leið inn a hálendið.
Heimagert Á bænum er m.a. framleitt hangikjöt og hverabrauð.
Freisting Reykti silungurinn er hnossgæti og nostrað við vöruna.Biti Ólöf sýnir eitt af bragðgóðum hangilærunum frá Vogum.
60
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2016
VALS TÓMATSÓSA
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA
MATARferðamennska