Morgunblaðið - 09.06.2016, Síða 64
64 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2016
✝ SigfúsHreiðarsson
fæddist í Reykja-
vík 19. apríl 1956.
Hann lést á
Krabbameinsdeild
Landspítalans 28.
maí 2016.
Foreldar hans
eru Hreiðar Holm,
f. 14. apríl 1928,
og Sigríður
Ólafsdóttir, f. 9.
desember 1927, d. 13. október
2013. Systkini Sigfúsar eru:
Ólafur, f. 7. október 1949, Pét-
ur, f. 10. júní 1954, Sigrún, f.
Tómas Björn. 3) Edda Sigfús-
dóttir, f. 11. desember 1989,
maki Stephen Nielsen. Sonur
þeirra er Emil Axel.
Eftir að hafa lokið
gagnfræðaprófi fór Sigfús í
Iðnskólann í Reykjavík og
lærði þar húsasmíði. Hann fór
á samning hjá Gluggasmiðj-
unni og vann því næst hjá Úlf-
ari Gunnari Jónssyni húsa-
smíðameistara. Eftir nokkur
ár í smíðinni byrjaði Sigfús
hjá Morgunblaðinu, þar vann
hann í 28 ár. Síðustu árin
starfaði hann svo aftur við
smíðar.
Útför Sigfúsar fer fram frá
Grensáskirkju í dag, 9. júní
2016, og hefst athöfnin klukk-
an 13.
27. júlí 1960, og
Elín, f. 23. sept-
ember 1966.
Þann 6. maí
1983 giftist Sigfús
Önnu Hafliðadótt-
ur, f. 11. ágúst
1957. Börn þeirra
eru: 1) Hafliði Sig-
fússon, f. 1. júlí
1979, maki Berg-
lind Guðrún Chu.
Sonur Hafliða er
James Eiríkur. 2) Hildur Sig-
fúsdóttir, f. 6. júní 1983, maki
Gunnar Þór Tómasson. Börn
þeirra eru Lára Björg og
Það er erfitt að trúa því að
elsku besti pabbi okkar sé lát-
inn. Hann var okkur öllum
ótrúlega góður og var alltaf til
staðar þegar maður þurfti á
honum að halda.
Hann var börnunum okkar
besti afi í heimi og vildum við
óska að hann hefði getað fengið
að njóta afahlutverksins lengur.
Hann naut þess í botn að leika
við barnabörnin, spjalla og
dekra við þau, enda litu þau öll
upp til hans.
Hans verður sárt saknað,
félagsskapar hans, húmorsins
og lífsgleðinnar sem hann hafði
að geyma.
Við lærðum ótal margt af
honum, hann var og er okkar
fyrirmynd. Hann tók lífinu létt
og naut þess að vera til. Litlir
hlutir glöddu pabba og hann
hlúði vel að fjölskyldu sinni og
vinum.
Við þökkum fyrir allar góðu
stundirnar sem við áttum og
erum pabba að eilífu þakklát
fyrir allt sem hann er og var
okkur og gerði fyrir okkur.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta,
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Edda, Hafliði og Hildur.
Mig langar til að minnast
vinar míns, Sigfúsar Hreiðars-
sonar, með nokkrum orðum.
Það var fyrir um það bil
fimmtíu og þremur árum sem
við kynntumst, þá sjö eða átta
ára gamlir að byrja í Álftamýr-
arskóla. Fyrsti kennari okkar
þar hét Málfríður og eru ein-
hverjar fyrstu minningarnar
frá þessum tíma þær að við
Fúsi sitjum fyrir utan skrif-
stofu Sverris yfirkennara að
bíða eftir skammarræðu fyrir
að vera óþekkir í tíma hjá Mál-
fríði.
En við stækkuðum og feng-
um að lokum Sigurð Dagsson
sem umsjónarkennara. Siggi
var þá landsliðsmarkmaður og
Valsari og naut gríðarlegrar
virðingar hjá okkur strákunum.
Þessi kynni leiddu til þess að
við Fúsi ákváðum að hefja fót-
boltaæfingar og þrátt fyrir að
búa í þáverandi hjarta Fram-
arahverfisins, kom ekki annað
til greina en að fara í Val, eins
og Siggi.
En það átti ekki fyrir okkur
að liggja að verða miklar fót-
boltastjörnur og létum við að
lokum nægja að fylgjast með
afrekum Sigga.
En árin liðu og við Fúsi
fylgdumst að í gegnum Álfta-
mýrarskóla, svo Ármúlaskóla
og að lokum Iðnskólann. Fúsi
var alltaf einstaklega hjálpsam-
ur og alltaf til í að koma og að-
stoða í hverskyns framkvæmd-
um. Það var gott að eiga hann
að þegar við Magga vorum að
koma okkur upp fyrstu íbúðinni
og ekki síður seinna þegar við
tókum í gegn eldra hús í Mos-
gerði. Margt af þessu hefðum
við ekki getað gert án hans
hjálpar.
Svo kom að nokkrum tíma-
mótum hjá okkur haustið 1993.
Ég hafði þá nokkru áður
kynnst golfi í USA og þarna
um haustið ætluðum við nokkr-
ir félagar að spila hring á Hval-
eyrinni. Ég plataði Fúsa til að
koma með og hann labbaði
hringinn með okkur, sló nokkur
högg, púttaði og tók þátt í
spjallinu. Og það var ekki að
sökum að spyrja, hann varð al-
veg heillaður af þessu sporti.
Og þar með hófst golfferill-
inn hjá okkur báðum. Fljótlega
kom að því að við fórum að
finna hjá okkur framför og
ákváðum að ganga í golfklúbb.
Við byrjuðum í Bakkakoti, fór-
um þaðan í Odd og enduðum
svo í GR. Sumrin voru farin að
fara að mestu í golf og þegar
við hittumst var um fátt annað
rætt en golf.
Konur okkar, þær Anna og
Magga, sáu fljótt að ef þær
ætluðu að eiga einhver sam-
skipti við okkur yfir sumartím-
ann yrðu þær að grípa til sinna
ráða.
Og það varð úr að þær próf-
uðu að koma með. Og viti menn
þær urðu báðar alveg heillaðar
og úr varð hið ágætasta fjög-
urra manna holl. Næstu árin og
áratugina spiluðum við saman
bæði hér heima og erlendis og
var golfið í töluverðum forgangi
hjá okkur öllum.
Fúsi var nokkuð fljótur að ná
góðum tökum á golfinu og
lækkaði forgjöfin hans hratt á
þessum tíma og hæfileikar hans
í golfi sjást ekki síst á því að
hann fór þrisvar sinnum holu í
höggi. Geri aðrir betur.
En golfáhuginn var það mik-
ill að fyrir nokkrum árum
ákváðum við Fúsi og nokkrir
golffélagar að kaupa okkur
golfhermi. Fúsi sá að mestu um
að koma þessu upp og stand-
setja húsnæði fyrir þetta og
eins og vænta mátti af honum
varð til ein glæsilegasta golf-
hermaaðstaða á landinu. Allt
sem Fúsi tók að sér að gera,
gerði hann vel og það sést ekki
síst á því hvernig hann leysti
þetta verkefni.
Það var svo þar, í golfherm-
inum okkar, fyrir aðeins fáein-
um vikum sem við spiluðum
okkar síðasta hring saman.
Við kveðjum einstakan og
góðan vin í dag og víst er að
hans Fúsa verður sárt saknað.
Við Magga sendum innilegar
samúðarkveðjur til Önnu og
fjölskyldunnar.
Þórir Lárusson.
Sigfús Hreiðarsson vann um
langt árabil á Morgunblaðinu
og á hér marga samstarfsmenn
sem minnast góðs drengs að
leiðarlokum.
Sigfús var skírður í höfuðið á
ömmubróður sínum, Sigfúsi
Jónssyni, sem var fyrsti fram-
kvæmdastjóri Árvakurs hf. á
árunum 1923-1968. Tengsl hans
og Morgunblaðsins voru því
skiljanlega bundin sterkum
böndum.
Sigfús starfaði hjá Árvakri í
27 ár, frá 1981-2008, var um-
sjónamaður fasteigna og sinnti
auk þess ýmsum tilfallandi
verkefnum.
Hann var lærður trésmiður
og laghentur. Hann var auk
þess góður golfari og stundaði
golfið gjarnan með vinnufélög-
um og vinum á Morgunblaðinu.
Hann var vel liðinn af sam-
starfsmönnum sínum, bóngóð-
ur, þægilegur og glaðlegur fé-
lagi. Hans var því sárt saknað
þegar hann lauk störfum hér
árið 2008.
Morgunblaðið og starfsmenn
þess, núverandi og fyrrverandi,
senda fjölskyldu Sigfúsar ein-
lægar samúðarkveðjur.
Guðbrandur Magnússon.
Skein yfir landi sól á sumarvegi
og silfurbláan Eyjafjallatind
Þetta magnaða upphaf Gunn-
arshólma Jónasar Hallgríms-
sonar kemur upp í hugann þeg-
ar ég sit hér í glampandi sól á
pallinum á Goðasteini og minn-
ist vinar míns Sigfúsar Hreið-
arssonar. Hér áttum við marg-
ar ánægjustundir.
Það er margs að minnast, því
margt hefur verið brallað á
þeim rúmu 40 árum sem við
Fúsi höfum þekkst.
Ég kynntist Önnu og Fúsa í
gegnum Svönu mína og úr varð
traust vinátta sem hefur eflst
með árunum.
Við getum rifjað upp ferð í
Hraunborgir í Grímsnesi með
krakkana litla.
Fertugsafmæli Önnu í Mog-
gabústað í Úthlíð, aðventuferð-
ir til Kaupmannahafnar, Menn-
ingarnætur í miðborg
Reykjavíkur, þorrablót Stjörn-
unnar, fjölda samverustunda á
heimili Önnu og Fúsa og hjá
okkur Svönu heima eða á Goða-
steini.
Alltaf glatt á hjalla, stundum
spilað, alltaf borðaður góður
matur og oftast drukkið hóf-
lega.
Það er ekki hægt að minnast
Fúsa án þess að nefna golfið.
Það er kannski sérkennilegt
hvað við Fúsi náðum vel saman
þrátt fyrir um margt ólík
áhugamál, en kannski er það
vegna þess að ég hef bara einu
sinni unnið hann í golfi, það var
reyndar eina skiptið sem við
lékum golf saman. Við slógum
sinn boltann hvor í regnhlíf í
sveitinni okkar fögru, Fljóts-
hlíðinni, ég hitti en Fúsi ekki.
Fúsi var sem kunnugt er þre-
faldur Einherji þó hann hafi
ekki farið holu í höggi í þetta
sinn. Ég spila sem sagt ekki
golf.
Oft snerum við Fúsi bökum
saman í pólitíkinni, sérstaklega
gátu umræður orðið heitar þeg-
ar við sameinuðumst um að
verja flokkinn okkar og for-
ystumenn hans fyrir á stundum
að okkar mati, vinstrisinnuðum
sjónarmiðum eiginkvenna okk-
ar. Kannski eru þær bara hóf-
stilltar en við of langt til hægri,
hver veit ?
Anna og Fúsi hafa verið dug-
leg að heimsækja okkur í sveit-
ina. Við vorum t.d. saman á
Goðasteini nóttina þegar gaus á
Fimmvörðuhálsi, 20. mars 2010.
Okkur fannst það upplifun að
vera fyrst vakin af nágrönnum
og síðan komu lögreglan og
björgunarsveitirnar örfáum
mínútum síðar til að tryggja
rýmingu sveitarinnar.
Hugur okkar er hjá Önnu,
krökkunum og fjölskyldunni
allri. Megi minningin um góðan
dreng lifa.
Eins og segir í Gunnars-
hólma Jónasar: „Farðu vel,
bróðir og vinur.“
Blessuð sé minning Sigfúsar
Hreiðarssonar
Páll Grétarsson.
Sigfús Hreiðarsson HINSTA KVEÐJA
Að eiga vin er vandmeðfarið,
að eiga vin er dýrmæt gjöf.
Vin, sem hlustar, huggar, styður,
hughreystir og gefur von.
Vin sem biður bænir þínar,
brosandi þér gefur ráð.
Eflir þig í hversdagsleika
til að drýgja nýja dáð.
(Ingibjörg
Sigurðardóttir)
Hvíl í friði, kæri vinur.
Við tökum svo hring í
efra þegar við hittumst
næst.
Arnar Unnarsson.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR
(Unna),
lést á hjúkrunarheimilinu Nesvöllum,
Reykjanesbæ, fimmtudaginn 2. júní.
Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju
þriðjudaginn 14. júní kl. 13.
.
Þorsteinn Eggertsson Jóhanna Fjóla Ólafsdóttir
Guðfinna Eggertsdóttir Sigvaldi Jósafatsson
Jón Þ. Eggertsson Hólmfríður Guðmundsdóttir
Guðrún Eggertsdóttir
og fjölskyldur
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
ARNBJÖRG SÚSANNA
SIGURÐARDÓTTIR
frá Stóra-Kálfalæk,
f. 8. ágúst 1921,
sem lést þann 21. maí, verður jarðsungin
frá Bústaðakirkju mánudaginn 13. júní klukkan 13.
.
Steinunn Hjartardóttir, Kristján Ásgeir Möller,
Anna Hjartardóttir, Árni Valdemarsson,
Guðrún Arnbjargardóttir,
Sigrún Hjartardóttir, Einar Steinþór Traustason
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
INGIBJÖRG KRISTÍN LÚÐVÍKSDÓTTIR,
sem lést fimmtudaginn 2. júní, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 10. júní klukkan 15.
Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð, en þeir sem vilja
minnast hennar vinsamlega láti hjúkrunarheimilið Sóltún eða
líknarfélög njóta þess.
.
Björn Snorrason,
Davíð Oddsson, Ástríður Thorarensen,
Logi Gunnarsson, Eva Klingenstein,
barnabörn og barnabarnabörn.
Útför ástkærs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
GUÐJÓNS GUÐJÓNSSONAR
verslunarstjóra,
Ásholti 2,
er lést 18. maí, fer fram frá Háteigskirkju
miðvikudaginn 15. júní klukkan 13.
.
Auður Ellertsdóttir,
Guðjón Þór Guðjónsson, Halla Hjaltested,
Anna Guðjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, dóttir, systir, amma og
langamma,
MARTA BALDVINSDÓTTIR
Bergvegi 5, Rekjanesbæ,
lést í faðmi fjölskyldunnar 6. júní.
Þökkum starfsfólki á Hrafnistu Nesvöllum
fyrir einstaka umönnun og hlýju.
.
Sigurður B. Guðmundsson,
Guðmundur Sigurðsson, Kolbrún Geirsdóttir,
Baldvin Sigurðsson, Guðlaug Sveinsdóttir,
Stefán Þ. Sigurðsson, Jórunn S. Geirsdóttir,
Jón G. Sigurðsson, Brynja Þorsteinsdóttir,
Ægir Sigurðsson, María Björnsdóttir,
Bjarki Sigurðsson, Hólmfríður Jónsdóttir,
Smári Sigurðsson, Heiða Guðmundsdóttir,
Nanna G. Sigurðardóttir, Sigurður Erlingsson,
Guðrún Sigurðardóttir, Hans Kristian Muller,
Nanna Stefánsdóttir,
systkini, barnabörn og
barnabarnabörn.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein-
ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs-
ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi
aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal
senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið
sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta
umsjónarmenn minningargreina vita.
Minningargreinar