Morgunblaðið - 09.06.2016, Side 66
66 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2016
✝ ÓlafurRagnarsson
fæddist í Reykjavík
14. september
1945. Hann lést á
heimili sínu, Vest-
urbergi í Reykjavík
29. maí 2016.
Foreldrar hans
voru Ragnar
Guðnason, f. í
Reykjavík 12. apríl
1919, d. 29. desem-
ber 1975, og Lauf-
ey Hermannsdóttir, f. í Hafn-
arfirði 1. nóvember 1918, d. 23.
mars 1985.
Ólafur hóf sambúð með Ernu
Valgerði Jónsdóttur árið 1978,
f. á Hjalteyri 12. september
1948. Börn þeirra eru: 1) Ragn-
ar Jón Ólafsson, f. 14. desember
1980, sonur hans er Óttarr Logi.
2) Kristín Ólafsdóttir, f. 18. sept-
ember 1983, maki Trausti Snær
Kristjánsson. Börn þeirra eru
Viktor Máni, Thelma Sóley og
Aníta Máney.
Börn Ólafs eru:
1) Ólafía Ólafs-
dóttir, f. 24. ágúst
1965, sonur hennar
er Þórður Valtýr.
2) Laufey Ólafs-
dóttir, f. 24. ágúst
1965, eiginmaður
Ingi Rafn Braga-
son. Börn þeirra
eru Sigurður og
Steindór.
Ólafur ólst upp í
Reykjavík, var einkabarn for-
eldra sinna. Hann fór ungur að
vinna á sjó með föður sínum, fór
síðan til vinnu erlendis í nokkur
ár, starfaði hjá Flugleiðum í
nokkur ár en síðustu 20 árin
vann hann hjá Reykjavíkurborg
en síðasta starf hans þar var
sem húsvörður í Íþróttahúsi
Seljaskóla.
Útför Ólafs fer fram í Fella-
og Hólakirkju í dag, 9. júní 2016,
og hefst athöfnin klukkan 13.
Elsku pabbi, nú er komið að
kveðjustund. Minningarnar eru
margar, þú varst alltaf svo
brosmildur og hress. Það var
svo gaman að vera í kringum
þig, alltaf hlátur og mikill húm-
or.
Ég man þegar ég var lítil fór
ég ófá skipti með þér út í búð,
það var gaman en samt svo erf-
itt. Þú þekktir/þekkir svo
marga og stoppaðir hjá öllum
og heilsaðir. Talaðir tímunum
saman við alla. Ein stutt búð-
arferð tók marga tíma.
Þú varst óvenju vinamargur
enda mikil félagsvera. Það er
þinn besti kostur. Það voru all-
ir vinir þínir, dæmdir aldrei
neinn og vildir vera vinur allra.
Þú heilsaðir þótt þú þekktir
manneskjuna ekki og brostir.
Þú ættir að vera fyrirmynd
allra. Þú ert a.m.k. mín fyr-
irmynd.
Pabbi þú varst alltaf tilbúinn
til að hjálpa mér og varst alltaf
til staðar. Þú varst reyndar
alltaf svo duglegur að hjálpa
öllum í kringum þig.
Pabbi elskaði tónlist. Oft
þegar ég kom heim úr skól-
anum þegar ég var lítil var
hann pabbi heima með tónlist-
ina á hæsta, einn í stofunni og
auðvitað dansandi. Það lýsir
honum mjög vel.
Elsku pabbi, aldrei átti ég
ömmu og afa en þú náðir svo
sannarlega að bæta það upp.
Takk fyrir allar yndislegu
minningarnar. Takk fyrir að
vera svona frábær pabbi og
yndislegur afi. Takk fyrir alla
þolinmæðina. Ég trúi því að þú
sért kominn á góðan stað.
Þín dóttir,
Kristín.
Nú hefur enn einn vinkon-
upabbinn fallið í valinn. Það er
svo ósanngjarnt þegar dætur
og synir missa foreldri sitt, enn
á besta aldri. Ólafi kynntist ég
þegar við Kristín, dóttir hans
urðum vinkonur 16 ára gamlar
í Kvennaskólanum í Reykjavík.
Ég varð fyrst til að fá bílprófið
og sótti Kristínu oft á rúntinn
og var þá boðið upp alla stigana
í Vesturberginu. Við Ólafur átt-
um eitt sameiginlegt en það var
góður smekkur á tónlist; dýrk-
un á Elvis Presley. Honum
þótti held ég gaman að því að
hitta svona unga stúlkukind
sem hafði dálæti á uppáhalds
tónlistarmanni hans og sýndi
mér oft myndina af goðinu, sem
hann hafði uppi á vegg, og
safnið sitt.
Ég held að allir, sem þekktu
til Ólafs geti borið vitni um
samræðusnilli hans.
Hann var mjög félagslyndur
og glaðlegur, sannkallaður in-
dælismaður með meiru, sem
spurði alltaf um hagi mína af
miklum áhuga. Oftar en ekki
rakst ég á Ólaf og Ernu á búð-
arölti og var þá alltaf eins og
nátengd skyldmenni væru að
hittast og samræðurnar
spruttu. Ólafur var afar stoltur
af barnabörnum sínum og
áhuginn á þeim leyndi sér ekki.
Í samtali sem ég átti við þau
um daginn létu þau í ljós sökn-
uð sinn og minntust afa síns
sem góðs manns sem oft gaf
þeim dót. Afi dekraði við þau
og talaði oft um þau í samtölum
okkar, sem í seinni tíð voru þó
orðin heldur fá. Ólafur veiktist
alvarlega fyrir ári síðan, en fyr-
ir náð og miskunn náði hann
sér og fékk aðeins meiri tíma
með fólkinu sínu til að láta
drauma sína og þeirra rætast
alveg eins og segir í laginu
Flaming Star með Elvis Pres-
ley, en Ólafur deildi því lagi á
Fésbókinni, sem hann tengdist
nýlega.
Elsku besta Kristín mín,
Trausti og börn, Ragnar og
fjölskylda, ég votta ykkar mína
dýpstu samúð. Það eru erfiðir
tímar núna en þeir líða hjá og
framtíðin verður aftur björt og
hlý, full af ljúfsárum minning-
um.
Kristín, Guðni og börn.
Ólafur Ragnarsson
✝ Frans Berg-mann
Guðbjartsson fædd-
ist í Reykjavík 9.
apríl 1946. Hann
lést á Landspít-
alanum 3. júní
2016.
Foreldrar hans
voru Guðbjartur
Bergmann Frans-
son, f. 12. septem-
ber 1920, d. 1995,
og Guðrún Dagbjört Frímanns-
dóttir, f. 16. júlí 1923, d. 2002.
Systkini hans voru: 1) Birgir
Bergmann Guðbjartsson, f.
1944, d. 1988, maki Þóra Guð-
rún Valtýsdóttir, f. 1943, d.
2004. 2) Davíð Bergmann Guð-
bjartsson, f. 1948, maki Þuríður
Aðalsteina Matthíasdóttir, f.
1939. 3) María Bergmann Guð-
bjartsdóttir, f. 1951.
rún. 4) Þröstur Guðberg Frans-
son, f. 1976, maki Agata Platek,
f. 1978. Börn hans : a) Íris Sól, b)
Daníel Arnar og c) Ingibjörg
Elka. 5) Sonja Björg Frans-
dóttir, f. 1982, maki Frosti
Gylfason, f. 1979. Börn þeirra:
a) Gylfi Snær, b) Kristín Maren
og c) Sóley Rut. 6) Frans Ágúst
Fransson, f. 1984, og sonur hans
Óðinn Þór.
Frans ólst upp í Lauganes-
hverfinu og Àsgarði. Hann gekk
í Laugarnes- og Breiðagerðis-
skóla. Eftir grunnskóla fór hann
á sjóinn í stuttan tíma. Hann
lærði Letters og offset-prentun
hjá Kassagerð Reykjavíkur.
Hann starfaði hjá Umbúðamið-
stöðinni og í Kassagerðinni í
framhaldi af því. Frans vann
ekki bara við prentun, heldur
vann hann við bílamálun, við-
gerðir og fleira. Hann starfaði
hjá Þjóðleikhúsinu með konu
sinni í tíu ár ásamt því að flytja
inn hús frá Lettlandi og byggja
út um allt land.
Útför Frans fer fram frá
Vídalínskirkju í Garðabæ í dag,
9. júní 2016, klukkan 13.
Frans lætur eftir
sig eiginkonu, Guð-
rúnu Scheving
Sigurjónsdóttur, f.
17. desember 1946.
Þau áttu sex börn:
1) Guðrún Sigríður
Laukka, f. 1969,
maki Tommi
Laukka, f. 1970.
Börn þeirra: a)
Bríet Una, b) Kol-
beinn Bjarki, c)
Ágúst Logi og d) Johan Alex-
ander. 2) Guðbjartur Smári
Fransson, f. 1972, maki Ósk
Guðvarðardóttir, f. 1974. Börn
þeirra: a) Arnar Þór, d. 1999, b)
Erna Margrét og c) Karen
Tanja. 3) Þorsteinn Svavar
Fransson, f. 1975, maki Marsibil
Ingibjörg Hjaltalín, f. 1975.
Dætur þeirra: a) Snædís Brá, b)
Lára Guðný og c) Ísabella Guð-
Elsku pabbi, afi og tengda-
faðir.
Okkur fjölskylduna setur
hljóða, orðin sitja föst í háls-
inum, hugsanirnar flæða um
kollinn, minningar, já, minning-
ar sem eru manni kærar. Þú
varst ekki að fara frá okkur, þú
ætlaðir að ná fyrri styrk og fara
að vinna, þér líkaði ekki að sitja
auðum höndum. Líf þitt og
mömmu var ekki alltaf dans á
rósum en þú hafðir alltaf trú
sem fylgdi þér ætíð. Þó svo
höfnunin, Gróa á Leiti og bak-
nag herjaði á okkur fjölskylduna
þá var þér sama, þú vissir hvað
var rétt. Greiðvikni þín var ein-
stök og var hún oftast misnotuð,
þá sérstaklega hjá þeim nán-
ustu, en þér var sama, þú elsk-
aðir þau þó svo að dyrunum
væri lokað á þig og okkur börn-
in, þá skildum við ekki af hverju
þú sást það ekki, en þér var
sama, elsku pabbi minn, og afi,
þú elskaðir, sama hvað. Barna-
börnin þín dáðu þig og elskuðu
eins og þú dáðir þau og elskaðir,
hláturinn, kátínan og gleði ein-
kenndi þig, þú elskaðir lífið þó
lífið hafi ekki alltaf leikið við
þig. Hjarta okkar er fullt af sorg
en líka þakklæti og gleði. Sorgin
er djúp, að heyra ekki hláturinn
og sönginn þinn, sorgin að fá
ekki þitt mjúka faðmlag, sorgin
að eiga engar samræður um líf-
ið, uppfinningar og vinnu, sorgin
að nærvera þín og andardráttur
sé farinn. Þakklæti fyrir að eiga
þig sem föður, þakklæti fyrir
nærveru þína og orð, þakklæti
fyrir það, elsku pabbi, afi og
tengdafaðir, fyrir að vera þú
sjálfur, alltaf. Gleði er í hjarta
okkar vegna góðu minninganna
um þig, gleði yfir að hafa gengið
þennan holótta veg með þér,
sem mótaði þig og okkur og
gerði okkur að því sem við erum
í dag. Elsku pabbi, afi og
tengdafaðir, við elskum þig og
söknum þín, hjarta okkar og sál
mun varðveita minningar um
þig að eilífu.
Hvíld í friði, hjartans gull.
Þín dóttir, tengdasonur og
barnabörn,
Guðrún Sigríður,
Tommi Eerik,Briet
Una, Kolbeinn Bjarki,
Ágúst Logi, Johan Alex.
Ekkert varir að eilífu og nú
ertu farinn frá okkur, elsku
pabbi, tengdapabbi og afi. Þú
skilur eftir stórt skarð því þú
varst stór hluti af lífi okkar. Við
eigum um þig ótal margar góðar
og ljúfar minningar. Við höfum
ferðast oft saman og þú hafðir
svo gaman af því að ferðast og
njóta lífsins. Það var líka alltaf
gaman að fá þig í heimsókn og
koma til ykkar mömmu, enda
höfðingjar heim að sækja.
Þú lést ekkert stoppa þig og
hélst alltaf ótrauður áfram þó á
móti blési. Þú hafðir háleitar
hugmyndir og hikaðir ekki við
að framkvæma þær. Þú varst
sannkallaður þúsundþjalasmið-
ur og ótrúlega hjálpsamur, alltaf
var hægt að treysta á að þú
myndir koma okkur til aðstoðar
ef við þurftum á að halda.
Síðustu árin áttir þú erfitt
með ýmsar hreyfingar vegna
veikinda í kjölfar blóðtappa og
þá hlupu stelpurnar á móti þér
þegar þú komst röltandi til okk-
ar og leiddu þig áleiðis heim eða
hjálpuðu til við að reima skóna
þína, enda varstu í miklu uppá-
haldi hjá stelpunum okkar.
Þú varst svo góður og það var
oft mikið fjör í kringum þig. Þú
hafðir svo smitandi hlátur og
hélst áfram að hlæja og gleðja
aðra fram að síðustu stundu. Við
söknum þín svo sárt.
Þinn sonur
Þorsteinn, Marsibil,
Snædís, Lára og
Ísabella.
Elsku pabbi.
Fuglarnir syngja, grasið
grænkar, sólin skín á himni og
allt iðar af lífi en þú ert ekki
hér.
Er ég hitti þig í hinsta sinn
var kalt og fanndrífa yfir jörð-
inni, ljósaseríur í gluggunum,
söngur og gleði sem fylgir þeirri
hátíð, jólunum.
Veikindi þín voru ekki þess
háttar að við byggjumst við að
þú færir svo snöggt, ég er orð-
laus og hjarta mitt brostið.
Er ekki að átta mig á enn að
faðminn þinn fæ ég ekki aftur,
hláturinn þinn ómar í höfði mér.
Ég er svo þakklát fyrir allar
þær stundir sem ég hef fengið
með þér og stendur mér ofar-
lega í huga ferðalag sem þú, ég
og Gylfi sonur minn fórum á
húsbílnum þínum, mikil gleði og
hlátur, þá helgina mun ég varð-
veita, þessar minningar, og leita
í þær þegar mig vantar faðmlag
frá þér.
Þú varst yndislegur afi, elsk-
aðir að syngja fyrir barnabörnin
þín, það munu þau alltaf muna.
Ferðalög og fólk veitti þér
mikla gleði, svo mikil félagsvera
sem þú varst.
Þú varst opin persóna og for-
vitin um aðra siði og menningu
en það hef ég erft frá þér.
En nú hefur þú lagt út í
ferðalag sem þú verður að fara
einn þessu sinni en þar hefur þú
hitt fullt af fólki sem þú hefur
saknað, þínir bestu vinir og fé-
lagar hafa örugglega tekið vel á
móti þér.
Takk, elsku pabbi, fyrir allt,
sjáumst seinna.
Þín dóttir, tengdasonur og
barnabörn
Sonja, Frosti, Gylfi,
Kristín og Sóley.
Góður vinur og samferðamað-
ur til 47 ára, Frans Guðbjarts-
son, er látinn sjötugur að aldri.
Kynni okkar Fransa hófust árið
1969 þegar við Anna festum
kaup á fyrstu íbúðinni okkar að
Laugarnesvegi 40. Á sama tíma
kaupa Fransi og Guðrún einnig
íbúð í þessu nýja húsi. Við áttum
það sameiginlegt, þetta unga
fólk, að við vorum að byrja þetta
hefðbundna streð, að koma okk-
ur upp eigin húsnæði og stofna
fjölskyldu. Við nánari kynni við
þessa nýju nágranna, Fransa og
Guðrúnu konu hans, myndaðist
svo sú vinátta sem alla tíð hefur
einkennt samband okkar og ver-
ið hluti af okkar daglega lífi.
Fransi hafði mjög notalega
nærveru. Það var alltaf gott og
skemmtilegt að ræða heimspóli-
tíkina eða minni og einfaldari
málefni við Fransa, því hann
hafði jafnan svör og lausnir við
flestu er varðaði umræðuefnið
hverju sinni. Hann hafði og
sterkar skoðanir á mönnum og
málefnum og sat sjaldnast á
meiningum sínum. Þá bjó hann
yfir mikilli hugmyndaauðgi og
var óragur að fara nýjar slóðir,
ef því var að skipta. Framsýni
og bjartsýni var Fransa í blóð
borin og hefur þessi eiginleiki
örugglega að einhverju leyti
markað lífsgöngu hans.
Sem ungur maður lærði
Fransi prentiðn og gegndi hann
því starfi um tíma. En það duld-
ist engum sem hann þekktu, að
allt það er varðaði bíla og önnur
tæki höfðaði sterkt til hans.
Fransi var mjög góður réttinga-
maður og bílasprautari og má
segja að þegar á allt er litið, hafi
sú vinna verið ævistarf hans, þó
hann hafi einnig fengist við önn-
ur og óskyld störf. Ég get fullyrt
að þeir eru margir vinirnir og
kunningjarnir sem notið hafa
greiðvikni Fransa í gegnum tíð-
ina og ekki alltaf þurft að gjalda
fullu verði. Greiðvikni og hjálp-
semi Fransa við þá mörgu sem
til hans leituðu, gerði það að
verkum að vinnudagur hans var
ekki alltaf samkvæmt klukkunni.
Frans og Guðrún eignuðust
sex börn og því ljóst að heim-
ilishaldið hefur oft á tíðum verið
þungt. En þar stóð Guðrún
vaktina og gætti þess að engan
skorti neitt. Kæri vinur, það er
svo margt sem segja mætti þeg-
ar rýnt er í gengin spor, en það
verður ekki gert hér. Það verð-
ur varðveitt í fjársjóði góðra
minninga, minninga um góðan
vin, um góðan dreng sem í dag
er kvaddur hinstu kveðju. Já líf-
ið tekur stöðugum breytingum.
Í vanmætti okkar horfum við á
eftir góðum vinum og samferða-
fólki, fólki sem hafði jafnvel
mótandi áhrif á okkur sem
manneskjur með einum eða öðr-
um hætti. Við þessháttar kring-
umstæður getum við aðeins
þakkað fyrir það sem að baki er
og óskað þess að aftur verði
fagnaðarfundir og að við fáum
aftur notið nærveru þeirra sem
farnir eru og okkur eru kærir.
Góði vinur, far þú í friði og
takk fyrir öll árin sem við Anna
máttum eiga þig að, sem vin og
gleðigjafa. Elsku Guðrún og
börnin ykkar öll, tengdabörn og
aðrir ástvinir, sendum ykkur
okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Megi almáttugur Guð umvefja
ykkur í kærleika sínum og náð.
Gísli H. Árnason.
Frans
Guðbjartsson
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Hugrún Jónsdóttir
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Við önnumst alla þætti undir-
búnings og framkvæmd útfarar
ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu
og umhyggju að leiðarljósi
og af faglegum metnaði.
Kærar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför vinar míns og eiginmanns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
VILHJÁLMS ÞORSTEINS
ÞORSTEINSSONAR
fiskifræðings,
Heiðarhjalla 41,
Kópavogi.
Starfsfólki Sunnuhlíðar er sérstaklega þakkað fyrir alúð og hlýju
við umönnun hans.
.
Stefanía Júlíusdóttir,
Iða Brá Vilhjálmsdóttir, Andrés Jónsson,
Þóra Vilhjálmsdóttir,
Loftur Kristinn Vilhjálmsson, Björg Alfreðsdóttir,
Árni Vilhjálmsson,
Eva Vilhjálmsdóttir,
afabörn og langafabörn.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Minningargreinar