Morgunblaðið - 09.06.2016, Síða 75
MENNING 75
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2016
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Lau 11/6 kl. 15:00 aukasýn Lau 11/6 kl. 19:30 Lokasýn Sun 12/6 kl. 15:00 aukasýn
Sýningum lýkur í vor!
Mugison (Kassinn)
Fim 9/6 kl. 20:30 Fös 17/6 kl. 20:30 Fös 24/6 kl. 20:30
Fös 10/6 kl. 20:30 Lau 18/6 kl. 20:30 Lau 25/6 kl. 20:30
Sun 12/6 kl. 20:30 Sun 19/6 kl. 20:30 Sun 26/6 kl. 20:30
Fim 16/6 kl. 20:30 Fim 23/6 kl. 20:30
Miðasala á mugison.com
DAVID FARR
MAMMA MIA – „Stórkostlegt“ HA Kastljós.
AUGLÝSING ÁRSINS – ★★★★ – M.G. Fbl.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Fim 9/6 kl. 20:00 Þri 21/6 kl. 20:00 Sun 11/9 kl. 20:00
Fös 10/6 kl. 20:00 Mið 22/6 kl. 20:00 Fös 16/9 kl. 20:00
Lau 11/6 kl. 20:00 Fim 23/6 kl. 20:00 Lau 17/9 kl. 20:00
Sun 12/6 kl. 20:00 Fös 24/6 kl. 20:00 Sun 18/9 kl. 20:00
Mið 15/6 kl. 20:00 Lau 25/6 kl. 20:00 Fös 23/9 kl. 20:00
Fim 16/6 kl. 20:00 Sun 26/6 kl. 20:00 Lau 24/9 kl. 20:00
Lau 18/6 kl. 20:00 Fös 9/9 kl. 20:00 Sun 25/9 kl. 20:00
Sun 19/6 kl. 20:00 Lau 10/9 kl. 20:00 Fös 30/9 kl. 20:00
Uppselt út leikárið! Sýningar haustsins komnar í sölu.
Njála (Stóra sviðið)
Fim 29/9 kl. 20:00 Mið 5/10 kl. 20:00 Mið 12/10 kl. 20:00
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
„Það verður norrænn bragur yfir
þessum tónleikum enda haldnir í
Norræna húsinu,“ segir Kolbeinn
Jón Ketilsson tenórsöngvari, sem
verður með tónleika ásamt Ástríði
Öldu Sigurðardóttur, píanóleikara, í
Norræna húsinu í kvöld, fimmtudag-
inn 9. júní, í Norræna húsinu klukk-
an 20:30.
Yfirskrift þessarar tónleikaveislu
sem verður í allt sumar er Artic
Concerts og þemað eins og nafnið
gefur til kynna norrænt.
Kolbeinn og Ástríður Alda munu
flytja nokkrar af perlum íslenskra
sönglaga í bland við norska og nor-
ræna tónlist.
Menntaður í Vínarborg
Kolbeinn Jón Ketilsson lauk burt-
fararprófi frá Nýja Tónlistarskól-
anum og síðar frá Tónlistarháskóla
Vínarborgar. Hann hefur síðan
sungið mörg veigamestu tenórhlut-
verk óperubókmenntanna.
Aðspurður hvernig hann hafi
fundið tíma í þéttu prógrammi sínu
fyrir þessa tónleika segir Kolbeinn
að þetta hafi dottið inn á heppilegum
stað þegar Guðni hafði samband við
hann. En Guðni Franzson er skipu-
leggjandi tónleikanna.
„Ég hef gaman af þessu þema,“
segir Kolbeinn. „Við erum með
gamla rímu þarna fljótlega og tökum
síðan þverskurð af þessum fallegu
íslensku lögum sem eru til í okkar
lagaflokki, okkar Íslendinga. Svo
færum við okkur út í falleg lög frá
Noregi.
Sumt er hresst og annað minna
hresst.“
En Kolbeinn er síðan að fara til
Óman að syngja í nýju óperuhúsi þar
í landi. „Já, það er frjálslyndur mús-
limi sem ræður þarna ríkjum og
fékk óperubakteríuna og lét byggja
óperuhús í höfuðborginni, Múskat,“
segir Kolbeinn. „Það verður gaman
að því að taka þátt í þessu. Maður
þarf að ferðast mikið sem söngvari.“
Að sögn Guðna Franzsonar sem
er faglegur stjórnandi Artic Con-
certs mun tónleikaröðin verða í
gangi í allt sumar.
„Við munum bjóða upp á allskonar
góðgæti í sumar,“ segir Guðni. „Allt
frá Agent Fresco til Kolbeins og
Ástríðar Öldu.“
Morgunblaðið/Ófeigur
Alvar Aalto Kolbeinn Jón mun syngja í þessu fallega húsi í kvöld.
Norrænn tónn
á tónleikunum
Íslensk sönglög í bland við norsk
Íslenska karlalandsliðið íknattspyrnu hefur veriðhelsti gleðigjafi þjóðarinnarundanfarin misseri og því
kemur ekki á óvart að bók um af-
rekin hafi verið gefin út fyrir Evr-
ópumótið, sem hefst á morgun,
föstudag.
Eftir að hafa horft á vináttuleik-
inn góða á móti
Liechtenstein í
vikubyrjun sett-
ist sá sem hér
hamrar á lykla-
borðið niður og
las bókina Lars
Lagerbäck og ís-
lenska landsliðið
í þeirri von að
fræðast ögn
meira um sænska kraftaverka-
manninn og skyggnast á bak við
tjöldin. Á bakkápu segir að í bók-
inni sé rakin saga sænska lands-
liðsþjálfarans, sagt frá samstarfi
hans við Heimi Hallgrímsson og
landsliðinu fylgt eftir með
skemmtilegum og fræðandi frá-
sögnum. Þetta er langt því frá að
vera rétt því bókin fjallar fyrst og
fremst á yfirborðslegan hátt um
Lars og Heimi sem og landsleikina
undir stjórn fyrrnefndra þjálfara
með beinum tilvitnunum í orð leik-
manna og þjálfara eftir leiki, flest-
ar teknar úr tveimur netmiðlum
(fotbolti.net og visir.net). Ekkert
nýtt kemur fram en engu að síður
er akkur fyrir áhugafólk um ís-
lenska landsliðið að fá allar helstu
upplýsingar um gengi liðsins und-
anfarin rúm fjögur ár, stutta lýs-
ingu á leikjunum, hverjir spiluðu,
úrslit og svo framvegis, saman í
einni bók.
Höfundur tekur réttilega fram í
inngangi að bækur Víðis Sigurðs-
sonar um íslenska knattspyrnu séu
ómissandi enda eru þær á meðal
helstu heimilda. Uppbygging á
þessari bók er að hluta til með
svipuðum hætti, efnið aðgengilegt í
tímaröð og stíllinn lipur. Það er
skemmtileg nálgun að tengja einn
besta handboltamann þjóðarinnar
við efnið (bls. 90) og krafturinn
leynir sér ekki í aðdraganda frá-
sagnar af viðureigninni við Hol-
lendinga á Laugardalsvellinum
haustið 2013.
Vel er til fundið að halda um-
mælum manna til haga. Eiður Guð-
johnsen, besti knattspyrnumaður
Íslands til þessa að margra mati,
sagði til dæmis eftir sigur Íslands á
Slóveníu ytra í undankeppni HM
fyrir rúmum þremur árum að
landsliðið gæti klárlega orðið það
besta í sögu íslenskrar knattspyrnu
og hann gæti reynst sannspár.
Hafa ber í huga að strax eftir leiki
eru menn ekki alltaf með fullmótuð
svör við spurningum og málið vill
því stundum skolast til. Það er galli
á þessari bók að endurbirta mál-
fræðivillur og nástöðu í stað þess
að laga málfarið og hafa þá óbeint
eftir (t.d. er haft eftir leikmanni:
„Við vorum að tapa mikið af bolt-
um …“ (bls. 83) þar sem betur færi
að segja við töpuðum mörgum bolt-
um eða við misstum boltann oft frá
okkur … og svo framvegis). Einnig
eru sleggjudómar og dylgjur ekki
til framdráttar. Þannig segir höf-
undur að miðasala að næturlagi
hafi verið myrkraverk en mistök
verða seint flokkuð undir illvirki.
Að sama skapi er haft eftir blaða-
manni fotbolta.net að forverar
landsliðsþjálfaranna hafi stundum
svarað gagnrýni með skætingi, án
þess að nefna dæmi. Ekki góð
vinnubrögð.
Þrátt fyrir ýmsa vankanta var
gaman að lesa bókina, rifja upp af-
rekin og láta sig dreyma um gott
framhaldið í leiðinni.
Morgunblaðið/Golli
Kveðjustund Eiður Smári Guðjohnsen, Kolbeinn Sigþórsson, Lars Lagerbäck, Kári Árnason, Aron Einar Gunn-
arsson og Alfreð Finnbogason veifa til áhorfenda að loknum leik landsliða Íslands og Liechtenstein 6. júní sl.
Íþróttabók
Lars Lagerbäck og íslenska landsliðið
bbbnn
Eftir Guðjón Inga Eiríksson.
144 bls. Bókaútgáfan Hólar 2016.
STEINÞÓR
GUÐBJARTSSON
BÆKUR
Allt um landsliðið
á sama stað
Enn bætist á lista flytjenda tónlist-
arhátíðarinnar Iceland Airwaves
sem haldin verður 2.-6. nóvember
nk. Þeir sem bæst hafa við eru eft-
irfarandi tónlistarmenn og hljóm-
sveitir: Adia Victoria frá Bandaríkj-
unum, Alvia Islandia, Alexander
Jarl, Amber, Baloji frá Kanada,
Bára Gísladóttir, Beneath,
BLKPRTY, Bróðir BIG, Aron Can,
Ceasetone, Chinah frá Danmörku,
Conner Youngblood frá Bandaríkj-
unum og Digable Planets, einnig frá
Bandaríkjunum, Gangly, Glacier
Mafia, JFDR, Josin frá Þýskalandi,
Júníus Meyvant, King frá Banda-
ríkjunum, Kött Grá Pje, Lake Street
Dive frá Bandaríkjunum, Legend,
Lowly frá Danmörku, Magnús Jó-
hann, Major Pink, Myrra Rós, Par-
Ðar, Rythmatik, Seratones frá
Bandaríkjunum, $igmund, Sólstafir,
sxsxsx, Throws frá Bandaríkjunum,
Tiny, Tófa, Tómas Jónsson, Þriðja
hæðin, Vaginaboys, Valby bræður
og Warm Graves frá Þýskalandi.
Alls eru þetta 41 tónlistarmaður og
hljómsveit sem við bætist á þegar
langan lista flytjenda.
Frekari upplýsingar um hátíðina
og flytjendur má finna á heimasíðu
hennar, icelandairwaves.is.
41 til viðbótar á Airwaves
Chinah Danska tríóið er meðal þeirra sem bæst hafa á dagskrá Airwaves.