Morgunblaðið - 09.06.2016, Side 76
76 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2016
Allt fyrir
öryggið!
Hjá Dynjanda færðu öryggisvörur
fyrir heimilið og vinnustaðinn.
Hafðu samband.
Við veitum þér faglega aðstoð.
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Flæði ljóss og lita nefnist sýning El-
ínborgar Jónsdóttur á vatnslita-
myndum sem opnuð verður í
Gerðubergi í dag kl. 16.
Samkvæmt upplýsingum frá
skipuleggjendum hafa vatnslitirnir
heillað Elínborgu allt frá því hún
hóf að mála. „Það gerist alltaf eitt-
hvað óvænt og spennandi þegar
þeir fá að flæða óhindrað. Þeir hafa
þá eiginleika að endurkasta ljósinu
af pappírnum í gegnum tærleika
litanna,“ segir listakonan.
Elínborg er fædd 1942 og að
mestu sjálflærð í myndlistinni.
„Hún tók upp pensilinn fremur
seint að eigin sögn og loks þegar
hún öðlaðist hugrekki til að taka
fram pensilinn varð ekki aftur snú-
ið.“ Sýningin er opin virka daga kl.
10-18 og stendur til 4. september.
Fjall Ein vatnslitamynda Elínborgar.
Flæði ljóss og lita
í Gerðubergi
Þorbjörg Ás-
geirsdóttir leiðir
gesti um sýning-
una Arkitektúr
og Akureyri í
Ketilhúsi í dag
kl. 12.15. „Á sýn-
ingunni er bygg-
ingarlist á Akur-
eyri skoðuð í
víðu samhengi
og fjallað um
byggingar sem ýmist hafa unnið í
samkeppnum eða hlotið sérstakar
viðurkenningar. Í amstri dagsins
vill oft gleymast að hlutir og bygg-
ingar þess manngerða umhverfis
sem við lifum og hrærumst í voru
upphaflega hugmynd sem kviknaði
í huga einhverrar manneskju,“ seg-
ir í tilkynningu. Sýningin stendur
til 28. ágúst og er opin daglega kl.
10-17. Aðgangur er ókeypis.
Ein ljósmynda sýn-
ingarinnar.
Leiðir gesti um
Ketilhús í dag
Tónlistarútgáfan Hið myrka man
heldur fjórða tónleikakvöld sitt á
Gauknum í kvöld og hefst það kl.
20. Fram koma hljómsveitirnar
ROHT, Hvergi og Hatari, en Hið
myrka man skipuleggur tónleika
og gefur út efni sem miðar að því að
„endurspegla myrkrið innra með
okkur öllum“, eins og segir í til-
kynningu og eru hljómsveitirnar
valdar með það í huga. Útgáfan var
stofnuð í fyrra af Sólveigu Matt-
hildi Kristjánsdóttur sem hefur ver-
ið ötull stuðningsmaður hinnar
myrku jaðarsenu íslensks tónlistar-
lífs allt frá því hún stofnaði hljóm-
sveitina Kælan mikla árið 2013
ásamt Laufeyju Soffíu og Margréti
Rósu.
Hvergi er hljómsveit stofnuð af
Kristínu Mjöll og Hjalta Frey en
Hjalti er einnig meðlimur hljóm-
sveitanna Panos from Komodo og
Godchilla. Hvergi hefur hvergi
komið fram áður, eins og segir í til-
kynningu. ROHT er einkaverkefni
Þóris Georgs sem hefur komið fram
sem tónlistarmaður undir öðrum
nöfnum, m.a. Kvöl, sem og eigin
nafni, þ.e. Þórir Georg.
Hatari er hljómsveit sem frænd-
urnir Matthías Tryggvi og Klemens
stofnuðu um mitt ár 2015 og héldu
sína fyrstu tónleika á öðru kvöldi
Hins myrka mans. Þeir „slógu þar
rækilega í gegn sem fyrsta atriði
kvöldsins en það er ekki oft sem
maður fær að sjá Reykvíkinga
dansa við tvo menn í gjörningaham
klukkan níu á fimmtudagskvöldi“,
eins og lýst er í tilkynningu. Hatari
„leitast við að afhjúpa þá linnulausu
svikamyllu sem við köllum hvers-
dagsleikann með MIDI-væddri
pönktónlist, pönkvæddri MIDI-
tónlist og íslenskum dómsdags-
kveðskap“, segir um hljómsveitina
á vef hátíðarinnar Norðanpaunk
sem fram fer á Laugarbakka 29.-
31. júlí nk. en Hatari er meðal
þeirra sveita sem koma þar fram.
Hatari Frændurnir Matthías
Tryggvi og Klemens.
ROHT, Hvergi og
Hatari á Gauknum
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
„Það gerist svo margt þegar maður
er að glíma við form, liti og ljós,“
segir skoski listamaðurinn Callum
Innes við blaðamann Morgunblaðs-
ins í spjalli um verk sín sem verða
til sýningar í galleríi i8 í dag,
fimmtudaginn 9. júní, og mun sýn-
ingin standa til 6. ágúst.
Innes ku nálgast strigann með
þeim hætti að afmá þau málningar-
lög sem þegar eru á hann komin.
Ferlið hefur verið kallað afmálun og
er listamaðurinn sáttur við það hug-
tak og það er vissulega rétt að hann
er að mörgu leyti að leysa upp mynd
sem hefur tekið sér bólfestu í hug-
anum.
Samkvæmt fréttatilkynningu seg-
ir að „innblásturinn eða myndefnið
er oft fengið með hvunndagslegum
hætti, fyrirsagnir dagblaðanna eða
lesefni kvöldsins áður, en þó er
myndin alltaf skýr. Það má þó ekki
láta blekkjast af tærum og nákvæm-
um málverkum og halda að engin
óreiða sé í hinu skapandi ferli – það
er nefnilega einmitt mikil óreiða í
því að sýsla með svarta litinn sem
umlykur allt. Fegurðarleitin getur
verið óþrifaleg.“
Ferill Innes
Callum Innes er fæddur í Edin-
borg árið 1962. Hann nam teikningu
og málun í Gray’s School of Art á
árunum 1980 til 1984 og lauk meist-
aragráðu við Edinburgh College of
Art árið 1985.
Hann hóf að sýna verk sín opin-
berlega síðla á níunda áratugnum
og árið 1992 voru tvær stórar sýn-
ingar verka hans, annars vegar í
ICA í Lundúnum og hins vegar í
Scottish National Gallery of Modern
Art í Edinborg.
Hann hefur verið talinn til mik-
ilvægustu abstraktmálara sinnar
kynslóðar og hefur fengið mikið lof
sem slíkur í kjölfar stórra einka- og
samsýninga víða um heim.
Callum Innes var tilnefndur bæði
til Turner- og Jerwood-verð-
launanna árið 1995, og árið 1998
hlotnuðust honum hin virtu Nat-
West-verðlaun fyrir málun. Árið
2002 hlaut hann svo Jerwood-
verðlaunin.
Í október á þessu ári verður opn-
uð stór sýning verka hans í De
Pont-safninu í Hollandi.
Samhliða sýningaropnuninni
verður útgáfuhóf vegna nýrrar bók-
ar Callum Innes sem nefnist Edges,
og er gefin út af Ivorypress.
Á kaffistofunni í i8
Þegar blaðamaður Morgunblaðs-
ins hittir Innes í galleríi i8 er hann
afslappaður og ánægður, nýbúinn að
koma verkum sínum upp, en þetta
er önnur sýning hans á Íslandi.
Hann sýndi síðast í i8 árið 2013.
Spurður hvort þessi pæling um
afmálun sé eitthvað tengd afbygg-
ingarpælingum Derrida segir hann
að svo sé ekki. „Ekki svona beint,“
segir Innes. „En óbeint er þetta
kannski tengt. Ferlið skiptir miklu
máli þegar maður er að mála. Mér
finnst ég enn vera fígúratífur málari
þótt endamynd verkanna virðist
ekki vera það. En verkin byrja oft
þannig og svo set ég terpentínu á
þau og fígúratífa snertingin í verk-
unum afmyndast. Sum verka minna
hafa verið máluð sjö, átta sinnum.
Það sem er undir sést ekki alltaf en
stundum finnst það.“
Óvinnufær vegna ökklabrots
Eru verkin sem þú ert að vinna
að þessa stundina eitthvað í líkingu
við þau sem eru á þessari sýningu
eða ertu að fara í einhverja allt aðra
átt?
„Ég hef reyndar ekki náð að
vinna mikið í vetur því ég ökkla-
brotnaði og var þess vegna frá
vinnu í nokkurn tíma.“
Bíddu, þú getur málað þótt þú
sért ökklabrotinn?
„Nei, það get ég ekki. Það sem
skiptir máli er hreyfingin. Það var
einhver heimildarmyndagerðar-
maðurinn að taka mynd af mér við
vinnu og hann einbeitti sér aðallega
að fótahreyfingum mínum. Auðvitað
áttar maður sig ekki á því sjálfur
hvernig maður hagar sér við vinnu
sína en hann áttaði sig ansi vel á
því.“
Innes teiknar stöðugt á meðan á
viðtalinu stendur, ekki aðeins í
stuttum pásum í orðræðu sinni,
heldur stanslaust á meðan hann tal-
ar. Á meðan hann teiknar talar
hann um list sína. „Þú verður að
taka myndina úr verkinu,“ segir
Innes. „Það getur verið erfitt þegar
menn eru í ákveðnu rými að láta
eitthvað flókið virðast einfalt. Lista-
maðurinn nemur hljóð og með hljóð-
inu getur hann séð fyrir sér rýmið.
Áhorfandinn á möguleika á þessari
upplifun. Listamaðurinn nemur svo
margt. Hann gæti hafa verið í góðu
matarboði í gær eða fengið sér gott
vín, það hefur allt áhrif á vinnuna.“
Málarinn sem er í afmálun
Skoski listamaðurinn Innes sýnir í i8 í dag Innblástur verka hans er
ýmiss konar Þótt myndirnar séu tærar er óreiða í hinu skapandi ferli
Morgunblaðið/Golli
Afmálun Skoski myndlistarmaðurinn Innes er að sýna í annað sinn í i8. Nú eru það ný olíuverk á striga og pappír.