Morgunblaðið - 09.06.2016, Page 78
78 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2016
Ífallega uppgerðum sölum Kjar-valsstaða stendur yfir ný sýn-ing á verkum meistarans, Jó-hannes S. Kjarval. Hugur og
heimur, og er það forstöðumaður
safnsins, Ólöf K. Sigurðardóttir, sem
stýrir henni. Í vestursalnum er aðal-
lega að finna verk úr einkasafni
hjónanna Ingibjargar Guðmunds-
dóttur og Þorvaldar Guðmundssonar
(sem varðveitt er í Gerðarsafni í
Kópavogi), þ. á m. verkið „Lífs-
hlaupið“ sem Kjarval málaði á veggi
vinnustofu sinnar í Austurstræti 12. Í
austursal er úrval verka úr eigu Lista-
safns Reykjavíkur og varpar sýningin
ljósi á helstu viðfangsefni listamanns-
ins. Mjög hefur verið vandað til verka
við uppsetningu sýningarinnar og
ekkert til sparað. Sýningarstjórinn
fékk Axel Hallkel Jóhannesson sýn-
ingarhönnuð til liðs við sig og hefur
hann búið verkum Kjarvals afar fal-
lega og öfluga umgjörð. Veggir og
milliveggir hafa verið málaðir í svört-
um, bláum, grænbláum og ljós-
brúnum litum, auk hvíts, en þetta eru
litir sem einkenna gjarnan verk Kjar-
vals. Hver salur hefur þannig sterkan
heildarsvip sem bindur sýninguna
saman en um leið gegna litirnir því
hlutverki að draga fram einstök verk
og ýta undir stemningu í samstillingu
verka. Lýsingin er afar fallega útfærð
og sýningartextar með hæfilegu milli-
bili vekja athygli á tilteknum þáttum í
listsköpun Kjarvals og vitna jafnvel
beint í hann, án þess að draga athygli
frá sjálfum verkunum – sem eru í fyr-
irrúmi á þessari sýningu.
Vestursalurinn tekur djarflega á
móti sýningargestinum með svörtum
og hvítum veggjum sem kallast vel á
við loftið í salnum. Hlýr, ljósbrúnn lit-
ur í salnum tónar við hurðina á vinnu-
stofu Kjarvals sem og við pappírinn í
teikningum hans og liti í málverk-
unum. Á veggnum andspænis áhorf-
andanum er „Lífshlaupið“ miðlægt og
nýtur sín vel á svörtum grunni. Hurð-
inni hefur, ásamt gólflistum úr vinnu-
stofunni, verið komið fyrir í þeim til-
gangi að skapa tilfinningu fyrir
upprunalegu samhengi verksins.
Raunar má segja að sýningarhönn-
unin endurómi eiginleika verksins
sem rýmisverks (eða vísis að innsetn-
ingu). Inntak verksins er epískt með
skírskotun til sögu þjóðarinnar í harð-
býlu og stórbrotnu landi – og jafn-
framt er verkið óður til listarinnar og
þess andlega auðs sem hún gæðir líf
íbúanna. Skynja má nærveru hins
skapandi einstaklings, listamannsins,
í málningarblettum á hurðinni um-
hverfis húninn. Á spjaldi á hurðinni
stendur „Kjarval – vinnustofa“ en
skyldi hann sjálfan vera þar að finna,
handan við dyrnar?
Í salnum eru mörg falleg verk. Hið
misturkennda og draumfagra verk
„Fyrstu tunglfararnir“ (um 1960-65)
skipar heiðurssess á móti „Botns-
súlum“ sem Kjarval málaði um svipað
leyti og hann lauk við „Lífshlaupið“
1933. Þar er jafnframt komið miðlægt
mótíf í höfundarverki Kjarvals: Þing-
vellir. Í þremur fyrrgreindum verkum
birtast með áhrifaríkum hætti
áherslur Kjarvals á landslagstúlkun,
fantasíu og myndræna þætti þar sem
„landslagið“ leysist upp í frjálslegt og
spunakennt málverk er endurspeglar
djúpstæða persónulega reynslu. Þar
fléttast saman hugarmyndir og heim-
ar náttúrunnar og málverksins.
Vel fer á því að sýna teikningar
Kjarvals á svarta veggnum gegnt
„Lífshlaupinu“. Mótífin kallast á við
fyrrgreind verk: kúbískar hraun-
myndir, flæðandi fantasíur og stúdíur
af sterkvöxnum líkömum. „Ítölsk
kona“ horfir dökkeyg og eilítið kank-
vís út úr einni mynd; skammt frá sjást
mjúkar vangamyndir og „Fugl“ spók-
ar sig á vegg. Á milliveggjum og enda-
veggjum njóta sín ýmist stök málverk
eða vel valdar samsetningar þeirra,
má þar nefna sérstæð verk eins og
„Bláberjahríslu“ og „Út um gluggann
(Skjaldbreiður)“. Dæmi um skemmti-
legt samspil verka má sjá þar sem
hanga saman „Sjávargróður“, „Sálin“,
„Söngur hafsins“ og „Hörpuleikur“.
Val verka endurspeglar næma tilfinn-
ingu Kjarvals fyrir ríkidæmi náttúr-
unnar, frjótt ímyndunaraflið og leit-
andi eðli hans sem listamanns.
Í austursalnum njóta verk Kjarvals
sín í stuttu máli sagt frábærlega. Vel
er unnið með eiginleika hins þrískipta
sýningarsalar, rýmið er brotið upp
með milliveggjum en um leið sköpuð
ákveðin nánd fyrir verkin. Verkin –
málverk og teikningar – eru valin af
kostgæfni, hæfilega mörg sýnd á
hverjum fleti og er samstillingu þeirra
og staðsetningu í salnum þannig hátt-
að að hvert verk nýtur sín, mýkt þess,
litbrigði og form, og einnig í samleik
með öðrum verkum. Saman umvefja
þau áhorfandann og draga hann inn í
listræna samræðu Kjarvals við innri
veruleika og umhverfið. Sýningar-
textar á veggjum ýta undir skilning á
slíkri samræðu (þótt stundum sé letr-
ið í stærra lagi). Hér tekur hvert dá-
semdarverkið við á fætur öðru sem
lyftir geði áhorfandans á ferð hans
um sýninguna og smitar hann af þeim
fögnuði sem stafar frá verkum lista-
mannsins.
Á vinstri hönd (sunnan megin) í
austursalnum er áhersla lögð á lands-
lagsverk. Þar undirstrikar brúnleitur
veggur litbrigði, frjálslega pensil-
skrift og form í verkum eins og „Esj-
unni 10. febrúar 1959“, „Esjunni í
vorleysingum“ og „Lómagnúpi“ sem
hanga hlið við hlið. Svört umgjörð
dregur fram dulúðina í næturhúmi
verkanna „Júnínótt á Þingvöllum“ og
„Ágústnótt á Þingvöllum“. Með þess-
um verkum, sem og öðrum, er minnt
á hvernig Kjarval málaði á sömu stöð-
unum á mismunandi tímum og rann-
sakaði þannig ólík blæbrigði birt-
unnar. „Skjaldbreiður“ skipar þarna
sérstakan sess sem dæmi um hvernig
innlifun Kjarvals í náttúruna – og
málverkið – dró hann sífellt nær við-
fangsefninu og „fegurðinni við hvert
fótmál“. Fyrir miðju í salnum getur
að líta ýmis konar myndrænar vanga-
veltur Kjarvals. Þar bregður hann
gjarnan á leik, stundum með alvar-
legri undirtónum eins og í táknsögu
sinni um glímuna við listina í verkinu
„Krítík“, en það hvílir hér á svörtum
fleti. Á bláum vegg þar andspænis
myndast seiðandi litaspil milli verk-
anna, og er engu líkara en að vorbirtu
og fínlegum úða stafi frá þeim, eins
og heiti eins þeirra, „Regntjöld vors-
ins“, gefur til kynna. Í norðanverðum
salnum tekur fantasían völdin í verk-
um eins og „Skjaldmey“, „Sólfari –
vetrarmynd úr Gálgahrauni“, „Álf-
konum við Vífilsfell“, „Pegasusi og
stúlkunni“ og „Ofar skýjum“. Þar
mynda svartir, brúnir og blágrænir
veggfletir bakgrunn er lyftir hverju
verki og bindur saman salinn í ævin-
týralega heild.
Sýningin er afbragðsdæmi um það
hvernig góð safnasýning getur í senn
miðlað fagurfræði einstakra verka og
upplýst áhorfandann um feril lista-
manns. Sýningarhönnunin, sjónar-
horn og áherslur sýningarstjóra
varpa ljósi á þungamiðjuna í höfund-
arverki Kjarvals: gjöfult sambýli við
náttúruna – og um leið hið brýna er-
indi verka hans við heiminn. Jóhann-
es S. Kjarval. Hugur og heimur höfð-
ar til breiðs hóps safngesta: hún er
endurnærandi fyrir þá sem þekkja
verk Kjarvals, einkar góð kynning
fyrir þá sem minna þekkja til, og upp-
götvun fyrir alla. Síðast en ekki síst
lifnar rými Kjarvalsstaða við með
þessari sýningu – í henni er fólgin
samræða við byggingarlist hússins –
þangað flæðir inn birta og hug-
myndin um Kjarvalsstaði öðlast nýja
merkingu.
Morgunblaðið/Eggert
Lífshlaupið Í vestursal Kjarvalsstaða er aðallega að finna verk úr einkasafni hjónanna Ingibjargar Guðmundsdóttur og Þorvaldar Guðmundssonar, þ. á m. verkið „Lífshlaupið“ sem hér sést.
Listasafn Reykjavíkur,
Kjarvalsstaðir
Jóhannes S. Kjarval –
Hugur og heimur
bbbbb
Til 21. ágúst 2016. Opið alla daga
kl. 10-17. Aðgangur kr. 1.500, náms-
menn: kr. 820, hópar 10+: kr. 820,
öryrkjar, eldri borgar (70+) og börn 18
ára og yngri: ókeypis. Árskort kr. 3.300.
Sýningarstjóri: Ólöf K. Sigurðardóttir.
ANNA JÓA
MYNDLIST
Kjarvalsgaldur
Draumfagurt Hið misturkennda og draumfagra verk Kjarvals, „Fyrstu tunglfararnir“.
Skjaldmey Í norðanverðum salnum tekur fantasían völdin.