Morgunblaðið - 06.10.2016, Side 14

Morgunblaðið - 06.10.2016, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2016 Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is Lækkað verð Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Þetta hefur gengið vel í sumar og verið töluverð traffík. Fjöldi fólks leggur leið sína til okkar í siglingu og síðan koma líka margir ein- göngu til að virða fyrir sér lónið og ganga hér um,“ segir Steinþór Arn- arson, einn eig- enda Fjalls- árlóns ehf., sem starfrækir sigl- ingar um sam- nefnt lón við einn margra skriðjökla Vatnajök- uls. Fjallsárlón er skammt vestan við Jökulsárlón. Töluverðar fram- kvæmdir hafa staðið þarna yfir í sumar og stefnt er að því að vígja nýtt aðstöðuhús fyrir næstu vertíð. Siglingum um lónið er að ljúka þessa dagana þar sem styttist í að frjósi í lóninu yfir veturinn. Leigusamningur til 12 ára Steinþór hóf siglingar á lóninu fyrir þremur árum ásamt meðeig- endum sínum, Bjarna Sigurði Grétarssyni og Kára Ólafssyni. Fyrirtækið gerði samning á síðasta ári til 12 ára við Sveitarfélagið Hornafjörð um afnot af lóninu, sem er þjóðlenda í eigu ríkisins en sveitarfélagið fer með leyfisveit- ingavaldið. Fyrir afnotin eru greiddar nærri 10 milljónir króna á ári, óháð veltu. Samkvæmt samningnum við sveitarfélagið þá skuldbindur það sig til að nota tekjur af gjaldinu til að byggja upp aðstöðu við Fjalls- árlón, eins og með lagningu vegar, gerð bílaplans og göngustíga. Þær framkvæmdir hófust í sumar og eru vel á veg komnar. Einnig verð- ur lagður ljósleiðari að lóninu. Síðan réðst fyrirtæki Steinþórs og félaga í byggingu aðstöðuhúss- ins, sem verður á alls 400 fermetr- um. Verktakar við þá framkvæmd eru Mikael ehf. og Húsheild. Þar verður aðstaða til að taka á móti gestum og einnig veitingahús. Um er að ræða eina aðalbyggingu og síðan verða salerni í tveimur minni húsum og aðstaða fyrir sigl- ingabúnaðinn í því þriðja, en fyr- irtækið notast við nokkra Zodiac- gúmbáta til siglinganna. Bæta þarf við mannskap „Framkvæmdir munu halda áfram í vetur eins og kostur er. Við stefnum að því að opna næsta vor, eða í kringum 1. maí eins og síð- asta vor. Þetta verður mjög góð að- staða og gerir okkur kleift að taka við enn fleira fólki,“ segir Steinþór. Alls hafa um 12 starfsmenn unn- ið við lónið í sumar, að jafnaði 7-8 á vakt á degi hverjum, en viðbúið er að bæta þurfi við mannskap þegar öll aðstaðan er risin. Steinþór er kominn í fullt starf við þetta en í upphafi var sum- arfríið tekið í siglingarnar. Kári sinnir siglingum hluta úr sumri en Bjarni Sigurður hefur snúið sér al- farið að ferðaþjónustu á Hofi í Öræfasveit, en Steinþór er alinn upp í þeirri sveit. Ljósmynd/Steinþór Arnarson Fjallsárlón Nýtt aðstöðuhús rís þessa dagana við lónið. Húsið mun bæta aðgengi og þjónustu við ferðamenn til mikilla muna. Æ fleiri leggja leið sína í lónið. Framkvæmt við Fjallsárlón  Stórbætt aðgengi fyrir ferðamenn  Nýtt aðstöðuhús tekið í notkun fyrir næsta sumar  Tekjur af leigu á þjóðlendunni renna í aðra uppbyggingu Auk fjölda ferðamanna sem lagði leið sína um lónið í sumar þá mætti hljómsveitin Kaleo á svæðið og tók upp myndband við eitt sinna vinsæl- ustu laga, Save Yourself. Myndbandið er nýlega komið í loftið, m.a. á vef Wall Street Journal, og mun án efa vekja athygli á Fjalls- árlóni og landslaginu þar í kring. Fjallsárlón sést ekki frá þjóðveg- inum en hefur á seinni árum orðið æ vinsælli áningarstaður ferðamanna. Auk siglinga um lónið fá ferðamenn ýmsan fróðleik um Öræfasveitina. Tóku upp myndband á lóninu HLJÓMSVEITIN KALEO HEIMSÓTTI FJALLSÁRLÓN Myndband Hljómsveit Kaleo fór út á klakana á Fjallsárlóni í sumar. Steinþór Arnarson Makrílvertíð er nánast lokið og var heildarafli íslenskra skipa á vertíð- inni 163 þúsund tonn, samkvæmt yf- irliti sem Fiskistofa hefur tekið sam- an um afla fyrstu níu mánuði ársins í norsk-íslenskri síld, makríl og kol- munna. Það sem af er ári er afli í ís- lenskra skipa í þessum deilistofnum minni en á sama tíma í fyrra. Makrílaflinn er litlu minni en á vertíðinni 2015 þegar hann var 166 þúsund tonn. Íslensk skip fengu 151,5 þúsund tonn, eða 89% aflans, í íslenskri lögsögu en 6,8 þúsund tonn í grænlenskri lögsögu og 3,8 þúsund tonn á alþjóðlegu hafsvæði. Afla- hæsta skipið á makrílveiðunum var Venus NS-150 með 11,6 þúsund tonn. Næst kemur Víkingur AK-100 með 9,6 þúsund tonn og Vilhelm Þor- steinsson EA-11 með 19 þúsund tonn. Það sem af er ári hafa íslensk skip veitt 163 þúsund tonn af kolmunna. Á sama tíma í fyrra var aflinn 188 þús- und tonn. Mestur afli á yfirstandandi vertíð er veiddur í lögsögu Færeyja eða 154,6 þúsund tonn og í íslenskri lögsögu 6,8 þúsund tonn. Aflahæsta skipið í kolmunna á ofangreindu tímabili er Beitir NK-123 með 19,3 þúsund tonn og Börkur NK-122 með 19,2 þúsund tonn. Heildarafli íslenskra skipa í norsk- íslenskri síld á fyrstu níu mánuðum ársins er nokkru minni en á síðasta ári. Íslensku skipin höfðu landað 25,3 þúsund tonnum á yfirstandandi ver- tíð miðað við 32,7 þúsund tonn á sama tíma í fyrra. Þar af hafa íslensku skipin fengið 25,2 þúsund tonn úr ís- lenskri lögsögu eða 99,8% af afla úr norsk-íslenska síldarstofninum. Svipaður makrílafli og á síðasta ári Aflaskip Beitir NK og Venus NS.  Mest af kolmunna úr færeyskri lögsögu Elísa Steinunn Jóns- dóttir, leirkerasmiður og stofnandi Gallerí Listar, lést 1. október á Landspítalanum eftir stutt veikindi. Elísa fæddist 4. júlí 1935 á Vaðstakks- heiði, Snæfellsnesi. Foreldrar hennar voru þau Jón Sig- urjónsson og Helga Káradóttir. Elísa var einn af stofnendum listmuna- verslunarinnar Gallerí Listar árið 1987 og rak galleríið um margra ára skeið. Elísa giftist dr. Gunnari G. Schram, lögfræðingi, alþing- ismanni og ræð- ismanni Íslands í New York, 26. jan- úar 1957. Gunnar lést árið 2004. Þau eignuðust fjögur börn, þau Jón Gunn- ar, Kára G., Þóru Björk og Kristján. Elísa verður jarð- sungin frá Nes- kirkju 12. nóvember og verður jarðarförin auglýst síðar. Andlát Elísa Steinunn Jónsdóttir Icelandair hefur ákveðið að hefja áætlunarflug til bandarísku borg- anna Philadelphia og Tampa á næsta ári og er sala farseðla þegar hafin. Borgirnar eru 17. og 18. áfangastaðurinn í Norður-Ameríku sem Icelandair býður upp á í leiða- kerfi sínu. Flugið til Philadelphia hefst 30. maí, stendur til 20. sept- ember og verður flogið þangað fjórum sinnum í viku. Flugið til Tampa er heilsársflug sem hefst 6. september á næsta hausti. Flugáætlun Icelandair fyrir árið 2017 verður um 13% umfangsmeiri en á þessu ári. Áætlað er að farþeg- ar verði um 4,2 milljónir á árinu 2017 og muni fjölga um 450 þúsund frá yfirstandandi ári. Alls verða 30 flugvélar nýttar til farþegaflugsins næsta sumar, en tvær Boeing 767 vélar bætast við flotann, segir í frétt frá Icelandair. Leiðakerfi Icelandair hefur margfaldast að umfangi frá árinu 2009. Þá voru farþegar um 1,3 milljónir, eða um 30% þess fjölda, sem gert er ráð fyrir á árinu 2017. Icelandair hyggst hefja áætlunarflug til Philadelphia og Tampa á næsta ári

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.