Morgunblaðið - 14.10.2016, Síða 10
10 Bleiki dagurinn
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2016
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Bleiki dagurinn er tileinkaður
brjóstakrabbameini í ár, eða öllu
heldur leit að brjóstakrabbameini
og að sýna samstöðu með þeim sem
barist hafa við brjóstakrabbamein
og aðstandendur þeirra. Í takt við
það er eitt af helstu markmiðum
söfnunarátaksins Bleika slaufan í ár
að safna fyrir nýjum brjóstmynd-
unartækjum.
Kolbrún Silja Ásgeirsdóttir,
kynningar- og fjáröflunarstjóri
Krabbameinsfélagsins, segir að
væntingar standi til þess að hægt
verði að kaupa þrjú ný tæki. Til
þess að fjármagna það hafa verið
gerðar 45 þúsund bleikar slaufur í
formi barmnælna sem margir kann-
ast við.
Bleika slaufan er að þessu sinni
hönnuð af Lovísu og Unni Eir gull-
smiðum. Form slaufunnar táknar
stuðningsnetið sem mikilvægast er
þeim konum sem greinast með
krabbamein – fjölskylduna og sam-
félagið. Slaufan kostar 2.000 krónur
og er til sölu víða í verslunum.
Vilja ná 80% kvenna í skoðun
Þó Bleiki dagurinn sé í dag er
október í heild tileinkaður málefn-
inu. Fram kemur í fréttatilkynn-
ingu að á 40 klukkustunda fresti
greinist kona með brjósta-
krabbamein hér á landi. Þar segir
einnig að skipuleg leit að brjósta-
krabbameini sé talin lækka dán-
artíðni um allt að 40%.
Þá segir að margt hafi áunnist í
baráttunni gegn brjóstakrabba-
meini á undanförnum árum. Lífs-
líkur hafa til að mynda aukist til
muna. Þannig geta 90% kvenna
sem greinast með brjósta-
krabbamein nú vænst þess að lifa
lengur en fimm ár. Um 3.000 konur
eru á lífi í dag sem greinst hafa
með brjóstakrabbamein. Brýnt er
þó að gera enn betur: Enn látast
um 40 konur úr sjúkdómnum á
hverju ári.
Öflugasta vopnið í baráttunni
gegn brjóstakrabbameini er skipu-
leg leit til að finna krabbamein á
byrjunarstigi. „Það þarf alltaf að
minna konur á að koma í brjósta-
krabbameinsleit. Fjöldi þeirra sem
koma í skoðun eykst alltaf í
tengslum við svona átök. Mætingin
hefur verið góð í heild, eða um 68%
sem er með því besta sem gerist í
heiminum en við viljum gjarnan sjá
þessa tölu fara upp í 80%,“ segir
Kolbrún og bendir á að slíkt sé
hlutfall kvenna sem mætir í
brjóstakrabbameinsleit í Svíþjóð.
„Við viljum ná þessu með því að
breyta boðunarkerfinu. Þannig að í
stað þess að konur bóki tíma, þá
ætlum við að hafa tímann bókaðan
fyrirfram en að konan geti breytt
honum komist hún ekki á þeim
tíma,“ segir Kolbrún.
Vörur, velta og bleik föt
Fjölmörg fyrirtæki hafa í gegn-
um árin lagt söfnuninni lið. Hafa
þau valið til þess ýmsar leiðir.
Þannig geta fyrirtækið valið að
selja ákveðna vöru/r eða þjónustu
og gefið hluta af veltu eða ágóða
Bleika dagsins til söfnunarinnar. Þá
geta fyrirtæki valið að gefa hlut af
veltu dagsins til málefnisins auk
þess sem mörg fyrirtæki hafa valið
að kaupa Bleiku slaufuna fyrir
starfsfólk sitt. Þá gátu fyrirtæki
hvatt starfsfólk sitt til þess að
mæta í bleiku í vinnuna í dag sem
er orðin viðtekin venja hjá sumum
fyrirtækjum. „Það hefur gengið vel
að safna fé hjá fyrirtækjum sem og
hjá almenningi. Við erum ekki kom-
in með sölutölur á slaufunni en von-
umst að sjálfsögðu til þess að slauf-
an seljist bara upp. Það hafa verið
send 45 þúsund stykki í verslanir,“
segir Kolbrún. Ein af undirskriftum
átaksins er myllumerkið (hashtag)
#fyrir mömmu. Að sögn Kolbrúnar
er það skírskotun í þann hóp sem
fer í brjóstakrabbameinsleit. „Þessi
hópur er 40-69 ára og okkur varð
tíðrætt um að þessi sjúkdómur hitt-
ir oft kjarnann í fjölskyldunni sem
er mamman. Auðvitað eru öll
krabbamein áfall en okkur finnst
þetta vera gott sameingartákn fyrir
þetta málefni. Eitthvað sem við get-
um öll fundið hlýjar tilfinningar til
og þetta eru þær konur sem við
þurfum að ná til og hvetja til þess
að koma í brjóstamyndatökur,“ seg-
ir Kolbrún.
Bleika slaufan fyrir
mömmur okkar
Bleiki dagurinn í dag Vilja kaupa að minnsta kosti þrjú
brjóstmyndunartæki Vilja fá skoðunarhlutfall í 80%
Eliza Reid Forsetafrúin afhjúpaði Bleiku slaufuna við hátíðlega athöfn í Kringlunni 29. sept-
ember. Hér má sjá hana með leikskólabörnum sem máluðu mynd fyrir mömmu með Tolla.
Fyrir mömmu Starfsfólk auglýsingastofunnar Brandenburg bauð mæðrum
sínum í mömmukaffi í gær. Átakið er tileinkað mæðrum.
Hvert þeirra brjóstamyndunartækja sem Krabbameins-
félagið stefnir á að kaupa fyrir söfnunarfé kostar 30
milljónir króna. „Við þurfum að lágmarki þrjú fyrir leit-
arstöðina en svo vonumst við til þess, ef fjármagn fæst
til, að geta bætt við fleiri tækjum. Svo þurfum við að
endurnýja hugbúnaðinn líka sem kostar nokkuð. Eins
vonumst við til þess að geta keypt ný sérskoðunartæki
líka,“ segir Kolbrún. Hún segir Krabbameinsfélagið í
samstarfi við Landspítalann um þessi mál. „Það er alltaf
í svona málum að því meira sem safnast því betra,“ segir
Kolbrún. Í átakinu í fyrra seldust um 37 þúsund slaufur.
Hvert tæki kostar 30 milljónir
VILJA KAUPA AÐ LÁGMARKI ÞRJÚ TÆKI
Kolbrún
Ásgeirsdóttir
Bleik Harpa Líkt og undanfarin ár eru ýmsar byggingar baðaðar bleikri lýsingu. Hér má sjá
hvernig bleiki liturinn gefur tónlistarhúsinu Hörpu fallegan blæ í miðborginni.
Eimskip Í mörgum fyrirtækjum hefur skapast sú hefð að koma bleik-
klæddur til vinnu á Bleika deginum. Hér má sjá starfsfólk Eimskips í fyrra.