Morgunblaðið - 14.10.2016, Side 13
Í fjárhúsinu Vignir og Viggó Freyr saman í fjárhúsinu glæsilega og gjafagræjuna má sjá að baki þeim (græn).
Þau verða með þrjúhundruð og
fjörutíu fullorðnar kindur á vetr-
arfóðrum á komandi vetri.
„Við byggðum ný fjárhús fyrir
þremur árum og erum auk þess
nýbúin að byggja við og stækka þau
um helming, enda stendur til að
stækka fjárstofninn. Núna erum við
komin með gott pláss fyrir fimm-
hundruð og fimmtíu kindur, en ætli
ég láti ekki duga að fjölga þeim upp í
fjögurhundruð og fimmtíu. Ég vil
fjölga þeim sem eru af enska kyninu
því þær eru ekki eins ofurfrjósamar
og þær hvítu norsku.“
Þegar Vignir er spurður að því
hvort hann hafi nægileg tún til að
heyja í þennan fjölda segist hann
kaupa allt hey utanfrá.
„Það kemur miklu betur út, ég
fer í sumarfrí á meðan hinir bænd-
urnir eru að heyja.“
Gott að eiga góða nágranna
Vignir segir árstíðirnar á svip-
uðu róli í Noregi og heima á Íslandi,
haustið sé lagst að.
„Við erum að byrja að taka féð
inn núna, en við förum með meiri-
hluta okkar fjár á fjall. Afrétturinn
eða beitarlandið yfir sumarið er
fjalllendi en það tekur ekki nema
einn dag að smala það. Við erum
fimm, sex bændur hér á svæðinu
sem vinnum vel saman. Það er gott
að eiga góða nágranna, sérstaklega
upp á smölun í fjallinu. Svo þurfum
við að fara í nokkrar eftirleitir eftir
aðalsmölun, eins og gengur,“ segir
Vignir og bætir við að flestir bænd-
urnir nágrannar hans séu með sjötíu
til hundrað og tuttugu kindur á fóðr-
um yfir veturinn.
Fer út á inniskónum að gefa
„Mér finnst íslenskir fjár-
bændur þurfa að hafa svo stór bú til
að geta lifað af því. Hér í Noregi er
sem betur fer borgað vel fyrir kjöt-
ið og líka ullina. Hér mundi mér
nægja að hafa tvöhundruð kindur á
fóðrum. “
Þegar hann er spurður hvers
vegna hann kjósi þá að hafa svona
margt segir hann að það sé ekki
meiri vinna fyrir hann. „Það skiptir
mig ekki máli hvort ég fer út að
gefa tvöhundruð eða fjögurhundruð
kindum, ég er með gjafakerfi og
það tekur mig ekki nema tíu mín-
útur að gefa. Ég hleyp út á inni-
skónum og ýti á takka og fer svo inn
í kaffi aftur. En vissulega er meiri
vinna í sauðburðinum með svona
margt fé.“
Vignir er með stóra fjölskyldu,
núna búa sex af börnunm hans og
Katrínar hjá þeim, en tvö þeirra eru
nýflutt út.
„Það hefur því verið mikið líf
hér undanfarin ár. Við Katrín eigum
fjögur börn saman, en fyrir átti hún
þrjú börn og ég átti fjögur börn fyr-
ir, en hef reyndar misst eitt af þeim.
Samtals voru þetta ellefu börn.
Þetta er bara lítið eins og þetta er
núna, að vera aðeins með sex börn á
fóðrum,“ segir Vignir og hlær.
SmalamennskaVignir fer létt með
að skella einni kind á axlirnar.
Gaman Katrín með lítið krúttlegt lamb um sauðburðinn.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2016
Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameinsfélagsins
til kaupa á nýjum tækjum til brjóstakrabbameinsleitar.
Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar
enn á ný með bleikum taxaljósum.
Taktu bleikan bíl næst þegar þú pantar leigubíl!
„Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október.
Hreyfill/Bæjarleiðir er styrktaraðili
árvekniátaks Krabbameinsfélagsins
í október og nóvember
Tökumbleikan
bíl!
Styrkjum starfsemi
Krabbameinsfélagsins
á heimasíðu Hreyfils: hreyfill.is
eða í App Store og Google Play
Sæktu þér Hreyfils appið
og pantaðu bleikan bíl.
SÆKTUAPPIÐ
Farsælt
samstarf
frá 2007
Galdrastafa- og flugdrekasmiðja
verður í Spennistöðinni, félags- og
menningarmiðstöð miðborgarinnar
við Austurbæjarskóla, næstkomandi
laugardag 15. okt. kl. 13.
Í tilkynningu kemur fram að flug-
drekasérfræðingurinn Arite Fricke
sem er grafískur hönnuður og for-
eldri í Austurbæjarskóla leiðbeinir.
Búnir verða til einfaldir flugdrekar úr
símaskrám og bambusstöfum og
kynngimagnaðir galdrastafir. Það
tekur um 30-45 mínútur að búa til
einfaldan flugdreka og tíu þátttak-
endur komast að í einu.
Ef veður leyfir geta þátttakendur
prófað drekana úti. Í galdrastafa-
smiðjunni verða notaðir kartöflu-
stimplar og þekjulitir til að búa til
rammíslenska galdrastafi sem jafn-
vel geta látið óskir rætast. Aðgangur
er ókeypis, allt efni og áhöld eru til
staðar. Smiðjurnar eru hluti af verk-
efninu HEIL BRÚ Í miðbænum. Á
laugardögum í vetur verða smiðjur
fyrir fjölskyldur í Spennistöðinni og
málþing þar sem íbúar hafa orðið.
Smiðjurnar og málþingin verða öllum
opin og að kostnaðarlausu. Íbúar eru
hvattir til að taka þátt, sem og for-
eldrar og fjölskyldur barna í Austur-
bæjarskóla.
Spennistöðin
Flugdrekar Það er lítið mál og tekur ekki langan tíma að búa til flugdreka.
Galdrastafa- og flugdrekasmiðja