Morgunblaðið - 14.10.2016, Side 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2016
Suðurlandsbraut 52
108 Reykjavík
Sími 533 6050
Faxnr. 533 6055
www.hofdi.is
Runólfur Gunnlaugsson lögg. fast. •Ásmundur Skeggjason lögg. fast.
Stærð: Grímsstaðir er ein stærsta jörð landsins, eða u.þ.b. 306 ferkílómetrar. Sá eignarhluti sem nú er til sölu er því um 228 ferkílómetrar. 228 ferkílómetrar eru 22.800 hektarar.
Lega: Grímsstaðir á Fjöllum eru við krossgötur á hálendinu norðan Vatnajökuls, einungis 4 km frá þjóðvegi 1 við veg 864, Dettifossveg.
Grímsstaðir eru að mestu leyti háslétta, fjallakyrrðin allsráðandi og útsýni ægifagurt og víðsýni til allra átta, meðal annars er hvergi betra að sjá Herðubreið. Stutt er í Vatnajökulsþjóðgarð (stærsta þjóðgarð Evrópu),
bæði í norðri (Jökulsárgljúfur) og í suðri (meginhluti þjóðgarðsins), og því liggur jörðin að (og er hluti af) einu stærsta, ósnortna víðerni Evrópu. Landamerki jarðarinnar í vestri markast af Jökulsá á Fjöllum, talið í
tugum kílómetra, sennilega um 25 kílómetra. Dettifoss, aflmesti foss Evrópu, er u.þ.b. 15 mínútna akstur frá jörðinni, en Herðubreiðarlindir og Herðubreið um 1,5 klst. í akstri, og Askja um 2,5 klst. Stutt er í Ásbyrgi,
Hljóðakletta, Jökulsárgljúfur, Jarðböðin við Mývatn, Fjallakaffi í Möðrudal, og svo mætti lengi telja. Á jörðinni skiptast á mýrar, grösugar heiðar, mólendi, sandar og melar. Þar eru óteljandi ferskvatnsuppsprettur.
Fjórar bergvatnsár renna um jörðina og útí Jökulsá á Fjöllum. Á jörðinni er flugvöllur sem þolir léttari vélar.
Verðmæti: Vatnsréttindi jarðarinnar eru mikil, landamerki jarðarinnar meðfram Jökulsá á Fjöllum er um 25 kílómetrar að lengd. Jökulsá á Fjöllum er ein vatnsmesta á landsins, meðalrennsli um 183 rúmmetrar á
sekúndu.
Margt kemur til greina varðandi ferðaþjónustu á svæðinu, svo sem hótelrekstur, bændagisting, hestaleiga, jeppaakstur til ferðamannastaða á hálendinu, t.d. sala eða leiga.
Möguleikar á vetrarferðaþjónustu eru ekki síðri t.d. jeppaferðir, sleðaferðir og fleira.
Grímsstaðir á fjöllum er einn besti staðurinn til að upplifa norðurljósin á Ísland.
Mikið er um ferskvatn á jörðinni.
Veiði á rjúpu og gæs getur verið mjög góð, en einnig er staðbundin bleikja í 3-4 ám sem verður allt að 7 pund. Aðstaða til fluguveiði er frábær.
Möguleikar gætu falist í margs konar búskap.
Með tilkomu nýrrar borunartækni er sjálfsagt að horfa til þess að finna heitt vatn í jörðu, kannski fleira.
Grímsstaðir eiga hlunnindi í Selá sem er einverðmætasta laxveiðiá landsins.
Ásett verð: 780 millj. kr.
Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir GSM: 896-3038 e-mail: johann@hofdi.is
GRÍMSSTAÐIR Á FJÖLLUM - Paradís í Norðri!
TIL
SÖL
U
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Álftafjarðargöng eru komin í undir-
búningsferli með því að Alþingi hefur
veitt fé til undirbúnings og rannsókna
á gangastæði á næsta og þarnæsta ári,
samtals 10 millj-
ónir kr. „Þetta er
fyrsta skrefið.
Með þessari sam-
þykkt Alþingis
eru Álftafjarðar-
göng komin á
samgönguáætl-
un,“ segir Ólína
Kjerúlf Þorvarð-
ardóttir, þingmað-
ur Samfylking-
arinnar í
Norðvesturkjördæmi.
Ólína var fyrsti flutningsmaður að
tillögu til þingsályktunar um að undir-
búa gerð Álftafjarðarganga. Tillagan
var flutt á síðasta kjörtímabili og
endurflutt á þessu. Aðrir þingmenn
Norðvesturkjördæmis voru meðflutn-
ingsmenn. Báðar tillögurnar dagaði
uppi í þinginu.
Ekki var gert ráð fyrir fjármagni til
undirbúnings Álftafjarðarganga í til-
lögum ríkisstjórnarinnar að sam-
gönguáætlun sem lengi hafa legið fyr-
ir Alþingi. Ólína segir að samgöngu-
nefnd þingsins hafi lagt til að veitt yrði
fé til rannsókna vegna jarðganga í
Fljótum en ekkert minnst á Álfta-
fjarðargöng þótt tillaga hennar hafi
legið fyrir þinginu. Þess vegna hafi
hún flutt breytingartillögu við sam-
gönguáætlun um sams konar fjárveit-
ingu og alþingismenn samþykkt.
„Þetta er mjög gleðilegt því það gerist
ekki á hverjum degi að stjórnarand-
stöðuþingmenn fái samþykkta til-
lögu,“ segir Ólína.
Stórhættulegt snjóflóðasvæði
Álftafjarðargöng munu liggja á
milli Skutulsfjarðar og Álftafjarðar og
þar á meðal á milli Ísafjarðar og Súða-
víkur sem er núverandi aðalleið milli
norðurhluta Vestfjarða og höfuðborg-
arsvæðisins. Göngin stytta vegalend-
ina ekki mikið, um 6 kílómetra, en
sneiða hjá hættulegum snjóflóðasvæð-
um í Súðavíkur- og Kirkjubólshlíð. Ól-
ína segir að framkvæmdin sé fyrst og
fremst umferðaröryggismál og hafi
því mikla samfélagslega þýðingu.
Í greinargerð með þingsályktunar-
tillögu sinni vakti Ólína athygli á því
að vegurinn er stórhættulegur vegfar-
endum vegna tíðra ofanflóða, einkum
snjóflóða. Víðast hvar er vegurinn al-
veg með sjó, 5 til 30 metra yfir sjávar-
borði, og því miklar líkur á alvarlegum
slysum þegar menn missa bíla sína út-
af. Innarlega í Súðavíkurhlíð, á 3,8 km
löngum kafla, eru 22 gil þar sem
reglulega koma snjóflóð en eitthvert
grjóthrun á 4 km kafla. Þá er snjó-
flóðahætta í mörgum giljum í Kirkju-
bólshlíð.
Álftafjarðargöng undirbúin
Alþingi veitti fé til rannsókna vegna jarðganga á milli Skutulsfjarðar og Álfta-
fjarðar Hefur mikla samfélagslega þýðingu, segir Ólína Þorvarðardóttir
Ísafjörður
Engidalur
SK
UT
UL
SF
J.
ÁL
FT
AF
JÖ
RÐ
UR
Naustir
Dvergasteinn
Sauradalsá
Súðavík
Loftmyndir ehf.
Hugsanleg
Álftafjarðargöng
Morgunblaðið/RAX
Súðavíkurhlíð Snjóflóð falla iðulega á veginn milli Álftafjarðar og Skutuls-
fjarðar og lokast hann oft vegna þess eða snjóflóðahættu.
Ólína Kjerúlf
Þorvarðardóttir
Ólína er sannfærð um að Álfta-
fjarðargöng séu brýnasta jarð-
gangaverkefnið sem bíður þeg-
ar Dýrafjarðargöngum verður
lokið. Vonast hún til að unnið
verði að undirbúningi þannig
að hægt verði að ráðast í gerð
þeirra strax í kjölfar Dýrafjarð-
arganga. Kostnaður er áætl-
aður um 8 milljarðar króna.
Þess má geta að Súðvíkingar
sækja mest af sinni þjónustu
til Ísafjarðar og margir fara
þarna daglega um vegna vinnu.
Brýnasta
verkefnið
KOSTA 8 MILLJARÐA
„Við tökum þessa ákvörðun vegna
þess að formaður Íslensku þjóð-
fylkingarinnar er fullkomlega
áhugalaus um framgang hugsjóna
og stefnu flokksins,“ sagði Gústaf
Adolf Níelsson sagnfræðingur í
samtali við mbl.is í gær en hann og
Gunnlaugur Ingvarsson bifreið-
arstjóri hafa ákveðið að draga
framboð sín fyrir Íslensku þjóð-
fylkinguna til baka. Þeir leiddu
hvor sinn framboðslistann, í
Reykjavíkurkjördæmunum tveim-
ur.
Stjórn Íslensku þjóðfylking-
arinnar gaf í kjölfarið út yfirlýs-
ingu þar sem hún greinir meðal
annars frá því að Gústaf hafi oftar
en einu sinni hótað því að fengi
hann ekki sínu framgengt innan
flokksins myndi hann nota krafta
sína til þess að „drepa“ framboðið.
Uppákoman muni þó í engu hafa
áhrif á framboðsmál flokksins í
Reykjavík.
Oddvitar
hætta við
framboð
Gústaf Adolf
Níelsson
Gunnlaugur
Ingvarsson
Harðar ásakanir
í yfirlýsingum