Morgunblaðið - 14.10.2016, Page 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2016
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Rússneskar og sýrlenskar orrustu-
þotur létu sprengjum rigna yfir
Aleppo, stærstu borg Sýrlands, í
gær, en í seinustu hrinu loftárása,
sem varði nær sleitulaust í tvo sólar-
hringa, létust meira en 70 almennir
borgarar. Þeirra á meðal eru sjö
börn. Á sama tíma og herþoturnar
héldu úti árásum sóttu hersveitir
Bashars al-Assad Sýrlandsforseta á
jörðu niðri inn í austurhluta Aleppo
þar sem uppreisnarmenn ráða ríkj-
um og mættu þeir mikilli mótspyrnu.
Loftárásirnar hófust strax við
dögun og voru þá, að sögn mannrétt-
indasamtaka Syrian Observatory for
Human Rights, gerðar árásir á yfir
20 staði í austurhlutanum. Í gær-
kvöldi var búið að endurheimta lík
minnst sjö almennra borgara úr
húsarústunum. Þá greinir ríkis-
fréttastofa Sýrlands einnig frá því að
fjögur ung börn hafi látið lífið þegar
eldflaug uppreisnarmanna hafnaði á
skólabyggingu í vesturhluta Aleppo.
Að sögn fréttaveitu AFP tókst
stjórnarhermönnum að leggja undir
sig nokkrar hæðir við úthverfi í norð-
austurhluta borgarinnar. Þaðan eru
þeir sagðir hafa gott útsýni yfir nær-
liggjandi svæði og staðsetningu upp-
reisnarsveita sem kann að reynast
hernum mikilvægt þegar kemur að
því að samhæfa frekari aðgerðir.
Miskunnarlausar árásir
Stórsókn sýrlenska hersins inn í
Aleppo hófst 22. september síðastlið-
inn. Markmið hennar er að sameina
borgina undir stjórn Assads, en frá
upphafi sóknar hersins hafa rúss-
neskar og sýrlenskar hersveitir
drepið yfir 370 almenna borgara og
af þeim eru 68 börn. Sprengjur upp-
reisnarsveita hafa á sama tíma drep-
ið 68 almenna borgara.
Þetta mikla mannfall hefur aukið
þrýsting á stjórnvöld í Kreml sem
hafa verið harðlega gagnrýnd af al-
þjóðasamfélaginu fyrir miskunnar-
lausar loftárásir á Aleppo. Meðal
þeirra sem lýst hafa yfir andúð sinni
á árásunum er Melvut Cavusoglu,
utanríkisráðherra Tyrklands, en
hann ásamt fulltrúum sex ríkja við
Persaflóa fordæmir aukna hörku
hersveita Sýrlands og Rússlands og
loftárásir þeirra á almenna borgara
og helstu innviði Aleppo.
„Við hörmum mjög getuleysi ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna í að
taka ákvörðun um að stöðva loft-
hernaðinn og sprengjuárásir á íbúa
Aleppo,“ segir í tilkynningu.
Þrátt fyrir að Tyrkir líti svo á að
tími Assads forseta í embætti sé lið-
inn hafa samskipti þeirra við Rússa,
helsta bandamann Assads, batnað að
undanförnu. Adel al-Jubeir, utanrík-
isráðherra Sádi-Arabíu, segir það af
hinu góða og „e.t.v. opna fyrir tæki-
færi“ á lausn í Sýrlandi. „Tyrkir sjá
stöðuna í Sýrlandi eins og við.“
Íbúar Aleppo eru stráfelldir
í grimmilegum lofthernaði
Yfir 370 almennir borgarar drepnir frá upphafi sóknar hersins 22. september
AFP
Óvissa Ljósmyndari AFP gekk í gær fram á þennan sýrlenska dreng þar sem hann lá særður og beið eftir lækni.
Jaber al-Bakr, 22 ára Sýrlendingur
sem handtekinn var í Þýskalandi
vegna gruns um að hafa lagt á ráð-
in um hryðjuverk þar í landi, fannst
látinn í fangaklefa sínum.
Er hann sagður hafa hengt sig
með stuttermabol sínum, en fang-
elsisyfirvöld segja hann ekki hafa
verið undir sérstöku eftirliti fanga-
varða þar sem hann hafi ekki verið
talinn líklegur til sjálfsvígs. „Hann
var þögull og rólegur, það benti
ekkert til þess að hann væri í
tilfinningalegu uppnámi,“ segir
Rolf Jacob, fangelsisstjóri í borg-
inni Leipzig.
Innanríkisráðherra Þýskalands
segir dauðsfallið augljóslega skaða
rannsókn lögreglu á hryðjuverkinu
sem sagt er hafa verið í bígerð.
ÞÝSKALAND
AFP
Vopn Fjölmennt lið lögreglumanna leit-
aði Jabers al-Bakr í vikunni.
Meintur vígamaður
hengdi sig með bol
Þrír karlmenn voru í gær fundnir
sekir um að hafa nauðgað tvítugri
konu á suðurkóresku eyjunni
Heuksan og voru þeir dæmdir í 12,
13 og 18 ára fangelsi. Fréttaveita
AFP greinir frá því að fórnar-
lambið hafi verið grunnskólakenn-
ari og m.a. kennt börnum tveggja
hinna dæmdu.
Fyrir dómi kom fram að konan
hefði setið á veitingastað og hitt
þar ofbeldismennina fyrir tilviljun.
Þeir hefðu svo pantað handa henni
drykki og að lokum farið með kon-
una heim þar sem þeir beittu hana
grófu kynferðislegu ofbeldi.
SUÐUR-KÓREA
Brutu gróflega gegn
kennara barna sinna
Dagblaðið The Washington Post
hefur opinberlega lýst yfir stuðn-
ingi sínum við framboð Hillary
Clinton, forsetaefnis demókrata, til
embættis forseta Bandaríkjanna.
Er ástæðan sögð hæfni hennar til
að gegna embættinu og sá uggur
sem fylgir þeirri tilhugsun að Do-
nald Trump, forsetaefni repúblik-
ana, flytji inn í Hvíta húsið.
„Hillary Clinton hefur burði til að
vera frábær forseti Bandaríkjanna
og við styðjum hana hiklaust,“ seg-
ir í yfirlýsingu ritstjórnar blaðsins.
„Nei, við erum ekki að koma
fram með þessa stuðningsyfirlýs-
ingu einungis af því að höfuðand-
stæðingur Clinton er hræðilegur.
Forsetaefni Repúblikanaflokksins,
Donald Trump, er hræðilegur, það
er vissulega rétt – óhæfur sem for-
setaefni. Ef við tryðum því að Clin-
ton væri skárri kostur af tveimur
slæmum, myndum við sennilega
hvetja þig til að kjósa hana samt –
svo sterka skoðun höfum við á
herra Trump,“ segir ennfremur.
Þá er í yfirlýsingunni tekið fram
að Clinton sé vissulega ekki án
galla og hafi tekið feilspor, m.a. í
kosningabaráttunni þegar hún
gerði tilraun til að leyna veikindum
sínum. „Við erum ekki blind fyrir
þessu,“ segir ritstjórnin.
„Clinton-hjónin vita það“
Á fundi sem Trump átti með
stuðningsmönnum sínum sagðist
hann vera undir stöðugum árásum
þar sem hann er m.a. sakaður um
lítilsvirðingu í garð kvenna. „Þetta
eru algerlega innihaldslausar ásak-
anir og Clinton-hjónin vita það,“
sagði hann. khj@mbl.is
Washington Post
styður Clinton
Ritstjórnin ræðst á Donald Trump
AFP
Forsetaefni Hillary Clinton ávarp-
ar stuðningsmenn sína á dögunum.
fenix 3 sameinar glæsilega hönnun og fjölnota GPS snjallúr
Íþrótta- og útivistarfólk þarf ekki lengur að velja á milli – fenix 3 er bæði fullkomið íþróttaúr, útivistarúr,
snjallúr og úr sem þú notar daglega í vinnu og leik. Þú getur einnig sérsniðið úrið að þínum þörfum með
mismunandi upplýsingagluggum, forritum eða úraskífu með Connect IQ appinu frá Garmin.
Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogur, sími 577 6000, garmin.is
toppaðu
gærdaginn
Allsherjarþing
Sameinuðu þjóð-
anna skipaði í
gær Antonio Gu-
terres nýjan
framkvæmda-
stjóra Samein-
uðu þjóðanna,
en hann mun
formlega taka
við embættinu
um næstu áramót.
Guterres er 67 ára gamall og
hefur hann m.a. gegnt embætti
forsætisráðherra Portúgals og
stöðu yfirmanns flóttamanna-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna.
Er hann var í framboði til fram-
kvæmdastjóra lofaði hann að
beita sér fyrir auknum mannrétt-
indum og endurbótum innan
Sameinuðu þjóðanna.
Í ávarpi sem Guterres flutti í
gær vék hann m.a. að átökunum í
Sýrlandi og sagði nú tímabært að
„berjast fyrir friði“ og líta
framhjá þeim ágreiningi sem uppi
er innan alþjóðasamfélagsins
varðandi það hvernig best sé að
tryggja frið.
Tímabært að berjast fyrir friði
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR
Antonio
Guterres