Morgunblaðið - 14.10.2016, Page 35
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2016
og til 14 ára aldurs í Gaularási í
Austur-Landeyjum hjá yndislegu
fólki. En nú bý ég í húsi sem var
byggt árið 1951 á Digraneshálsinum
í Kópavogi. Það var eitt af fyrstu
húsunum sem voru byggð þar í
trássi við hið furðulega Fjárhagsráð
þess tíma.“
Skólaganga Aaage hófst er hann
var átta ára, í Barnaskóla Austur-
bæjar, síðan fór hann í gagnfræða-
skóla, stundaði síðan nám í rafiðn við
Iðnskólann í Reykjavík, framhalds-
nám í raftæknifræði í Stockholms
tekniska institut og loks framhalds-
nám í rekstrartæknifræði í Norrens
korrespondense institut í Svíþjóð.
Aage stundaði rafveitustörf í 35
ár, var starfsmaður hjá Rafmagns-
veitum ríkisins, starfaði við upp-
byggingu rafveitukerfisins á Aust-
fjörðum, var stöðvarstjóri í Grímsár-
virkjun og síðan rafveitustjóri
Vestfjarðaveitu. Þrátt fyrir anna-
söm ábyrgðarstörf á þessu sviði hafa
skólamál og iðnmenntun alltaf verið
Aage hugleiknust. Hann var skóla-
stjóri við Iðnskóla Ísafjarðar 1964-
74: „Skólinn var stofnaður 1902 af
iðnaðarmönnum og var mikið fræða-
setur á fyrri hluta 20. aldar.
Á mínum skólastjóraárum var
Iðnskóli Ísafjarðar gerður að fyrsta
fjölverknámsskóla Íslands, þar sem
sameinað var iðnnám, skipstjórnar-
nám, vélfræðinám og frumnám fyrir
tæknifræðinám. Skólinn útskrifaði
fyrstu stúdentana á Ísafirði. Náms-
fyrirkomulagi var breytt, sem
styrkti verulega gæði námsins með
minni tilkostnaði.“
Aage var síðan deildarstjóri
rekstrardeildar Tækniháskólans,
1984-94 og vann þá að því að efla
rekstrarnám skólans: „Ég hef lengi
verið sannfærður um að skólastörf
séu í raun mikilsverðustu störf hvers
þjóðfélags.“
Loks má geta þess að Aage sinnti
fiskeldisstörfum í 18 ár: „Ef til vill
var það fjölskylduvænasta starfið í
lífshlaupinu.“
Aage sat í áróðursnefnd um stofn-
un menntaskóla á Ísafirði, var for-
maður byggingarnefndar Sjúkra-
hússins á Ísafirði, kom að stofnun
Tækniþjónustu Vestfjarða, hefur
verið félagi í Alþýðubandalaginu á
Ísafirði og sat 16 Fjórðungsþing
Vestfirðinga, var bæjarfulltrúi á Ísa-
firði í 12 ár, ritstjóri blaðsins Vest-
firðingur 1977-81, var virkur í starf-
semi Iðnnemasambands Íslands,
formaður nefndar um námskrá fyrir
nýja iðngrein rafveituvirkja, var for-
maður í Orkuráði og stýrði byggingu
fjarvarmaveitu á Ísafirði.
Fjölskylda
Eiginkona Aage var Anne-Marie
Jensen Steinsson, f. 22.10. 1929, d.
24.12. 2007, frá Narvík í Noregi.
Hún var kennari í þýsku og norður-
landamálum en foreldrar hennar
voru August Martein Jensen, f. í Mo
í Rana í Noregi 15.5. 1906, d. 1985,
fulltrúi hjá norsku járnbrautunum,
og Dagmar Ingrid Amundsen, f. í
Valle í Noregi 9.2. 1909, d. 1933. Þau
bjuggu í Narvík.
Börn Aage og Önnu-Marie eru
Torfi Steinsson, f. 8.3. 1950, fyrrv.
skólastjóri á Barðaströnd, og á hann
sjö börn; 2) Árni Steinsson, f. 16.2.
1952, framkvæmdastjóri á Akureyri,
kvæntur Kristrúnu Gísladóttur og
eiga þau fjögur börn; 3) Bryndís
Magna Steinsson, f. 20.6. 1953,
deildarstjóri í Kópavogi, gift Erni
Eyjólfssyni og eiga þau þrjú börn; 4)
Eva Dagmar Steinsson, f. 25.7. 1954,
deildarstjóri í Kópavogi, gift Krist-
jáni Guðjónssyni og eiga þau fjögur
börn; 5) Sjöfn Heiða Steinsson, f.
14.3. 1957, leikskólakennari og túlk-
ur, búsett í Bandaríkjunum, gift
Halldóri Þorgeirssyni og eiga þau
tvö börn, og 6) Steinn Ágúst Steins-
son, f. 20.1. 1959, verkfræðingur í
Mývatnssveit, var kvæntur Helle
Steinsson og eiga þau þrjú börn. Af-
komendur Aage eru nú 55 talsins.
Aage er nú einn á lífi systkinanna
sem voru sjö talsins.
Foreldrar Aage voru Jóhann
Torfi Steinsson, f. 6.6. 1887, d. 11.11.
1966, vélstjóri í Reykjavík, og k.h.,
Esther Judith Steinsson, f. 23.6.
1898, d. 24.4. 1972, húsfreyja í
Reykjavík.
Aage verður að heiman á afmælis-
daginn.
Úr frændgarði Aage Steinson
Aage
Steinsson
Gunnhild Larsdotter
húsfr. í Bräkne Blekning
Gummi Håkonarson
b. í Bräkne Bleking í Svíþjóð
Mathilda Gummesdóttir
húsfreyja í Rönni
Aage Andersson
járnsmiður í Rönni á
Borgundarhólmi
Esther Judith Steinsson
húsfreyja í Rvík
Anne Nielsdotter
húsfr. á Baldringen
Anders Åkeson
b. í Baldringen á Skáni í Svíþjóð
Guðrún Aradóttir
húsfr. í Höfða
Jón Tómasson
b. í Höfða í Mýrarhr.
Helga Jónsdóttir
húsfr. í Hvammi
Steinn Kristjánsson
b. í Hvammi, Þingeyrarhr.
Jóhann Torfi Steinsson
vélstjóri í Rvík
Þorbjörg Eyjólfsdóttir
vinnukona í Hvammi
Kristján Jónsson
b. í Hvammi
Egill Ólafsson fæddist á Hnjótivið Örlygshöfn 14.10. 1925.Foreldrar hans voru Ólafur
Magnússon frá Örlygshöfn, bóndi
þar, og k.h., Ólafía Egilsdóttir frá
Sjöundá, ljósmóðir í Rauðasands-
hreppi.
Eiginkona Egils var Ragnheiður
Magnúsdóttir, húsfreyja og bóndi,
frá Flatey á Breiðafirði, en hún lést
2001.
Synir þeirra: Ólafur, f. 1954; Egill
Steinar, f. 1955, d. 1969; Kristinn
Þór, f. 1958, og Gunnar, f. 1962. Fyr-
ir átti Ragnheiður Magnús Jónsson,
f. 1947.
Egill bjó á Hnjóti alla tíð. Hann
var vinsæll og vinmargur, frum-
kvöðull í ræktun og búskap, gestris-
inn og framfarasinnaður.
Egill var landgræðsluvörður
Landgræðslunnar í Vestur-Barða-
strandarsýslu á fjórða áratug,
gegndi því starfi af miklum dugnaði
og stöðvaði m.a. sandfok við Sauð-
lauksdal og Patreksfjarðarflugvöll.
Egils verður þó að öllum líkindum
lengst minnst fyrir elju sína við
björgun menningarverðmæta. Á
Minjasafni Egils Ólafssonar að
Hnjóti við Örlygshöfn er einstætt
safn frá sunnanverðum Vest-
fjörðum, sem vitnar um sögu sjó-
sóknar, landbúnaðar og daglegs lífs
og veitir innsýn í lífsbaráttu, útsjón-
arsemi og sjálfsbjargarviðleitni fyrri
kynslóða, oft við afar erfiðar að-
stæður. Á safni Egils er m.a. að
finna hattinn hans Gísla á Uppsölum
og muni frá björgunarafrekinu við
Látrabjarg 1947. Þá var hann sjálfur
óþrjótandi fróðleiksbrunnur sem
með frásögnum sínum gæddi fortíð-
ina nýju lífi. Minjasafn hans var
stofnað 22.6. 1983 er þau hjónin gáfu
Vestur-Barðastrandarsýslu safnið.
Árið 1973 tók Egill við starfi um-
sjónarmanns flugvallarins við Pat-
reksfjörð og þá fór hann að draga að
sér muni úr vestfirskri flugsögu og
raunar flugsögu landsins alls. Í kjöl-
farið reis á Hnjóti ótrúlegt flugsafn,
sem hann ánafnaði Flugmálastjórn.
Egill lést 25.10. 1999.
Merkir Íslendingar
Egill
Ólafsson
90 ára
Aage Steinsson
85 ára
Dagbjört Guðmundsdóttir
Leifur Ásgrímsson
80 ára
Anna S. Lorange
Erna Sörensen
Karólína Bernharðsdóttir
Ólafur Bergþórsson
Theodórs
Styrmir Haukdal
Þorgeirsson
75 ára
Matthildur Jóhannsdóttir
70 ára
Björn Ingvarsson
Björn J. Jónsson
Guðmunda Guðlaugsdóttir
Halldór Ingi Guðmundsson
Hjördís Elíasdóttir
Jóhanna Guðrún
Þorgeirsdóttir
María Jóhanna Lárusdóttir
Ómar Haraldsson
60 ára
Ása Steinunn Atladóttir
Hafsteinn Jónsson
Héðinn Sveinsson
Jóhann Bjarnason
Kristján Sverrisson
Lilja Brandsdóttir
Pálmi Egilsson
Pálmi Þór Ævarsson
Sigrún Jóna Jóhannsdóttir
Sigurður Björgvin
Jóhannsson
Sigurður Ingvarsson
Vera Guðrún Jóhannsdóttir
Zenaida Blasi
50 ára
Davíð Jón Arngrímsson
Gísli Marinó Auðbergsson
Guðbjartur Hinriksson
Gunnhildur Þ. Pétursdóttir
Hlynur Hjörleifsson
Janis Grazijs
Ragnheiður B.
Jóhannesdóttir
Sigurður Sverrir Árnason
Stanislaw Wojciech
Wozniak
Steindóra Á. Sigurðardóttir
Steindór Jóhann Erlingsson
Þorsteinn Þorsteinsson
Þórdís Guðný Magnúsdóttir
Þórður Þórðarson
40 ára
Andri Már Jónsson
Freyr Halldórsson
Hjördís Hildur
Jóhannsdóttir
Jóna Björg Karlsdóttir
Kolbrún Eva Pálsdóttir
Óskar Þór Ólafsson
Sigurður Sigurbjörnsson
Snorri Þór Tryggvason
Vevian Talledo Merafuentes
Þórarinn Líndal
Steinþórsson
30 ára
Andrzej Miekiszewski
Erna Rósa Eyþórsdóttir
Gunnar Reynir Steinarsson
Hilmar Þór Gunnarsson
Poulsen
Jaroslaw Krzysztof
Kawalko
Jóhanna Gunnarsdóttir
Jóhanna Rafnsdóttir
Jón Kristinn Skúlason
Jón Reynir Sveinsson
Ragnheiður Helga
Sæmundsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Ragnheiður býr í
Svíþjóð, lauk MSc-prófi í
vinnusálfræði og er í MA-
námi í klínískri sálfræði.
Maki: Hafsteinn Daníel
Þorsteinsson, f. 1981,
læknir.
Börn: Sæmundur, f. 2011,
og Elísabet, f. 2015.
Foreldrar: Sæmundur
Hafsteinsson, f. 1954, d.
2010, sálfræðingur, og
Auður Bragadóttir, f.
1958, deildarstjóri hjá Út-
lendingastofnun.
Ragnheiður H.
Sæmundsdóttir
30 ára Jón Reynir ólst
upp í Þorlákshöfn, býr
þar, lauk sveinsprófi í
húsasmíði og starfar hjá
Trésmiðju Heimis.
Maki: Erla Sif Markús-
dóttir, f. 1989, kennari í
Þorlákshöfn.
Sonur: Markús Alex, f.
2013.
Foreldrar: Sveinn Jóns-
son, f. 1959, skipstjóri, og
Jóna Svava Karlsdóttir, f.
1963, starfsmaður við
leikskólann í Þorlákshöfn.
Jón Reynir
Sveinsson
30 ára Jóhanna ólst upp í
Mosfellsbæ, býr þar, lauk
sjúkraliðaprófi og stundar
nú nám í dönsku við HÍ.
Maki: Atli Freyr Krist-
ófersson, f. 1983, bygg-
ingafræðingur.
Sonur: Mímir Atlason, f.
2013.
Foreldrar: Jóhanna Pét-
ursdóttir, f. 1949, fyrrv.
starfsmaður við Seðlanka
Íslands, og Rafn Guð-
mundsson, f. 1950, verk-
stjóri hjá Hópbílum.
Jóhanna
Rafnsdóttir
Stórar og rúmgóðar 4ra hesta kerrur á tveimur öxlum.
Rist framan á kerru tryggir góða loftun um kerruna.
Öflugir flexitorar veita mjúka og góða fjöðrun. Minna skrölt og minni hávaði.
Stórir og breiðari hjólbarðar á 16” felgum sem hentar vel á slóðum og sveitavegum.
Rampur með timburgólfi sem leikur einn er að setja niður og reisa upp.
Ljós inni í kerru, gúmmímottur í gólfi og þverskilrúm er staðalbúnaður.
Hægt er að fá milligólf inn í kerrurnar fyrir fjárflutninga. Því má líka bæta við eftirá.
ÞÓR FH
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 8:00 - 18:00
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is