Morgunblaðið - 14.10.2016, Síða 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2016
Draumstafur Vegvísir Ægishjálmur
Bankastræti 12, 101 Reykjavík, sími 551 4007, www.skartgripirogur.is
Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-18 og sunnudaga kl. 11-17
Gott úrval - gott verð
Verð 8.500Verð 8.500Verð 8.500
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er mikilvægt að rasa ekki um
ráð fram og dæma eða gera eitthvað sem
ekki verður svo auðveldlega tekið tilbaka.
Eitthvað í undirmeðvitund þinni setur þig
í varnarstöðu.
20. apríl - 20. maí
Naut Hver sem truflunin er tekst þér að
snúa henni þér í hag. Alveg sama hversu
mikið þig langar að hjálpa.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Einhver sem er að reyna að
koma sér áfram steig á tána á þér í leið-
inni. Stundum krefst ástin þess að þú
berjist og stundum að þú gefist upp.
Horfðu á heiminn með augum barnsins.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ástvinir þínir eru ávallt tilbúnir
að styðja þig. Hlustaðu vel á þinn innri
mann, því þú býrð sjálfur yfir lausninni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Væntingar þínar til þinna nánustu
aukast í dag. Meiri tími út af fyrir þig er
forsenda hamingju í sambandi.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér finnst of mikið slúðrað í kring-
um þig. Gættu þess bara að tala ekki of
mikið og sýndu öðrum tillitssemi og
skilning. Láttu ekki aðra fara í taugarnar
á þér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Góðu fréttirnar eru að þú leysir
vandamál. Líklega ertu einungis að
breiða yfir löngun þína til þess að breyta
sjálfum þér á einhvern hátt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Varaáætlunin þín er jafn góð
og aðaláætlunin. Eða þá að vinur lætur
ekki eitthvað sem þú átt von á af hendi.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú þarft ekki kínverskan sér-
fræðing til að segja þér hve mikla chi-
orku þú hefur. Gerðu þér far um að vera
sannur og tillitssamur.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það gerir bara illt verra að láta
sig dreyma þegar engar eru efndirnar.
Hugsanlega mun gamall kærasti eða kær-
asta gefa til kynna að loginn á milli ykkar
sé ekki slokknaður.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert enn og aftur beðinn um
að leysa klípu, en þér leiðist það. Forð-
astu því í lengstu lög að setja þig í slíka
aðstöðu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú þarft aukinn tíma til hvíldar og
slökunar. Með því ertu einfaldlega að
skapa rúm fyrir nýja hluti. Vertu sterkur
– ekki eins og fluga á ljósaperu.
Páll Imsland fór á kráarrölt ogkastaði kveðju á Leirliðið í
vatnsaganum: „Það eru sumir svo
helv. duglegir við yrkingar um víf
og vín á leirnum. Ég hef aldrei náð
lagi á því, þó ég reyni. Það verður
allt svo ofurnett og pent. Dæmi:
Að rölta hér rétt út á krá
og renna í einstöku tá
er ánægja manns
og uppáhald hans
og að kíkja á kellingar – smá.“
Aftur er Páll á ferðinni „á síð-
kvöldi vonbrigðanna“:
Ég hef lagt mér að baki mörg löbb
harla léttfættur út á minn pöbb.
Fann þar lokaðar dyr
sem að lukust upp fyr.
Ég þoli’ ekki þess háttar göbb.
Nú eru kosningar í vændum og
„fleiri í vanda“. Ármann Þor-
grímsson yrkir:
Ætla að kjósa enn á ný
sinn æðsta strump
hafa val um Hillary
og hrappinn Trump.
Eins og við var að búast fara
haustrigningarnar ekki framhjá
vísnasmiðum. Ingólfur Ómar skrif-
aði í Leirinn á miðvikudaginn:
„Skrapp í kvöldgöngu í roki og
rigningu og varð hundvotur:
Regnið lemur kalda kinn
kári er með í ráðum.
Skyldi ekki skaparinn
skrúfa fyrir bráðum?“
Jón Arnljótsson gat ekki orða
bundist: „Þetta finnst mér góð vísa!
Fyrst er glögg lýsing á ákveðnu
ástandi (slagviðri) þó með skáld-
legu orðalagi og síðan ráð til úr-
bóta í spurnarformi. Svo þessi tæri
einfaldleiki í uppbyggingu.“
Og enn kveður Ingólfur Ómar:
Lemur hreysið lægðin stinn
ljóra utan skekur.
Heyrðu, kæri Herrann minn,
himintjaldið lekur!
Hallmundur Guðmundsson segir
frá sinni reynslu á Boðnarmiði:
Það er sem að regnið rjúki,
rakleiðis upp brækurnar.
Svo um koll ei konur fjúki,
koma sér vel hækjurnar.
Magnús Halldórsson segir að „við
þessu mátti búast eins og við höfum
látið við Sigmund:
Veðurkortið lagt er línum,
loka væntir brotleg þjòð.
Sem ekki bað í óskum sínum
um svo magnað syndaflóð.“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Trump og hann rignir
og hann rignir
Í klípu
„HANN ER OF STJÓRNSAMUR.“
S A M B A N D S -
R Á Ð G J Ö F
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„MUNDU BARA Í ÞESSU FRÍI ÞÍNU
HVER FÆRÐI ÞÉR SÝKLANA.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... daglega meðalið.
HEIMURINN
ER LÍTILL.
EINS OG ÉG HAFI
EKKI HEYRT ÞENNAN
MILLJÓN SINNUM!
LÚTI, FAÐIR MINN
VILL EKKI AÐ ÉG
GIFTIST ÞÉR...
HANN
SEGIR AÐ ÞÚ
EIGIR ENGA
PENINGA!
ÞAÐ ER VEGNA
ÞESS AÐ ÉG
FJÁRFESTI Í
TÓNLISTAR-
FERLINUM!
ÉG VARÐ AÐ SKIPTA
ÚT STRENG!
Eflaust veit ekki nokkur maður umhvað var rætt og því síður hvað
var samþykkt á Alþingi í fyrradag.
Ástæðan er sú að allir voru uppteknir
við að horfa á þingmann með barn sitt
á brjósti í ræðustól.
x x x
Víkverja finnst eðlilegasti hlutur íheimi að vera með barn á brjósti
hvenær sem er og hvar sem er enda
eru framundan tímar þar sem allt má
hvar og hvenær sem er. Ekki síst á
Alþingi.
x x x
Hafa ber í huga að almenningur berekki mikið traust til Alþingis,
samkvæmt könnunum, og því er eðli-
legt að þingmenn leiti allra leiða til
þess að vinna sér inn traust og þar
með atkvæði. Að mæta með barn á
brjósti í ræðustól Alþingis er ekki vit-
lausara en margt annað, það vakti at-
hygli og þar með var tilgangnum náð.
x x x
Þetta er samt svolítið seint í rassinngripið hjá þingmanninum og
hefði hann gert þetta fyrir prófkjör
hefði hann hugsanlega náð öruggara
sæti. En framtakið hlýtur að örva
aðra þingmenn til verka og Víkverji
bíður spenntur eftir næstu uppá-
komu.
x x x
Þingfrestun var á Alþingi í gær ognýtt þing kemur saman að lokn-
um kosningum. Þá sést hvaða flokkar
verða í útrýmingarhættu og hvaða
þingmenn standa höllum fæti. Ætla
má að einhverjir úr þeirra röðum snúi
vörn í sókn, geri eitthvað sem senni-
lega hefur aldrei verið gert innan
veggja Alþingis.
x x x
Palli Guðjóns verður eflaust feng-inn til þess að koma í ræðustól
Alþingis með ræðuna góðu og hnit-
miðuðu: „Góðir Íslendingar. Þetta er
okkar staður. Þetta er okkar stund.
Áfram Ísland!“ Eftir að hann hefur
horfið á braut ætti ekki að koma á
óvart að sjónvarpsvélunum verði
fjölgað og sýnt verði frá öllu sem fyrir
augu ber í þingsalnum í beinni út-
sendingu sjónvarps. Augljóst næsta
skref. víkverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er góður, miskunn hans var-
ir að eilífu og trúfesti hans frá kyni til
kyns.
(Sálm. 100:5)