Morgunblaðið - 14.10.2016, Blaðsíða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2016
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
Bandaríska söngvaskáldið Bob Dyl-
an hlaut nokkuð óvænt Nóbels-
verðlaunin í bókmenntum í gær.
Dylan hefur áður þótt koma til
greina en hafði lítið verið í um-
ræðunni að þessu sinni. Hann fær
verðlaunin fyrir að hafa skapað
nýja ljóðræna túlkun innan banda-
rísku tónlistarhefðarinnar.
„Ef til vill eru tímarnir að breyt-
ast?“ sagði Sara Danius, talsmaður
Sænsku akademíunnar, við blaða-
menn er hún kynnti val dómnefnd-
ar og vísaði þannig í eitt frægasta
lag Dylans, The Times They Are a-
Changin’. Þá líkti hún hinum ný-
bakaða verðlaunahafa við grísku
fornskáldin Hómer og Saffó.
„Hann á þetta svo innilega skil-
ið,“ hélt Danius áfram. „Hann er
mikið skáld innan hinnar ensku-
mælandi hefðar og hefur haldið sig
við efnið í 54 ár – og endurnýjað sig
stöðugt.“
Kvaðst hún vona að valið yrði
ekki gagnrýnt.
Í hópi áhrifamestu dægur-
tónlistarmanna sögunnar
Dylan heitir réttu nafni Robert
Allen Zimmerman og fæddist í Du-
luth í Minnesota árið 1941. Lista-
mannsnafnið, Dylan, tók hann sér
til heiðurs ljóðskáldinu Dylan
Thomas. Fyrsta breiðskífa hans,
sem nefndist einfaldlega Bob Dyl-
an, kom út árið 1962 og næstu árin
rak hver platan aðra sem með góðri
samvisku má kalla meistaraverk.
37. hljóðversplata Dylans, Fallen
Angels, kom út fyrr á þessu ári.
Hann er í hópi áhrifamestu dæg-
urtónlistarmanna sögunnar.
Búist hafði verið við tilkynning-
unni í síðustu viku, um leið og vís-
indaverðlaunin voru kynnt, og
menn velta nú fyrir sér hvort töfin
stafi af því að ekki hafi verið ein-
hugur innan nefndarinnar, en í
henni sitja átján manns. Talsmaður
Sænsku akademíunnar gerði lítið
úr þessu í gær; ágætt gæti verið að
dreifa tilkynningunum yfir aðeins
lengri tíma. Björn Wiman, frétta-
stjóri menningar hjá sænska dag-
blaðinu Dagens Nyheter, er hins
vegar sannfærður um að ágrein-
ingur hafi risið innan nefndarinnar.
„Í mínum huga er þetta ekki spurn-
ing um dagsetningar. Töfin er til
marks um að ágreiningur hafi verið
um vinningshafann einhvers staðar
í ferlinu,“ sagði hann við the South
China Morning Post.
Fyrsti Bandaríkja-
maðurinn í 23 ár
Nóbelsverðlaunin í bókmenntum
hafa ekki farið til Bandaríkjanna
síðan árið 1993 er skáldkonan Toni
Morrison hlaut þau. Fræg eru um-
mæli Horace Engdahl, þáverandi
talsmanns Nóbelsnefndarinnar, frá
árinu 2008 þess efnis að Bandaríkin
væru of þröngsýn og einangruð í
þessu sambandi. Þau þýddu ekki
nægilega mikið af verkum og færu
fyrir vikið á mis við orðræðuna um
bókmenntir. „Sú fáfræði er heft-
andi,“ sagði hann.
Nú hefur nefndin greinilega skipt
um skoðun, alltént meirihluti henn-
ar, en þess má geta að Engdahl er
ekki lengur í forsvari fyrir hana
enda þótt hann eigi enn sæti í
nefndinni.
Veðbankar hölluðust helst að því
að japanski rithöfundurinn Haruki
Murakami hlyti verðlaunin að
þessu sinni en Ngugi wa Thiong’o
frá Keníu og Bandaríkjamaðurinn
Don DeLillo þóttu einnig líklegir.
Fjölmargir hafa óskað Dylan til
hamingju með verðlaunin, þeirra á
meðal Barack Obama Bandaríkja-
forseti. „Ég óska einu af uppáhalds-
skáldunum mínum, Bob Dylan, til
hamingju með verðskulduð Nóbels-
verðlaun,“ skrifaði hann á Twitter.
Bob Dylan hefur tvisvar haldið
tónleika í Laugardalshöll; í fyrra
skiptið 27. júní 1990 og það síðara
26. maí 2008.
AFP
Goðsögn Bob Dylan er fyrsta söngvaskáldið til að hljóta Nóbelsverðlaun.
Ef til vill eru tím-
arnir að breytast?
Bob Dylan fékk Nóbelsverðlaunin
Inferno
Inferno er byggð á samnefndri
fjórðu bók Dans Brown um æv-
intýri táknfræðingsins Roberts
Langdon. Sem fyrr fer Tom Hanks
með hlutverk Langdon, en í öðrum
lykilhlutverkum eru Felicity Jones,
Omar Sy og Sidse Babett Knudsen.
Leikstjóri er Ron Howard.
Rotten Tomatoes: 27%
Metacritic: 36/100
Captain Fantastic
Viggo Mortensen leikur föður sem
beitir miklum aga í uppeldi á börn-
unum sínum sex. Myndin var frum-
sýnd á Sundance-kvikmyndahátíð-
inni og sýnd í flokknum Un Certain
Regard á kvikmyndahátíðinni í
Cannes. Leikstjóri er Matt Ross.
Rotten Tomatoes: 82%
Metacritic: 72/100
Bíófrumsýningar
Táknfræðingur og pabbi
Agi Viggo Mortensen með börnin.
Bridget Jones siglir inn í fimmtugsaldurinn í
glænýjum kafla, nú orðin einhleyp, á fullu í
ræktinni og vinnur sem framleiðandi hjá sjón-
varpsstöð.
Metacritic 59/100
IMDb 7,4/10
Laugarásbíó 18.00, 20.00
Sambíóin Kringlunni 17.20, 20.00, 22.20
Sambíóin Keflavík 17.20
Smárabíó 12.00
Háskólabíó 18.10, 21.10
Borgarbíó Akureyri 20.00
Bridget Jones’s Baby 12
Þegar Finnur hjartaskurð-
læknir áttar sig á að
dóttir hans er komin í
neyslu og kynnir þekktan
dópsala fyrir fjölskyldunni
sem nýja kærastann,
koma fram brestir í
einkalífinu.
IMDb 7,7/10
Smárabíó 17.35, 20.10,
22.40
Háskólabíó 18.10, 21.10
Eiðurinn 12
Myndin fjallar um atburðina árið 2010 á olíuborballi BP olíu-
fyrirtækisins á Mexíkóflóa, og það sem gerðist á síðustu 48
tímunum áður en sprenging varð um borð með þeim afleið-
ingum að 11 manns létu lífið og 16
slösuðust, auk þess sem mikið um-
hverfisslys varð þegar olía fór í flóann.
Metacritic 65/100
IMDb 7,6/10
Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 22.40
Sambíóin Akureyri 20.00, 22.30
Deepwater Horizon 12
The Girl on the
Train 16
Metacritic 47/100
IMDb 6,8/10
Sambíóin Álfabakka 17.30,
20.00, 22.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 17.30,
20.00, 22.20
Sambíóin Akureyri 20.00,
22.30
Sambíóin Keflavík 20.00,
22.35
Inferno 12
Robert Langdons rankar við
sér á ítölskum spítala og
þarf skyndilega að leysa gát-
ur tengdar miðaldaskáldinu
Dante.
Sambíóin Keflavík 20.00,
22.35
Smárabíó 12.00, 16.45,
17.20, 19.30, 20.00, 22.20,
22.40
Háskólabíó 18.00, 21.00
Með allt á hreinu
Sing along.
Sambíóin Kringlunni 20.00
Can’t Walk Away
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.00
Sully 12
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 74/100
IMDb 7,9/10
Sambíóin Álfabakka 17.50,
20.00, 22.00
Sambíóin Egilshöll 17.50,
20.00, 22.10
Middle School Laugarásbíó 16.00, 18.00
Smárabíó 15.30, 17.45
Borgarbíó Akureyri 17.40
War dogs 16
Metacritic 57/100
IMDb 7,2/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Don’t Breathe 16
Rocky er ung kona sem þráir
betra líf fyrir sig og systur
sína. Hún samþykkir að taka
þátt í innbroti með kærast-
anum sínum.
Metacritic 71/100
IMDb 7,6/10
Smárabíó 22.50
Mechanic:
Resurrection 16
Metacritic 38/100
IMDb 5,8/10
Sambíóin Álfabakka 22.20
Heimili fröken
Peregrine fyrir
sérkennileg börn 12
Metacritic 53/100
IMDb 7,2/10
Laugarásbíó 17.00
Smárabíó 17.20, 20.10
Háskólabíó 18.00, 21.00
Borgarbíó Akureyri 17.40
Bíó Paradís 20.00
Suicide Squad 12
Metacritic 40/100
IMDb 6,7/10
Sambíóin Álfabakka 17.20
The Magnificent
Seven 12
Smábænum Rose Creek er
stjórnað með harðri hendi af
iðnjöfrinum Bartholomew
Bogue.
Metacritic 54/100
IMDb 7,2/10
Laugarásbíó 21.00, 22.30
Smárabíó 20.00, 22.50
Borgarbíó Akureyri 22.20
Storkar
Metacritic 55/100
IMDb 7,2/10
Laugarásbíó 16.00
Sambíóin Álfabakka 16.00,
18.00, 20.00
Sambíóin Egilshöll 18.00
Sambíóin Kringlunni 17.30
Sambíóin Akureyri 18.00
Sambíóin Keflavík 18.00
Leynilíf Gæludýra Metacritic 61/100
IMDb 6,7/10
Sambíóin Álfabakka 16.00,
18.00
Smárabíó 15.30
Robinson Crusoe IMDb 5,3/10
Sambíóin Álfabakka 15.40
Pete’s Dragon
Bönnuð yngri en 6 ára.
Metacritic 71/100
IMDb 7,2/10
Sambíóin Álfabakka 15.20
Neon Demon
Metacritic 51/100
IMDb 6,7/10
Bíó Paradís 22.30
Pale Star
Pale Star fjallar um eig-
ingirni ástarinnar.
Bíó Paradís 20.00
Ransacked
„Partíið. timburmennirnir.
Rándýrin. Slagurinn. Úr-
skurðurinn.“ Íslensku bank-
arnir voru einkavæddir á ár-
unum 2000-2003.
IMDb 7,1/10
Bíó Paradís 22.00, 22.30
Fire At Sea
Metacritic 85/100
IMDb 7,1/10
Bíó Paradís 20.00
Innsæi
Bíó Paradís 18.00
Brotið
Bíó Paradís 18.00
Captain Fantastic
Metacritic 72/100
IMDb 8,1/10
Bíó Paradís 20.15, 22.45
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio