Morgunblaðið - 14.10.2016, Blaðsíða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2016
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
„Mér fannst ég þurfa að kafa aðeins
ofan í sálartetrið og reyna að draga
fram hjartað úr sjálfum mér til að fá
einhvern sannleika í þessi verk.“
Þetta segir Gunnlaugur Briem,
trommuleikari, um tónlistina sem
finna má á nýjustu plötu hans og
hljómsveitarinnar Earth Affair.
Platan kom út í fyrra en tónlist af
plötunni verður flutt í fyrsta skipti í
heild sinni á útgáfutónleikum í
Gamla bíói fimmtudaginn 20. októ-
ber.
Platan er töluvert frábrugðin fyrri
verkum Gulla, eins og hann er jafnan
þekktur, en hann segir að tími sé
kominn til að hann fari nýjar leiðir.
„Ég hef ekki leyft mér að koma
þessu saman sem tónleikaefni fyrr
en nú. Mér fannst ég þurfa að gera
það og setja pressu á mig með að
gera nýja hluti og spila þetta á tón-
leikum.“ Gulli lýsir tónlistinni jafn-
framt sem myndrænni. „Ég sé sögur
og það eru tilfinningar sem spila inn í
þetta.“
Hljómsveitin Earth Affair hefur
verið starfandi með hléum frá árinu
2006, þegar fyrsta plata sveitarinnar
kom út. „Það voru svolítið mikil læti í
kringum hana. Morten Harket,
söngvari A-ha, söng eitt lag, „Gildas
Prayer“ sem var mjög skemmtilegt
og tókst vel,“ segir Gulli. Í framhaldi
af útgáfu plötunnar bauðst sveitinni
að spila á tónleikum samtaka Nelson
Mandela, 46664, í Noregi en sam-
tökin hafa starfað að vitundarvakn-
ingu gegn alnæmi í Afríku og velferð
barna. „Við fengum tækifæri til að
hitta hann og heyra hans boðskap
sem var mjög mikil upplifun á sínum
tíma og situr í manni. Vegferðin
byrjaði því með háum hvelli en þetta
voru fyrstu tónleikarnir sem Earth
Affair kom fram á. Það hleypti kjarki
í mig til að sjá þetta fyrir mér sem
hliðarverkefni í framhaldinu.“
Þessa dagana er hljómsveitin
skipuð Gulla ásamt Jökli Jörgensen,
ljóðskáldi og bassaleikara, en hann
semur ljóðin á plötunni. Þeim til full-
tingis á tónleikunum verða Arnar
Guðjónsson úr Leaves sem spilar á
gítar, Færeyingurinn Magnus Jo-
hannesen á hljómborð og Sigtryggur
Jóhannsson á hljómborð. „Jökull er
eitt alflottasta íslenska ljóðskáld sem
ég veit um, hann semur mergjaða,
djúpa og krassandi texta,“ segir
Gulli, sem lofar hljómsveitarmeðlim-
ina í hástert. „Arnar spilaði á plöt-
unni og fór hamförum. Magnus er
færeyskur álfur, sérstakur og næm-
ur tónlistarmaður, það er eins og
hann komi úr öðru sólkerfi.“
Tónlist af nýju plötunni, Liberté,
verður flutt á tónleikunum, ásamt
einhverju af eldri verkum hljóm-
sveitarinnar. Gulli mun líka spila lag-
ið „Ocean“ sem hefur notið mikilla
vinsælda á Youtube undanfarið.
Tónlistarlegt leikhús
Heilmikið sjónarspil verður á svið-
inu í Gamla bíói og mun Roland
Hartwell stjórna strengjakvartett.
Ásamt þeim verður Eyþór Ingi
Gunnlaugsson sérstakur gestur með
sveitinni. „Hann er alveg ótrúlega
mikill hæfileikastrákur. Það er fal-
legt í kringum hann og hann er með
tæra og fallega rödd. Ég hlakka til að
hafa hann með,“ segir Gulli. Tónlist
Earth Affair lýsir hann sem eins
konar huglægu tónlistarlegu leikhúsi
þar sem dýnamískar hreyfingar fá að
njóta sín. „Þetta eru öfgakenndar
styrkleikabreytingar, allt frá því að
vera hálfklassísk stemning þar sem
ég stjórna bara veifandi höndum í
allar áttir, yfir í kraftmikla tónlist
þar sem trommurnar fá að njóta
sín.“
Grefur sig inn í sálarlíf
tónleikagesta
Upplifunin skiptir miklu máli og
vonar Gulli að fólk muni upplifa sitt
eigið líf í gegnum tónlistina. „Mér
finnst það spennandi að grafa mig
inn í sálarlíf tónleikagesta og að þeir
fái tækifæri á að upplifa þá stemn-
ingu sem er ríkjandi á þessari plötu.
Undirtónninn er því svolítið þungur
og tregafullur og á köflum er þetta
dramatískt og ég gerði það svolítið af
ásettu ráði. Mér finnst vera komið
svo mikið af hinu, það er að segja
poppskotnu efni og hefðbundnum
jazzi. Sem hluti af Earth Affair lang-
ar mig að blanda saman sjálfum mér
sem trommuleikara og þessari
skrýtnu tónlist og að hún njóti sín
með trylltum trommuleik inn á
milli.“
Tónleikarnir fara fram sem fyrr
segir í Gamla bíói, fimmtudaginn 20.
október klukkan 20:30. Enn er hægt
að nálgast örfáa miða á www.midi.is.
Þetta eru einu tónleikarnir hér á
landi en til stendur að flytja plötuna
og eldri tónlist Earth Affair á tónlist-
arhátíðum í Eystrasaltsríkjunum og
Norðurlöndunum á næsta ári. „Þetta
er stór pakki en ég er vongóður um
að við náum að gera eitthvað sem er
öðruvísi, skemmtilegt og frumlegt,“
segir Gulli. Þess á milli mun hann
ferðast um allar trissur, meðal ann-
ars með Mezzoforte, sem lifir góðu
lífi. „Daginn eftir tónleikana á
fimmtudag erum við í Mezzoforte að
fara til Skandinavíu þar sem við
munum koma fram á fimm tón-
leikum. Það er aldrei lognmolla í
kringum mig, það er bara þannig.“
Dramatísk tónlist af ásettu ráði
Earth Affair, hljómsveit Gulla Briem, kemur fram á útgáfutónleikum í Gamla
bíói Tónlistarlegt leikhús þar sem dýnamískar hreyfingar fá að njóta sín
Morgunblaðið/Eggert
Earth Affair Magnus Johannesen, Jökull Jörgensen, Gulli Briem og Arnar Guðjónsson skipa hljómsveitina Earth
Affair. Sveitin fagnar útgáfu plötunnar Liberté á tónleikum í Gamla bíói fimmtudaginn 20. október.
Billboard hefur
greint frá því að
útgáfufyrirtækin
Warner, Univer-
sal og Sony eigi í
viðræðum við
fulltrúa Prince
um útgáfurétt á
þúsundum
klukkustunda af
tónlist hans. Lög-
fræðingur á vegum aðstandenda
Prince hefur hins vegar gefið það
út að um orðróm sé að ræða. Tón-
listin sem um ræðir er frá 40 ára
ferli Prince og er metin á 35 millj-
ónir dollara eða sem nemur tæpum
fjórum milljörðum króna.
Óútgefin tónlist
Prince ekki til sölu
Prince
Einkasýning á verkum Ragnars
Kjartanssonar myndlistarmanns
verður opnuð í Hirshhorn Museum
og Sculpture Garden í Washington í
dag. Um er að ræða yfirlitssýningu á
verkum Ragnars sem eru, sem
kunnugt er, af ýmsu tagi.
Farið er fögrum orðum um Ragn-
ar í kynningu safnsins. „Verk Ragn-
ars eru töfrandi, áhrifarík og oft og
tíðum fyndin; þau eru í fylkingar-
brjósti gjörningalistarinnar, þar
sem renna saman lifandi leikhús, þar
sem reynt er á þolmörkin, dægur-
tónlist, ljósmyndun, málverk og
teikning. Þessi sýning mun gefa
bandarískum áhorfendum góða
heildarmynd af því sem Ragnar hef-
ur verið að fást við en hann er í senn
einn mest spennandi og vaxandi
myndlistarmaður samtímans.“
Sum verkanna á sýningunni hafa
verið sýnd áður í Bandaríkjunum,
önnur ekki.
Sýningunni lýkur 8. janúar á
næsta ári.
Í fylkingarbrjósti
gjörningalistarinnar
Morgunblaðið/Ómar
Hugmyndaríkur Ragnari Kjartanssyni er fátt óviðkomandi í list sinni.
Ragnar sýnir í Bandaríkjunum
INFERNO 8, 10:30
MIDDLE SCHOOL 4, 6
MAGNIFICENT 7 9, 10:30
BRIDGET JONES’S BABY 6, 8
FRÖKEN PEREGRINE 5
STORKAR 2D ÍSL.TAL 4
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 4
Vertu viðbúinn
vetrinum
fylgir Morgunblaðinu
laugardaginn 22. október
PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til kl. 16 mánudaginn 17. október.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
SÉRBLAÐ
Meðal efnis.
Vetrarfatnaður • Skórfatnaður fyrir veturinn
Bílinn tekin í gegn fyrir veturinn
Flensuvarnir. • Ferðalög erlendis
Íþróttaiðkun og útivist • Vetrarferðir
innanlands • Bækur, spil og fl. • Snyrtivörur
Námskeið og tómstundir • Leikhús, tónleikar
og ýmisleg afþreying.• Skíðasvæðin hérlendis.
Mataruppskriftir