Morgunblaðið - 14.10.2016, Side 44
FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 288. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Kaupir Korputorgið
2. Neita tiltekt í flugvélum WOW air
3. Vilja Bergsson mathús úr húsi
4. Sigmundur birtir bréf um tölvuinnbrot
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og
Stórsveit Reykjavíkur munu sameina
krafta sína um helgina í flutningi á
einu meistaraverki Gershwins; Rhap-
sody in Blue. Tónleikarnir fara fram í
Hofi á morgun og hefjast klukkan 20.
Sinfónískur djass
ásamt stórsveit í Hofi
Hollenski slag-
verksleikarinn
Niek KleinJan er
staddur hér á
landi til að halda
fyrirlestur í sal
FÍH í Rauðagerði í
dag klukkan 17.
Hann mun einnig
leika á tónleikum
á sunnudag klukkan 15:15 í Norræna
húsinu þar sem hann mun meðal ann-
ars leika einleiksverk Áskels Másson-
ar, Frum.
Fyrirlestur og tón-
leikar Niek KleinJan
Hallveig Rúnarsdóttir, sópran,
Ágúst Ólafsson, baritón, og Gerrit
Schuil, píanóleikari, flytja söngljóða-
flokkinn Italienisches
Liederbuch eftir Hugo
Wolf á tónleikum í
Salnum í Kópavogi á
laugardag
klukkan
20. Tón-
leikarnir eru
hluti af tónleika-
röðinni Tíbrá.
Söngljóð, fegurð, ást
og húmor í Salnum
Á laugardag Fremur hæg austlæg eða breytileg átt og bjart með
köflum. Hiti 4 til 10 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðlæg átt, 8-15 m/s, hvassast norðvestan-
til, en lægir smám saman þegar líður á daginn. Rigning með köfl-
um norðvestantil, léttskýjað norðan- og norðaustanlands, en ann-
ars skýjað með köflum og dálitlar skúrir. Hiti 6 til 14 stig.
VEÐUR
Íslandsmeistarar KR,
Grindavík og Stjarnan eru
öll með fullt hús stiga í
Dominos-deild karla í körfu-
knattleik. KR lagði nýliða
Skallagríms í gærkvöld,
Grindavík hafði betur á
móti Haukum í fram-
lengdum leik og Stjarnan
bar sigurorð af ÍR. Tinda-
stóll hafði betur í granna-
slagnum á móti Þór og
Njarðvík burstaði Snæfell í
Hólminum. »2-3
Þrjú lið eru með
fullt hús
„Það má segja að um tvær mis-
munandi íþróttir sé að ræða. Einn
munurinn er að í hópfimleikum er
maður hluti af liði og liðsheild en í
áhaldafimleikunum er maður
einn eða ein og stendur al-
farið og fellur með eig-
in frammistöðu.
Það er mun meiri
stemning og læti í
kringum keppni í
hópfimleikum,“
segir Norma Dögg
Róbertsdóttir, sem
nú er orðin landsliðs-
kona í hópfimleikum
eftir glæsilegan feril
í áhaldafim-
leikum.
»4
Meiri stemning og læti í
hópfimleikunum
Afturelding náði í gærkvöld þriggja
stiga forskoti á toppi Olís-deildar
karla í handknattleik eftir eins marks
sigur á Gróttu að Varmá. Þar með
unnu Mosfellingar sinn sjötta sigur í
röð í deildinni. Á Selfossi töpuðu
heimamenn fyrir Stjörnumönnum í
hörkuspennandi leik þar sem
Garðbæingar skoruðu sigurmarkið í
blálokin. »2-3
Sjötti sigur Aftur-
eldingar í röð
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Feðgarnir Atli Guðlaugsson og syn-
ir hans, Bjarni og Guðlaugur, æfðu
saman nokkur sönglög fyrir 50 ára
afmæli Atla og hafa síðan sungið
saman sem Tindatríóið, eða í um 13
ár.
Tónlist hefur alla tíð verið
ríkjandi þáttur á heimili feðganna.
„Ég var í fyrsta árgangnum sem fór
í gegnum Öldutúnsskóla í Hafnar-
firði og þegar Egill Friðleifsson
byrjaði með barnakór í skólanum
var ég einn af fáum strákum í byrj-
un en fljótlega var kórnum breytt í
stúlknakór,“ rifjar Atli upp. Bætir
við að móðir hans hafi alltaf sungið
mikið, verið í kórum og hann hafi
fengið sönginn með móðurmjólk-
inni.
Þegar synirnir voru 16 ára byrj-
uðu þeir að syngja með Karlakórn-
um Stefni í Mosfellsbæ, en þá var
Atli stjórnandi kórsins. Þeir fóru
síðan í söngnám og luku framhalds-
prófi frá Listaskóla Mosfellsbæjar,
þar sem Atli hefur verið skólastjóri
í 12 ár. Hann hefur lært söng og er
menntaður blásarastjórnandi og
hefur stjórnað kórum, lúðrasveitum
og tónlistarskólum víða um land.
Koma víða fram
„Við syngjum nánast vikulega í
útförum og svo syngjum við oft á
ýmsum skemmtunum um helgar,
eins og til dæmis á árshátíðum,
þorrablótum, í afmælum og brúð-
kaupum,“ segir Atli, en þeir syngja
meðal annars á minningarstund um
Pál Helgason kórstjóra í Langholts-
kirkju sunnudaginn 23. október.
Þegar Atli starfaði í Eyjafirði söng
hann með karlakvintett sem kallaði
sig Galgopa. „Við sungum saman í
nokkuð mörg ár og þar á meðal var
Óskar Pétursson, sem síðar gerði
garðinn frægan með Álftagerðis-
bræðrum.“ Hann segir að synirnir
hafi gjarnan verið með á æfingum.
„Við áttum tvo bíla og ekkert út-
varp var í öðrum þeirra. Strákarnir
vildu alltaf frekar vera í honum því
þá var tryggt að sungið var alla
leiðina og þá aðallega lögin sem við
Galgoparnir sungum.“
Þó Tindatríóið hafi ekki verið
áberandi í fjölmiðlum hefur það víða
vakið athygli. Fyrir nokkrum árum
kom út diskurinn Aðeins þú með því
og Sveini Arnari og feðgarnir kom-
ust í undanúrslit í sjónvarpsþætt-
inum Ísland got talent með lagið
Gullvagninn fyrir tveimur árum.
Atli og synir leggja töluvert upp
úr leik og látbragði, gríni og glensi
og Atli leggur áherslu á að þeir
syngi öll lög sem beðið sé um. „Í út-
förum nú til dags er beðið um allt
milli himins og jarðar,“ segir hann
og nefnir að Gullvagninn sé nokkuð
vinsæll. „Þegar við sungum lagið
fyrst sungum við það strax eftir
minningarorðin, að ósk hins látna,“
rifjar Atli upp, en skömmu áður
höfðu þeir sungið yfir mágkonu
mannsins. „Stuttu eftir útför henn-
ar andaðist eiginkona mannsins,
hann hringdi í mig og vildi fá eins
skemmtilega jarðarför og hafði ver-
ið hjá mágkonunni.“ Atli segir að
fyrirvarinn hafi verið skammur eftir
að maðurinn dó og þegar þeir hafi
verið að renna yfir lagið við hliðina
á kistunni í kirkjunni hafi sellóleik-
ari, sem átti að spila kveðjulag frí-
múrara, komið til þeirra og að lokn-
um söngnum spurt með nokkrum
þjósti hvort þeir væru að æfa fyrir
árshátíð. Áður en að atriðinu hafi
komið hafi frímúrarar verið að gera
sig klára til þess að standa heiðurs-
vörð. „Þeir standa alltaf stífir og ég
spurði þá hvort þeir vissu af breyt-
ingunni. „Hvaða breytingu?“ spurðu
einhverjir. Eftir minningarorðin
eigið þið að smella fingrum í takt
við lagið. „Það verður aldrei,“ svör-
uðu þeir grafalvarlegir en tóku
gríninu vel.“
Söngurinn og móðurmjólkin
Feðgarnir í
Tindatríóinu
koma víða við
Morgunblaðið/Eggert
Tindatríóið Atli Guðlaugsson skólastjóri með sonunum Guðlaugi, til vinstri, og Bjarna á æfingu.