Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.10.2016, Qupperneq 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.10.2016, Qupperneq 4
Unnið er að því að hrinda íframkvæmd aðgerðum tilþess að draga úr notkun burðarplastpoka hér á landi. Mark- miðið er að fyrir árslok 2019 verði notkun hér á landi ekki meiri en 90 plastpokar á ein- stakling á ári, en nú er talið að hver ein- staklingur noti um 105 plastpoka á ári. Stefnt er að því að þessi tala verði komin niður í 40 poka árið 2025. Í lok janúar á þessu ári var starfs- hópur skipaður og skilaði tillögum um aðgerðir til að draga úr notkun plastpoka í lok júní. Litu til Írlands Hólmfríður Þorsteinsdóttir, sérfræð- ingur á sviði sjálfbærni hjá Umhverf- isstofnun, átti sæti í starfshópnum. „Þetta verkefni er fyrst og fremst hugsað þannig að það þurfi að vera jákvætt. Við vildum ekki fara að tengja neikvæðni við þetta því það er afar mikilvægt að hvetja fólk til þess að draga úr notkun í stað þess að þvinga það. Kynning og fræðsla spil- ar þar stóran þátt í því að fá fólk til að breyta hegðun sinni með jákvæðum hætti,“ segir Hólmfríður. „Það sem er það stærsta í þessum aðgerðum er að það stendur til að leggja umhverf- isgjald á burðarplastpokana og það fjármagn fari í sjóð sem verður síðan notaður í verkefni tengd umhverfis- málum. Við litum þar meðal annars til Írlands en þar var stofnaður sér- stakur umhverfissjóður þar sem gjöld af pokum renna í og notaður er í ýmis umhverfisverkefni.“ Pokagjald í pokasjóð Burðarplastpokar eru allir pokar sem notaðir eru í verslunum, hvort sem um ræðir matvöruverslanir eða sér- vöruverslanir. Í dag selja matvöru- verslanir burðarplastpoka á um 20 kr. en umrætt gjald til að draga úr burð- arplastpokanotkun yrði lagt ofan á það. Hólmfríður segir að fulltrúar þeirra matvöruverslana sem starfs- hópurinn ræddi við hafi tekið vel í verkefnið um að draga úr burðar- plastpokanotkun og að mikill ilji og áhugi sé innan ráðuneytisins að draga úr sóun alveg sama hvar. „Við sjáum fyrir okkur að á alla burðarplastpoka verði lagt þetta gjald. Í raun eru pokar úr sérvöru- verslunum mun meira vandamál en þeir sem fást í matvöruverslunum þar sem þeir síðarnefndu passa betur í ruslafötur heimilanna. Hinir fara oft á tíðum beint í ruslið eða það sem er þó betra, í plastendurvinnslu,“ segir Hólmfríður. „Það var ætlunin að leggja þetta gjald á pokana núna í október en það hefur reynst snúnara að koma þessum sjóði á sem verið er að vinna í.“ Af hverju ekki bann? Sums staðar hefur sú leið verið farin að banna plastpoka alfarið, eins og til dæmis í Frakklandi. Hólmfríður segir starfshópinn hafa verið sammála um að ekki sé tímabært að banna plast- poka heldur sé mikilvægt að hrinda verkefninu af stað á jákvæðum nótum. „Það eru margar þjóðir að banna plastpoka núna, en umræddar þjóðir eru komnar mun lengra í þessu ferli en við. Oft var byrjað á því að draga úr notkun með hvatningu, sköttum eða öðrum stjórntækjum áður en bann var lagt á,“ segir Hólmfríður. Hún segist merkja breytingu í þjóðfélaginu hvað varðar umhverfismál. Almennt virðist fólk mjög tilbúið í svona aðgerðir og það eigi líka við um fyrirtæki og stofn- anir. „Það er þó mikilvægt að benda á að þessar aðgerðir sem snúa að því að draga úr plastpokanotkun eru aðeins fyrsta skrefið í átt að því að draga úr notkun annarra einnota umbúða.“ Getty Images/iStockphoto Til stendur að leggja umhverfisgjald á burðarplastpoka í öllum verslunum, bæði matvöru- og sérverslunum, og nýta fjármagnið í verkefni tengd umhverfismálum. Fyrirhugaðar aðgerðir stjórnvalda til að draga úr notkun burðarplastpoka • Hvetja allar verslanir til þess að leggja strax gjald á alla burðarplastpoka • Leggja á bann við að afhenda burðar- plastpoka ókeypis frá 1. janúar 2019 •Vinna að fræðslu og kynningu til verslana og neytenda • Stuðla að breytingum á Pokasjóði svo pokagjald fari í umhverfis- tengd verkefni ... að meðaltali er talið að hver plastpoki sé notaður í um 25 mínútur ... ætla má að um 70 ... fjögurra manna íslensk fjölskylda notar um 420 8 burðarpoka á ári hverju eða um burðar- poka á viku … plastúrgangur á Íslandi er um 5.000 5.000 tonn á ári sem jafngildir um smábílum milljónum plastpoka sé fleygt á hverju ári hér á landiVissir þú að... Plastátak tekið í stuttum skrefum Hólmfríður Þorsteinsdóttir 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.10. 2016 Dregið hefur veru- lega úr burðar- plastpokanotkun í Stykkishólmi eftir að átak um notkun annarra poka en plastpoka fór þar af stað haustið 2014. Ákveðið var að festa einn sér- stakan dag til þess að hefja átakið, sem var 12. september. Þá var boðað til hátíðar í bænum, boðið upp á and- litsmálningu og tónlistaratriði og um fjórðungur bæjarins mætti til að kveðja burðarplastpokann. „Við ákváðum að prófa að hafa þetta á já- kvæðum nótum, ekki nein bönn held- ur hvatning og athuga hvað við kæm- umst langt með því. Það er hægt að ná mjög miklum árangri með hvatningu og stöðugri fræðslu en maður nær ekki að losna alveg við burðar- plastpokana nema með skattlagningu, gjaldtöku eða einfaldlega banni,“ segir Róbert A. Stefánsson, forstöðumaður Náttúrustofu Vesturlands og stjórn- armaður í umhverfishópi Stykk- ishólms. Buðu upp á aðrar lausnir „Við byrjuðum á því að hafa sam- band við alla verslunar- og þjón- ustuaðila í sveitarfélaginu sem bjóða upp á plastpoka og vorum með fræðslu um plast og skaðsemi þess. Við buðum upp á aðrar lausnir sem þessir aðilar gátu valið á milli, að fara í margnota poka, bréfpoka eða maíspoka,“ segir Róbert. „Það tóku þessu allir rosalega vel og voru tilbúnir að vinna með okkur nema ein verslun. Við reyndum að kynna þá sem voru hættir að nota plast- poka og þeir fengu límmiða í gluggann hjá sér og auglýsingar um að þeir væru burðarplastpoka- lausir.“ Róbert segir að sumir hafi endan- lega skipt út og hætt að nota plast- poka og séu búnir að venja sig á það. „Þetta er mikið spurning um að venja sig á það að taka með sér poka í búð- ina og sleppa plastpokanum.“ Sveitarfélag til fyrirmyndar Stykkishólmur var fyrsta sveitarfélagið til að taka upp þriggja ruslatunnu kerfi árið 2007. Ein tunnan er fyrir lífrænt, önnur fyrir endurvinnanlegt sorp eða pappa, pappír, plast og málm og sú þriðja fyrir óendurvinnanlegt. „Ef ruslið er flokkað vel þá þarf lítið af pokum undir sorp. Við mælum með því að nota maíspoka frekar en plast- poka undir óflokkanlegt rusl. Við not- um tæplega einn maíspoka á viku fyrir óendurvinnanlegt sorp. Þetta er vel hægt,“ segir Róbert. Stykkishólmur hefur kvatt plastpokann Róbert A. Stefánsson ’ Plast eyðist ekki, heldur brotnar niður í smærri einingar með tímanum. Staðreynd. INNLENT GUNNÞÓRUNN JÓNSDÓTTIR gunnthorunn@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.