Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.10.2016, Síða 26
... í svefnherbergið
Dreymir mig um Cocomat rúm til að ná hinum eftir-
sóknarverða djúpsvefni sem er svo mikilvægur
fyrir fólk sem hefur mikið að gera.
Mig
langar
í …
... í stofuna
Ég er að flytja í nýtt hús
með mikilli lofthæð og þá
myndi Plane ljóskrónan
frá Tom Dixon sannarlega
vera „wow factor“ yfir
borðstofuborðinu.
... í stofuna
Langar mig í 4,5 metra háan bókahilluvegg
sem að myndi halda utanum sjónvarp, bæk-
ur, myndir, listmuni og hitt og þetta. Svo
myndi ég hafa stiga rúllandi eftir honum til
að geta klifrað upp vegginn.
... í eldhúsið
Langar mig í Le Creuset
potta í fallegum litum af því
að ég stefni á frækna sigra í
eldhúsinu og það hefst ekki
nema með góðum pottum.
... í barnaherbergið
Langar mig í fallegan, bólstraðan höfuðgafl.
... á baðherbergið
Frístandandi baðkar. Sturta
gildir hversdags en baðkarið
væri fyrir dekurstundirnar.
... á vinnustofuna
Korkvegg í yfirstærð til að pinna á allar hug-
myndir, efni, prufur, myndir og allt það sem að
gefur mér innblástur hverju sinni.
... í forstofuna
Spegil sem er eins-
og skartgripur og
listaverk.
Innanhússarkitektinn Hanna Stína hefur skapað sér nafn
sem einn af færustu innanhúsarkitektum landsins með
sinn áhugaverða og fágaða stíl. Hún hefur hannað skrif-
stofur, heimili, húsgögn og fleira. Hanna Stína, sem er í
þann mund að flytja inn á nýtt heimili, deildi óskum sín-
um fyrir heimilið með Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
mbl.is/Freyja Gylfa
... í útópískri veröld
Væri ég til i gamla franska villu sem
ég myndi gera upp í rólegheitum.
HÖNNUN Danska hönnunarhúsið George Jensen kynnti nýlega nýja línu afprjónavörum. Línan samanstendur af púðum og teppum sem passavel saman eða sitt í hvoru lagi. Þetta er í fyrsta skipti sem hönnunar-
húsið, sem þekkt er fyrir hágæða heimilismuni, sendir frá sér prjón.
Prjónalína frá Georg Jensen
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.10. 2016