Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.10.2016, Blaðsíða 34
þess og nota engan pakkamat og oft varð
maturinn ekki nógu spennandi á bragðið.
Þar kom Siggi sterkur inn enda frábær
matreiðslumaður sem hefur unnið á flottum
veitingastöðum um allan heim.
Samvinna okkar var því góð og til urðu
margar góðar uppskriftir sem við vildum
koma frá okkur, þar sem margir vilja elda
hollari mat heima hjá sér í dag, sem er
samt líka bragðgóður. Það er nefnilega
hægt að búa til bragðgóðan en næringar-
ríkan mat. Maturinn á að vera djúsí og
hollur. Sumir halda að það geti ekki farið
saman en það er bara ekki rétt,“ segir
Berglind. „Eitt leiddi af öðru og nú er hægt
að kaupa nokkra af Heilsuréttunum til-
búnum í matvöruverslunum og svo lá bein-
ast við að opna veitingastað, þar sem fólk
gæti komið til okkar og smakkað matinn
okkar. Þannig varð GOTT til.“
Stefnan mögulega sett á
Reykjavík
Staðurinn GOTT er í Vestmannaeyjum þar
sem Berglind og Siggi búa. Staðurinn nýtur
mikilla vinsælda og hafa viðskiptavinir frá
höfuðborgarsvæðinu hvatt hjónin til að
opna þar. „Það gengur vel, eiginlega ótrú-
lega vel. Við erum afar þakklát fyrir þær
móttökur sem við höfum fengið. Upphaflega
átti þetta bara að vera lítill og sætur staður
en við þurfum greinilega að stækka. Þurft-
um að vísa svolítið frá í sumar þar sem fólk
komst ekki að og það er leiðinlegt. En það
reddaði okkur hvað veðrið var gott að fólk
gat oft setið úti.“
En stefnið þið að því að opna í Reykja-
vík?
„Það gæti bara alveg gerst! Það virðist
að minnsta kosti vera mikill áhugi.“
Siggi skenkir gestum
sínum af fagmennsku.
Þorskhnakkinn sló í gegn, sem
og allt sem á boðstólum var
þetta notalega kvöld.’Okkur finnst gaman að faraút að borða og við eigumheilan vegg af matreiðslubókum.Svo þegar við dettum niður á
eitthvað sem við erum spennt
fyrir þá hefst leiðin að því að
gera það á hollari máta án þess
þó að fórna bragðinu.
Benóný, kallaður Benni,
og Siggi hafa verið vinir
frá því í leikskóla.
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.10. 2016
MATUR
2 meðalstórar rauðrófur
1 dl ólífuolía
200 g mjúkur geitaostur (geitaosts-
rúlla)
150 g pekanhnetur, ristaðar
blandað salat
Hitið ofninn í 170 gráður.
Skrælið rauðrófurnar og skerið
smátt. Setjið í skál og hellið ólífu-
olíunni yfir.
Kryddið með salti og pipar.
Dreifið á ofnplötu og bakið í 20
mínútur. Takið síðan 1/3 af
rauðrófunum til að nota í
dressinguna.
RAUÐRÓFUDRESSING
bakaðar rauðrófur
2 msk. rauðvínsedik
1 tsk. dijon-sinnep
salt og pipar
6 msk. ólífuolía
Takið 1/3 af bökuðu rauðróf-
unum og setjið allt hráefni saman
í blandara eða matvinnsluvél,
nema olíu og maukið vel saman.
Hellið olíunni rólega saman við
meðan vélin er í gangi.
Dreifið salati á diska, bökuðum
rauðrófum yfir, geitaosti, dress-
ingu og að lokum pekanhnetum.
Rauðrófusalat
með geitaosti