Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.10.2016, Síða 35

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.10.2016, Síða 35
Nammikaka með berjum ½ dl kókosolía, fljótandi 1 dl hnetusmjör, lífrænt 1 dl hlynsíróp, lífrænt eða önnur fljótandi sæta ½ dl hreint kakó smá vanilludropar 5 dl haframjöl, t.d. glútenlaust (má líka nota múslí) Bræðið kókosolíuna með því að láta heitt vatn renna á krukkuna. Setjið allt nema haframjöl í matvinnsluvél og blandið þar til hefur blandast vel saman. Blandið haframjöli saman við í skál. Getið notað hrærivél annars með höndunum. Setjið smjörpappír í hringlaga form og mótið hafra- mjölsmaukið í formið, ekki þjappa því of mikið. Setjið í frysti og geymið þar þar til hálf- tíma áður en borið fram. OFAN Á KÖKUNA 1-2 dl þeyttur rjómi 2 handfylli af berjum að eigin vali, t.d. bláber, jarðarber, krækiber, hindber eða brómber. Þeytið rjómann, takið kökuna úr forminu og setjið á disk. Smyrjið rjómanum yfir og skreytið með berjum. 30.10. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35 800 g þorskhnakki 150 g hreint smjör, við stofuhita 40 g þurrkaðir villisveppir (gjarnan blandaðar tegundir) 1 sítróna, safinn 4-5 dl brauðrasp 4 bökunarkartöflur 100 g hreint smjör 100 ml rjómi 1 msk sjávarsalt KARTÖFLUMAUK – AÐFERÐ Skrælið kartöflur og skerið í grófa bita Sjóðið í um 25 mínútur eða þar til kartöflurnar eru orðnar vel mjúk- ar og hellið vatni af. Maukið kartöflurnar með því að stappa þær vel. Blandið smjörinu saman við og síðan rjómanum og saltinu. VILLISVEPPASKEL – AÐFERÐ Þeytið smjörið upp í hrærivél í 10 mínútur eða þar til það er orðið loftkennt. Setjið þurrkuðu villisveppina í matvinnsluvél og búið til duft úr þeim. Setjið villisveppaduftið saman við smjörið ásamt sítrónusafa. Bætið brauðraspinu út í og setjið um 100 g af maukinu ofan á smjör- pappír og annan smjörpappír yfir og fletjið út þunnt lag. Kælið. Þegar smjörplatan er orðin hörð, takið þá út og skerið í hæfilega stærð sem passar ofan á fiskinn. ÞORSHNAKKINN ELDAÐUR – AÐFERÐ Hitið ofninn í 170 gráður. Setjið smá ólífuolíu yfir fiskinn og kryddið með salti og pipar. Setjið sveppaskelina ofan á fiskinn. Bakið fiskinn í ofni í 12-15 mínútur, fer eftir þykktinni á fiskinum. Berið fram með kartöflumaukinu. Þorskhnakki með villi- sveppaskel og kartöflumauki Humarvorrúllur 1 pk. hrísgrjónadeigsblöð (springroll) humar (4-5 halar á mann) 1 búnt fersk basilíka 2 hvítlauksrif 30 g sólþurrkaðir tómatar í olíu 2 msk. maísmjöl maldonsalt sólblómaolía til að djúpsteikja upp úr Maukið basilíkulauf, hvítlauk og sólþurrkaða tómata saman í mat- vinnsluvél. Smyrjið mauki ofan á humarinn og pakkið inn í hrísgrjónadeigs- blöðin eins og sýnt er á pakkning- unum (springroll pakkanum). Blandið 2 msk. af köldu vatni saman við maísmjölið svo úr verði blautt deig sem notað er til að líma saman hrísgrjónadeigsblöðin þegar þeim er pakkað saman svo ekki opnist við djúpsteikingu. Djúpsteikið við 180 gráður þar til gullinbrúnt og stráið síðan smá maldonsalti yfir rúllurnar. Gott að bera fram með jap- önsku majónesi eða aioli-sósu og salati.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.