Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.10.2016, Blaðsíða 39
ára aðdraganda. Ríkisstjórnin setti
á fót ráðherranefnd í mars 2014 um
lýðheilsu sem í sátu forsætisráð-
herra, heilbrigðisráðherra, mennta-
og menningarmálaráðherra og fé-
lags- og húsnæðismálaráðherra.
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,
sviðsstjóri áhrifaþátta heilbrigðis
hjá Embætti landlæknis, tók þátt í
þessari vinnu.
„Það er frábært að forsætisráðu-
neytið hafi haft frumkvæði að þessu
og gert sér grein fyrir því að það
þurfi fleiri ráðherrar að koma að til
að efla heilsu. Heilsueflingin á sér
ekki stað inni í heilbrigðiskerfinu
heldur byggist á þverfaglegri vinnu.
Það var ánægjulegt að finna að ráð-
herrarnir sáu hversu mikil áhrif
þeirra málaflokkar hafa á heilsu og
líðan landsmanna,“ segir Dóra.
Hjálpar til við námið
„Í þessu hraða þjóðfélagi sem við lif-
um, í þessu mikla áreiti, þá er mjög
mikilvægt að við þjálfum börnin
okkar í því að finna innri ró og vera
með athyglina til staðar þar sem
þau eru. Þannig munum við bæta
líðan þeirra og hjálpa þeim að tak-
ast betur á við verkefni í skólanum,
þar með talið námið sjálft,“ segir
hún.
Sambærilegt núvitundarverkefni
hefur verið prófað í Flensborgar-
skólanum í Hafnarfirði í gegnum
Heilsueflandi framhaldsskóla, sem
er verkefni á vegum embættisins.
„Þar hafa allir starfsmenn farið á
núvitundarnámskeið. Við teljum
mikilvægt að byrja á starfsfólkinu.“
Börn móttækilegri
Hún segir að börn eigi jafnan auð-
veldara en fullorðið fólk með að ná
tökum á núvitundaræfingum. „Þau
eru meira í núinu þegar þau eru lítil
en svo kemur allt þetta áreiti en það
er styttra til baka hjá þeim. Þess
Lýðheilsustefna fyrir landið alltásamt áætlun um aðgerðirsem eiga að stuðla að heilsu-
eflandi samfélagi var nýverið sam-
þykkt í ráðherranefnd um samræm-
ingu mála. Meginmarkmið
lýðheilsustefnunnar er að Íslend-
ingar verði ein
heilbrigðasta þjóð
heims árið 2030.
Hluti af þessari
stefnu er að inn-
leiða núvitund í
leik- og grunnskóla
og segir í tilkynn-
ingu frá Embætti
landlækis að emb-
ættið telji það vera
tímamótaaðgerð. „Stefnt er að því
að þjálfa 800 kennara í að kenna
börnum að ná innri ró og lifa í núinu,
sem mun að öllum líkindum bæta
líðan bæði kennara og nemenda auk
þess að styðja börnin í því að ein-
beita sér enn betur að náminu,“
stendur á vef embættisins.
Í stefnunni segir: „Streita og álag
eru áberandi áhrifaþættir í heilsu
barna og ungmenna en í nútíma-
samfélagi virðist áreitið aukast jafnt
og þétt og vega að nauðsynlegu
jafnvægi barna. Öndun er líklega
vanmetnasta stjórntæki líkamans
því djúp öndun hefur áhrif á tauga-
kerfið og gagnast börnum (og okkur
öllum) á ýmsan hátt, ekki síst á sviði
tilfinninga. Það er jafn mikilvægt að
læra að slaka á og gefa líkamanum
næði til að vinna upp orku eins og
það er að hreyfa sig og borða hollan
mat. Þegar efla þarf einbeitingu við
andlegt og líkamlegt álag og til að
auka kyrrð og innri ró er slökun ár-
angursrík. Í slökunarástandi vinnur
barnið úr upplifunum dagsins og er
líklegra til að sofa betur,“ segir þar.
Markmiðið er að öll börn í leik- og
grunnskólum læri um slökun hug-
ans sem leið til að efla einbeitingu,
skerpa athygli, meta líðandi stund,
tileinka sér jákvæðan skýringarstíl
og auka hvíld.
Kostnaðurinn
við þetta er 22
milljónir og mun
aðgerðin ná yfir
tímabilið 2017-2019.
Þjálfun fyrir hugann
„Hugleiðsla hefur fyrir löngu
sannað gildi sitt enda um þjálf-
un fyrir hugann að ræða þar sem
unnið er að því að efla einbeitingu
og skerpa athygli. Einbeitingar-
skortur hrjáir mörg börn en þeir
sem hugleiða reglulega eru að jafn-
aði bjartsýnni og hamingjusamari
en aðrir, með sterkari sjálfsmynd og
finna fyrir minni tilfinningasveifl-
um. Hugleiðsla eykur einbeitingu og
hugsun verður skýrari,“ segir í lýð-
heilsustefnunni, sem á sér nokkurra
vegna er svo mikilvægt að grípa
snemma inn í.“
Núvitund er fyrir alla. „Þetta fer
inn í allan skólann. Það er enginn
tekinn út heldur hafa allir gott af
þessu. Það hefur sýnt sig að sér-
úrræði fyrir einhverja sem eru lík-
legri til að þróa með sér kvíða og
þunglyndi geta mögulega haft öfug
áhrif,“ segir hún og útskýrir að það
geti jafnvel magnað upp kvíðann.
„Þá fara sum þeirra að spyrja sig, er
eitthvað að mér? Við lendum öll í
mótlæti og við þurfum að þekkja
einhverjar leiðir til að takast á við
það,“ segir Dóra sem er ekki hrifin
af uppslætti í
fyrirsögnum um
aukinn kvíða og
þunglyndi.
„Mér finnst að við
séum í einhverjum til-
fellum að sjúkdóms-
væða og vandamálavæða
lífið,“ segir hún og ungmenni
geti hugsað að þau séu að verða
kvíðasjúklingar þegar þau finni að-
eins fyrir eðlilegum kvíðatilfinn-
ingum.
„Hugmyndin er að þetta verkefni
bæti líðan allra í skólanum. Þetta er
hugarrækt. Við erum orðin með-
vituð um að við þurfum öll að hreyfa
okkur til að líkaminn virki almenni-
lega. Þetta er ákveðin hugarrækt
sem við þurfum líka að sinna,“ segir
Dóra og bætir við að árangur af
gagnsemi núvitundar sé ljós.
„Þessi góði árangur og víðtæka
útbreiðsla sem núvitundin er að ná í
Bretlandi er út af því að það eru til
svo margar rannsóknir á því hvaða
áhrif hún hefur á heilastarfsemina.
Þetta hefur án efa áhrif á það hvern-
ig heilinn starfar okkur til góðs.“
Í lýðheilsustefnunni nú er áhersla
á börn 18 ára og yngri. „Þetta er
fyrsti hluti. Það er mikilvægast að
byrja á yngsta aldurshópnum. En
það þarf að vinna þetta áfram fyrir
næstu aldursflokka líka,“ segir
Dóra.
Gott ráð frá
Eddu Björgvins
Allir geta byrjað strax í dag að efla
núvitund. „Þú þarft ekki að finna
nýjan tíma til að gera allar núvit-
undaræfingarnar þínar heldur gera
það sem þú gerir venjulega með
heilum hug. Líka venja sig á að gera
eitt í einu, afköstin eru betri þann-
ig,“ segir Dóra, sem hefur sjálf
breytt viðhorfi sínu.
„Mér fannst rauð ljós alltaf vera
fyrir mér en Edda Björgvins kenndi
mér að rautt ljós væri gjöf til mín.
Að þar fái maður mínútu eða tvær
til að anda. Það er þvílíkur munur
að vera ekki alltaf á hraðferð í gegn-
um lífið heldur hafa tíma til að njóta
og tengja.“
Þeir sem hugleiða reglulega eru að
jafnaði bjartsýnni og hamingjusamari
en aðrir, með sterkari sjálfsmynd og
finna fyrir minni tilfinningasveiflum.
Getty Images/iStockphoto
Núvitund í
skólana
Ný lýðheilsustefna hefur það að markmiði að
öll börn í leik- og grunnskólum læri um slökun
hugans sem leið til að meðal annars efla einbeit-
ingu, skerpa athygli, meta líðandi stund og í
kjölfarið bæta líðan nemenda og kennara.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Dóra Guðrún
Guðmundsdóttir
Öll börn geta
stundað núvit-
und og aðra
hugarrækt.
HEILSA
30.10. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
Erlendar rannsóknir sýna já-
kvæð áhrif núvitundar á líðan
og hefur þverpólitísk nefnd á
vegum breska ríkisins lagt til
að núvitund verði innleidd
skipulega í skólakerfið, heil-
brigðiskerfið, á vinnustaði og í
refsivörslukerfið í Bretlandi.
Fyrir þá sem vilja afla sér
frekari upplýsinga kallast
verkefnið The Mindfulness
Initiative. Sömu rök liggja til
grundvallar því að núvitund
verði innleidd hér í leik- og
grunnskólum.
www.themindfulnessinitiative.org.uk
NÚVITUND INNLEIDD VÍÐA Í KERFIÐ Í BRETLANDI
Bretar hugsa stórt
Thealoz inniheldur trehalósa sem er náttúrulegt efni
sem finnst í mörgum jurtum og dýrum sem lifa í mjög
þurru umhverfi.
Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna
hornhimnunnar gegn þurrki.
Droparnir eru án rotvarnarefna
og má nota með linsum.
Þurrkur í augum?
Thealozaugndropar
Fæst í öllum helstu apótekum.
Ég var mjög slæm af augnþurrki án þess að gera mér grein
fyrir því. Þar sem ég var með nóg af tárum datt mér ekki
í hug að tengja það við aunþurrk. Alltaf með lekandi tár í
kulda, og smá vind. Systir mín ráðlagi mér að prufa Thealoz
því hún hafði mjög góða reynslu af þeim. Eiginlega bara
strax varð ég allt önnur og er hætt að vera með táraflóð og
finna fyrir þessari sandtilfinningu.
Erla Óskarsdóttir