Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.10.2016, Qupperneq 42
Í vetur skiptir skrautið öllu máli. Stórir eyrnalokkar vöktu athygli á
tískupöllum stærstu tískuhúsanna fyrir veturinn.
Þá er skemmtilegt að poppa upp hefðbundinn hversdagsfatnað með
stórum eyrnalokkum og gera þannig heildina örlítið meira spennandi.
FLOTTIR FYLGIHLUTIR
Áberandi eyrnalokkar
Lanvin vetur 2016/2017. Proenza Schouler vetur 2016/2017.Marchesa vetur 2016/2017.
Zara
2.495 kr.
Moa
975 kr.
Lindex
1.495 kr.
TÍSKA
42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.10. 2016
Franska tískuhúsið Saint Laurent hefur hafið sölu á forláta rúllu-
skautum, sem eru partur af vetrarlínu tískuhússins 2016/2017. Skaut-
arnir, sem eru unnir úr leðri, eru til að mynda fánlegir á netversluninni
MyTheresa.com og kosta um 137.000 kr.
Rándýrir rúlluskautar
Hvað er það sem heillar þig við tísku? Það er svo margt sem heillar mig við tískuna. Hún ersíbreytileg, fer í misstóra hringi en kemur þó aldrei al-
veg nákvæmlega eins aftur. Og það er svo gaman að sjá að á yngri
árum er tískan sem þá ríkir svo algjörlega málið og annað alls
ekki.
En þegar við síðan eldumst þá leggjast tískan og persónulegur
smekkur manns saman og útkoman er mismunandi fyrir hvern og
einn því smekkur manna er svo mismunandi þrátt fyrir að báðir að-
ilar lifi í tískunni.
Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum?
Ég er alltaf með eitthvert „twist“. Ég þarf alltaf að vera að blanda
saman nokkrum fallegum klassískum efnum við svöl efni, svona pínu
rokk.
Hefur stíllinn þinn þróast mikið með árunum; ef svo er að hvaða
leyti?
Áður fyrr fór maður bara í hvað sem var, bara það sem var í tísku í það
sinn. Sumt fór manni vel en annað ekki og eru gamlar myndir stað-
festing á því, þótt manni hafi nú fundist annað þá.
Ég segi alltaf við fólk að fara eftir vaxtarlaginu. Ég er búin að
finna sniðin og síddirnar sem henta mér.
Áttu þér tískufyrirmynd?
Ég á ekki einhverja eina tískufyrirmynd, en ég ferðast
mikið, er á öllum samfélagsmiðlum og skoða mikið tísku-
blöð á netinu.
Hvað kaupir þú þér alltaf þó þú eigir nóg af því?
Að sjálfsögðu skó … Skó og aftur skó. Við íslenskar
konur erum skósjúkar!
Ef þú fengir aðgang að tímavél sem gæti flutt þig aftur
til árs að eigin vali og þú fengir dag til að versla, hvaða
ár myndirðu velja og hvert færirðu?
Hver þarf tíma-
vél? Tískan fer í
hringi.
Mér finnst flest-
allt flott nema þeg-
ar magabolir detta
inn. Mér hefur aldr-
ei þótt þeir flottir
nema ef þú býrð við
sólarströnd.
Svava kýs að blanda saman
fallegum klassískum efnum
við svalari efni til að gefa
heildarklæðnaðinum
rokkaðra yfirbragð.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mikilvægt að
klæða sig eftir
vaxtarlagi
Samfélagsmiðlar, ferðalög og
tískublöð veita innblástur.
Svava segir íslenskar konur alla jafna
skósjúkar.
Svava er lítið
hrifin af maga-
bolum.
Svava Johansen er ein þekktasta tískudrottning lands-
ins. Svava er forstjóri NTC, sem hefur verið leiðandi í
sölu á tískufatnaði á Íslandi, en fyrirtækið fagnar
40 ára afmæli sínu þessa helgi. Svava heillast af
síbreytileika tískunnar og elskar skó.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is