Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.10.2016, Síða 64
SUNNUDAGUR 30. OKTÓBER 2016
Bandaríkjakonan Cassandra De Pecol lagði af stað frá heimili
sínu í Connecticut í júlí á síðasta ári með það að markmiðið að
verða fljótasti kvenkyns ferðalangur heims og setja heimsmet í
því að ná að heimsækja öll lönd heims, 196 talsins, á sem styst-
um tíma. Hún hefur nú um 45 daga til stefnu til að ljúka þessari
reisu sinni og er komin með 180 lönd á listann. Mikið hefur verið
fjallað um ferð Pecol í og í vikunni hafa meðal annars birst
myndir frá Íslandsreisu hennar en hún eyddi tveimur dögum á
landinu og heimsótti meðal annars Bláa lónið. Pecol ferðast á
eigin vegum og hefur eytt um 30 milljónum íslenskra króna í
flugfargjöld hingað til en til að standa straum af kostnaðinum
hefur hún borgað ferðalögin úr eigin vasa en einnig fengið styrki
frá fyrirtækjum en Pecol er um leið að gera heimildamynd um
ferðalagið sitt.
Hugsanlegur heimsmethafi í ferðalögum er kominn með Ísland á listann og er hér í Bláa lóninu.
Heimsmet í ferðalögum
Cassandra De Pecol segir að í sumum löndum hafi
henni varla verið óhætt að fara út af flugvellinum.
Cassandra De Pecol hefur heimsótt 180
lönd á 16 mánuðum og Ísland er komið á
listann. Ferðalagið kostar sitt.
Nokkuð óvenjuleg tilkynning
birtist í Morgunblaðinu fyrir
réttum hundrað árum, 30. októ-
ber 1916, undir yfirskriftinni
„aðvørun“. Hún hljóðaði svo:
„Eg vil ráða þeim, sem tók
gleraugun mín á búðarborðinu í
Hansens bakaríi Laugavegi 61 á
sunnudagskveldið, að eyðileggja
ekki sjón sína með því að fara að
lesa með þeim; það eru ein-
kennileg gleraugu, annað glerið
helmingi sterkara en hitt. – Eg
ætlast ekki til að gleraugunum
sé skilað, því eg get ekki sagt,
eins og flestir segja, þegar þeir
missa eitthvað þannig: »Skilaðu
því, því það sást til þín«. Enginn
sá þetta. En þótt eg verði verk-
laus í nokkra daga, þá er engin
ástæða til, að eg ekki vari þann,
sem ágirntist gleraugu mín, að
hann ekki noti þau eins og þau
eru, heldur fari til Fjeldsteds og
láti setja ný gler í þau, það mun
kosta rúma krónu, og hann
þekkir þau ekki.
Virðingarfylst,
Sveinbjörn Egilsson.“
Drengilega að verki staðið en
ekki er vitað hvort Sveinbjörn
endurheimti gleraugun sín.
GAMLA FRÉTTIN
Sjón-
skemmandi
gleraugu
hverfa
Eigandi gleraugnanna ráðlagði handhafa þeirra að lesa alls ekki með þeim.
Morgunblaðið/Golli
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Amanda Seyfried
leikkona
Kate Hudson
leikkona
Arna Ýr Jónsdóttir
Ungfrú Ísland 2015Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
FLOWER
Hönnun:
CHRISTINE SCHWARZER
FAT FAT
Hönnun: PATRICIA URQUIOLA
Sófaborð
STROWBERRY
DESIGN: NISSEN & GEHL