Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2015, Page 2
Vikublað 8.–10. september 20152 Fréttir
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni,
Hagkaup og Nettó. Umboð: Celsus.
Meiri...
Þarf aðeins 1/3 tsk til að fá 350mg
af hreinu magnesium.
Duftið leysist upp í KÖLDU vatni.
Hámarksupptaka í líkamanum.
Þægileg inntaka fyrir börn og fullorðna.
Gerið verðsamanburð.
virkni
BRAGÐLAUST!
NÝTT
mánaða5
skammtu
r
Icelandair-hótel fá
alþjóðlega vottun
Ö
ll átta Icelandair-hótelin hafa
fengið alþjóðlegu umhverfis-
vottunina ISO14001, fyrst allra
hótela á Íslandi.
„Við höfum lagt mikinn metnað
í þetta verkefni, og leggjum á það
áherslu að vera til fyrirmyndar í um-
hverfismálum og sýna samfélagslega
ábyrgð gagnvart náttúruauðlindum
okkar. Þetta skiptir lykilmáli ef hér á að
byggja upp ferðaþjónustu til framtíðar
sem sómi er að,“ segir Magnea Þórey
Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri
Icelandair hótela.“
ISO 14001 staðallinn er gæðaum-
hverfisstjórnunarkerfi og er gefinn út
af Alþjóðlegu staðlasamtökunum, ISO.
Aðaltilgangur staðalsins er að draga úr
neikvæðum umhverfisáhrifum.
Markmið Icelandair-hótela er að
fara vel með auðlindir, draga úr úr-
gangi og auka endurvinnslu, ásamt
því að velja vörur og þjónustu með
tilliti til umhverfisins. „Félagið leggur
áherslu á að nota íslenskt hráefni og
aðföng og fylgja viðeigandi lögum og
reglugerðum er varða umhverfismál
og ganga lengra þar sem það á við,“
segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.
„Icelandair-hótel upplýsa gesti um
umhverfisstefnu hótelsins og hvern-
ig þeir geti tekið þátt í að fylgja henni
ásamt því að fræða starfsfólk og þjón-
ustuaðila fyrirtækisins um umhverfis-
mál og hvetja til aukins árangurs á
þessu sviði.“ n freyr@dv.is
Fyrst íslenskra fyrirtækja til að fá umhverfisvottunina
Icelandair-hótel Hótelin
hafa fengið alþjóðlegu um-
hverfisvottunina ISO14001, fyrst
allra hótela á Íslandi.
30 milljónir á
þremur árum
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi
sjötugan karlmann í átján mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir fjár-
drátt 2. september síðastliðinn.
Maðurinn dró sér fé upp á tæp-
lega 30 milljónir króna á þriggja
ára tímabili, eða frá 2010 til 2013.
Þá var maðurinn umboðsaðili
fyrir eitt stærsta hugbúnaðarfyrir-
tækis heims, Orange Business en
hugbúnaður þess er notaður í yfir
200 löndum og starfa yfir hundrað
þúsund manns hjá fyrirtækinu
víða um heiminn.
Maðurinn játaði brot sín ský-
laust en honum hefur ekki áður
verið gerð refsing. Með vísan til
þess að maðurinn játaði brot sín
skýlaust var ákveðið að brot hans
væru skilorðsbundin til þriggja
ára og fellur refsing niður að þeim
tíma liðnum, haldi maðurinn al-
mennt skilorð.
Fjárlögin
kynnt í dag
Fjárlög ríkisstjórnarinnar fyrir árið
2016 verða kynnt í dag, þriðju-
dag. Bjarni Benediktsson, fjár-
mála- og efnahagsráðherra, boðar
fréttamenn til fundar í Kaldalóni
í Hörpu í há-
deginu en
fyrstu fréttir
af frumvarp-
inu má flytja
klukkan 13.00.
Kristján
Þór Júlíusson
heilbrigðisráð-
herra sagði í
sumar að hann
myndi berjast gegn frekari niður-
skurði í heilbrigðisþjónustunni
vegna uppsagna heilbrigðisstarfs-
fólks og kjaramála heilbrigðis stétta.
Á morgun ræðst hvort honum hef-
ur orðið ágengt þar. Tvö síðastliðin
ár hefur Bjarni lagt fram hallalaus
fjárlagafrumvörp.
Allt að tíu þúsund á
leið til Frakklands
n Gríðarlegur áhugi hjá Gaman ferðum n Fyrstu skráningar fyrir hálfu ári
Þ
að er gríðarlegur áhugi.
Við höfum svo sannarlega
fundið fyrir því,“ segir Þór
Bæring Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Gaman ferða,
sem í samstarfi við WOW air hafa
boðið upp á ferðir á alla útileiki ís-
lenska landsliðsins í knattspyrnu.
Nú liggur ljóst fyrir að íslenska liðið
mun taka þátt í lokakeppninni í
Frakklandi næsta sumar og Gam-
an ferðir hafa þegar opnað fyrir for-
skráningar á ferðir á vefsíðu sinni.
„Fyrstu stuðningsmennirnir
skráðu sig til leiks fyrir um hálfu ári
þannig að margir höfðu greinilega
fulla trú á íslenska liðinu,“ segir Þór
Bæring og hlær dátt.
Margir boltar á lofti
Þessir aðilar munu fá forkaupsrétt
á þeim ferðum sem Gaman ferðir
munu skipuleggja. Það er sannköll-
uð gósentíð hjá Þór og Gaman ferð-
um en þegar DV náði tali af honum
var hann staddur í Berlín ásamt ís-
lenskum stuðningsmönnum að
fylgjast með EM í körfuknattleik.
„Já, það er mikið stuð hérna í Berlín
en við getum nýtt tímann og fundað
með þýskum aðilum varðandi sam-
starf í tengslum við EM. Við erum
þegar búin að bóka hótel í öllum
þeim borgum sem leikir fara fram í
en þetta mun ekki skýrast nákvæm-
lega fyrr en í desember þegar ljóst er
í hvaða riðli Ísland spilar í.“
Nýr markaður orðinn til
Stuðningur við íslenska lands-
liðið í knattspyrnu hefur ekki ver-
ið beysinn á útivöllum í gegnum
tíðina. Það hefur hins vegar breyst
í kjölfar frábærs árangurs í síð-
ustu undankeppni HM og hefur
sprungið út í þeirri keppni sem nú
er í gangi. Frægt er að um eitt pró-
sent íslensku þjóðarinnar fylgdi ís-
lenska liðinu á leikinn í Amsterdam
gegn Hollandi í síðustu viku. „Við
höfum verið í samstarfi við Tólf-
una í síðustu leikjum og erum
stoltir af því enda umgjörðin sem
stuðningsmannasveitin skap-
ar stórkostleg. Það samstarf mun
halda áfram varðandi EM í fót-
bolta. En það er hins vegar gaman
að sjá fjölbreytnina í hópnum sem
fór út til Hollands. Sumir fóru út til
að skemmta sér á meðan aðrir voru
í fjölskylduferð með börnin en all-
ir skemmtu sér saman og samein-
uðust um að styðja íslenska lands-
liðið,“ segir Þór Bæring.
10 þúsund Íslendingar
til Frakklands?
Hann segir ómögulegt að segja til um
hversu margir Íslendingar eigi eftir
að fara til Frakklands. „Mér finnst
ekki ólíklegt að um 5.000 manns fari
út en svo gæti það auðveldlega farið
upp í 10 þúsund manns. Það verður
að minnsta kosti mikil gleði í Frakk-
landi,“ segir Þór Bæring frá Berlín. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
„Við höfum verið í
samstarfi við Tólf-
una í síðustu leikjum og
erum stoltir af því enda
umgjörðin sem stuðn-
ingsmannasveitin skapar
stórkostleg.
Þór Bæring Ólafsson Það kæmi honum
ekki á óvart þó að 10 þúsund Íslendingar
myndu fara til Frakklands næsta sumar.
Öflugur stuðningur
Aron Einar býr sig undir
innkast. Að baki honum
má sjá þúsundir stuðn-
ingsmanna.
MyNd ÞorMar VIgNIr guNNarssoN
Tólfan Þór
segir að umgjörðin
sem Tólfan hafi
skapað í kringum
landsleiki sé
stórkostleg.