Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2015, Síða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2015, Síða 45
Vikublað 8.–10. september 201540 Umræða É g skrifaði á dögunum pistil um það stríðshrjáða land Úkraínu, sem ég hef fengið að heim- sækja, og annað land þar sem geisar stríð og upplausn er Jemen, syðst á Arabíuskaganum, en það land hef ég líka heimsótt. Um daginn var frétt um borgara- styrjöldina í þessu fallega landi, og Jemen var þar lýst sem „helvíti á jörð“ og sagt að þar féllu þúsund börn í stríðsátökum árlega. Og ekki laust við að setti að manni óhug og klökkva við að heyra slíkt. Ég kom þarna raunar fyrir 17– 18 árum og um þá heimsókn hef ég áður skrifað, en ætla nú að rifja upp þá sögu. Ég vitna oft í stórmeistara vorn Halldór Laxness, en hann átti það til að endurtaka stundum sögur sem hann hafði sagt áður. Þar á með- al sögu af því þegar hann hélt ungur út í heim og kvaddi ömmu sína; þá senu notaði hann í Sjálfstæðu fólki og Brekkukotsannál og fleiri bókum, og þegar hann endurtók það enn einu sinni í endurminningabók þá heilgarderaði hann sig fyrir hugsan- legri gagnrýni með því að segja ein- hvern veginn á þá leið að hann hefði að vísu sagt þessa sögu nokkrum sinnum áður, og að hann vonaði að hann ætti eftir að gera það oft enn! Flogið til Sana‘a Ég fór til Jemen sem hluti sendi- nefndar á vegum alþjóðlega Pen- klúbbsins, sem eru mannréttinda- samtök rithöfunda, blaðamanna og útgefenda – Amnesty var einnig tengt þessari sendinefnd og henn- ar erindi. Í Jemen sat ungur mað- ur í fangelsi, ljóðskáld og höfund- ur sem hafði gagnrýnt herstjórnina í landinu, og verið dæmdur til dauða fyrir upplognar sakir, í það minnsta höfðu alþjóðlegir lögfræðingar sem fóru í gegnum málsskjölin úrskurðað að engar af ákærunum héldu vatni. Mál þessa unga Jemena var komið í kastljós alþjóðasamtaka um mann- réttindi og tjáningarfrelsi, eins og mál margra annarra samviskufanga í öðrum löndum heimsins, og það var semsé sett saman sendinefnd norrænna og arabískra höfunda til að ganga á fund embættismanna og yfir valda í Jemen og tala máli fang- ans, og heimsækja hann svo sjálfan. Við lentum í höfuðborginni, Sana‘a, hittum þar fyrir ráðuneytis- stjóra, þingforseta og ritstjóra, héldum svo eftir 2–3 daga á bílum einhverja 500 kílómetra í suðurátt, til gamallar höfuðborgar landsins, Taiz, en þar var fangelsið, yfirfullt og illa búið. Og þar hitti ég þenn- an mann; mig minnir að þetta hafi verið árið 1997, en þá var ég rúm- lega fertugur, en fanginn sem heitir Mansur var á aldur við mig og hafði þá setið inni í rúman áratug. Hann Jemen á Arabíu- skaganum Samviskufanginn Mansur og Ólafur Ragnar forseti vor Einar Kárason rithöfundur skrifar Þér að segja „En svo flaug mér í hug að úr því við vildum ná fundi forseta Jemen – hvað með þá að leita til forseta íslands? loksins á Íslandi! Verslun og Viðgerðir Hjól aspret tur ︱ Dal sHr aun 13 ︱ 220 Hafnarfjörður ︱ s ími: 565 2292 ︱ w w w.Hjol aspret tur. is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.