Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2015, Side 56

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2015, Side 56
Heilsa - Kynningarblað 3Vikublað 8.–10. september 2015 Vellíðan skiptir öllu máli Heilsa og útlit býður upp á sérhæfðar líkamsmeðferðir H eilsa og útlit er stofa sem sérhæfir sig í að hlúa að lík­ ama og sál. Sandra Lárus­ dóttir er menntaður einka­ þjálfari, en hún stofnaði fyrirtækið sumarið 2104 og hefur það á skömmum tíma náð að festa sig í sessi með sérhæfðum meðferð­ um sem bæta vellíðan viðskipta­ vina, útlit og heilsu. Rólegt og afslappandi umhverfi „Okkar markmið er að þér líði sem best með sjálfan þig og að þú njót­ ir þín í rólegu og afslappandi um­ hverfi hjá okkur,“ segir Sandra sem hefur sérhæft sig í hinum ýmsu líkamsmeðferðum síðustu þrjú árin og kynnt sér náið nýjustu strauma og stefnur í slíkum meðferðum. Á stofunni starfa einnig snyrti­ fræðingurinn Rut Ragnarsdóttir, sem sér um allar snyrtimeðferðir, t.d. litun og plokkun, Lára Jónsdóttir nuddari, sem sérhæfir sig í Body­sds nuddtækni sem losar upp spennur í vöðvum og liðum, eykur blóðflæði, örvar eitlakerfi og sogæðakerfið, og Erla Gunnarsdóttir, sem sinnir lík­ amsmeðferðum. Sandra hefur kom­ ið víða við á ferli sínum en hún hef­ ur verið í heildsölubransanum í ein fimmtán ár, hefur opnað fjórar fataverslanir og setti á laggirnar og framleiddi „Brasilian Tan“ brúnku­ kremið sem hún seldi nýverið frá sér. „Mér finnst gaman að takast á við nýjar áskoranir,“ segir Sandra sem hafði gengið með hugmyndina að heilsu­ og snyrtistofunni frá því að hún kynntist vafnings­líkams­ meðferðinni í Austurríki. Þar hlaut hún sérhæfingu í meðferðinni og varð fljótt mjög spennt fyrir að kynna hana fyrir Íslendingum. Vafningar Í þessari meðferð er sérvalið gel borið á líkamann frá ökklum, upp undir hendur og á upphandleggi. Líkaminn er vafinn inn í plast og síðan er viðkomandi lagður í sér­ stakt hitateppi. Slakandi tónlist er spiluð í 40 mínútur á meðan gelið vinnur sitt starf. Að lokum er bor­ ið sefandi Aloe Vera­krem á lík­ amann til að róa húðina og gefa henni þann raka sem hún þarf eftir meðferðina. Sandra er umboðsað­ ili fyrir heilsuvöruframleiðandann Weyergans, en hún notar mikið af tækjum og tólum þaðan í sogæða­ meðferðir sínar hjá Heilsu og útliti og mætti þar nefna sérstaklega súr­ efnishjálminn, sogæðastígvélin og „Detox“­pokann. „Við sérhæfum okkur í hreinsun sogæðakerfisins sem er hreinsunarkerfi líkamans. Þetta er gott fyrir hvers kyns bólgu, virkjar kerfið í okkur og fær okkur til að líða betur,“ útskýrir Sandra. „Það er mjög ánægjulegt að fá viðbrögð­ in frá viðskiptavinunum. Það finnur og sér muninn um leið og það upp­ lifir mikla vellíðan. Hingað kem­ ur t.d. ein kona sem keyrir alla leið frá Stykkishólmi einu sinni í viku til að fá meðferð,“ segir Sandra. „Með­ ferðirnar eru andlegar og líkam­ legar. Vellíðan skiptir öllu máli. Og það er bónus ef útlitið lagast líka,“ segir Sandra að lokum. Allar frek­ ari upplýsingar um þjónustu Heilsu og útlits má finna á Facebook­síðu fyrir tækisins og á vefsíðunni heilsa­ ogutlit.is. n Heilsa og útlit Sandra Lárusdóttir, eigandi Heilsu og útlits (t.v.) og Rut Ragnarsdóttir snyrti- fræðingur. Mynd ÞoRMaR VigniR gunnaRsson Líkamsmótandi fitufrysting (Cryolipolysis) Frysting fitu er frábrugðin annarri fitumeðferð án skurðaðgerða þar sem notuð er kæling til þess að frysta fituna og þar með eyða fitufrumum endanlega. Rannsókn­ ir hafa sýnt fram á að með frystingu fitu má eyða 20 til 40% af fitufrumum á því svæði sem er til meðferðar hverju sinni. Fitu frumur deyja þegar þær eru frystar að ákveðnu hitastigi. Meðferðin er notuð sem valmöguleiki í staðinn fyrir fitusog og er nútímaleg aðferð við mótun líkama. Húðmeðhöndlun með súrefnishjálminum Þessi sérstaka húðmeðferð byggist á ákveðnum efnafræðilögmálum og nýtur einkaleyfisverndar hjá þeim snyrtistofum sem bjóða upp á slíka meðferð víðs vegar um heiminn. Í meðferðinni er unnið með oxun þar sem neikvæðar jónir eru nýttar úr andrúmsloft­ inu. Þannig er hægt að nota það súrefni sem fyrir er, leiða það inn í hjálminn og engin þörf er þá á öðrum súrefnisbirgðum. Orkan er leidd inn í höfuðhlífina sem virkar eins og oxunarhjúpur utan um andlitið. Þannig nær hún að vinna sér leið inn undir húðina og örva sellulósaskiptin sem eru nauðsynleg til að húðin geti gegnt sínum hlutverkum sjálf eins og uppbyggingu, hreinsun, viðhaldi, stinningu og styrkingu. Á meðan meðferðaraðilinn andar orkunni að sér í gegnum munn og nef nýt­ ist súrefnisflæðið einnig öllum líf­ færum og ekki síst heilanum. Þar sem engin aukaefni eru notuð í meðferðinni er hún fullkomlega náttúruleg. Sogæðanudd með þrýstings- stígvélum fyrir fætur og læri Aðferðin virkar þannig að loftþrýstingurinn er leiddur inn í stígvélin sem meðferðaraðilinn klæðist og þá myndast hið svokallaða öldurennslis­ eða bylgjunudd. Strax í upphafi níunda áratugarins var farið að nota þessa gerð klofháu þrýstings­ stígvéla sem meðferð fyrir fætur og læri. Aðferðin var fyrst kynnt fagfólki fyrir 25 árum og hefur hlotið mikla viðurkenningu í Þýskalandi og öðlast fastan sess fram yfir aðrar sogæðameðferðir hjá virtum heilsustofnunum þar í landi.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.