Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2015, Blaðsíða 14
14 Fréttir Helgarblað 29. október–2. nóvember 2015
PLUSMINUS OPTIC
Smáralind
www.plusminus. is
10 ára
PLUSMINUS OPTIC fagnar
10 ára afmæli í október
Þökkum okkar fjölmörgu viðskiptavinum samstarfið
og minnum á afsláttinn sem þeir njóta
Tökum vel á móti og bjóðum nýjum viðskiptavinum
20% afslátt í október
Hurð skall nærri hælum í Reynisfjöru
Þ
að skall á ströndina gríðar
legur ölduskafl sem gekk
miklu lengra upp á land en
áður hafði gert,“ segir Stefán
Gunnarsson, forstjóri ferða
þjónustufyrirtækisins Guðmundur
Jónasson í samtali við DV. Mikil
hætta skapaðist í ferð á vegum fyrir
tækisins í Reynisfjöru síðastliðinn
laugardag. Þá blotnuðu átta manns
er stór alda gekk á land. Leiðsögu
maður ferðarinnar þurfti að grípa
í tvo ferðalanga til að forða því að
þeim skolaði á haf út. Tvær erlend
ar konur féllu niður á hnén en tókst
með aðstoð leiðsögumannsins að
standa af sér útfallið. „Fólki var veru
lega brugðið.“
Fjölmiðlar hafa ítrekað undanfar
in ár og misseri flutt fréttir af atvikum
í Reynisfjöru, í grennd við Vík í Mýr
dal. Nú síðast í september greindi
DV frá því að þrír menn hafi lagt sig
í bráða hættu við að bjarga þeim
fjórða sem veltist í brimi í fjörunni.
Við björgunina skall á þeim risaalda
og skolaði þeim inn í helli sem er við
fjöruna. Þeir sluppu ómeiddir. Seint
í sumar birti DV mynd af mæðgum
sem sluppu naumlega undan brim
inu við stórhættulegar aðstæður. Þá
er skemmst að minnast banaslyss
sem varð í fjörunni árið 2007 þegar
öldruð kona drukknaði. Hættan í
fjörunni er því vel þekkt.
Tvær misstu fótanna
Stefán segir að vandlega hafi verið
farið yfir atvikið hjá sínu fyrirtæki
um helgina en um var að ræða
blandaðan hóp ferðamanna frá hin
um ýmsu þjóðlöndum – 28 manns
alls. Niðurstaða fyrirtækisins sé sú
að fyllsta öryggis hafi verið gætt.
Þrautreyndur leiðsögumaðurinn
hafi haldið tölu yfir hópnum við
stórt skilti hjá bílastæðinu, áður en
haldið var í fjöruna. Þar hafi öllum
verið gerð grein fyrir þeim hættulegu
aðstæðum sem þar skapast. Þá hafi
hópurinn, að undirlagi leiðsögu
mannsins, haldið sig í góðri fjarlægð
frá blautum sandi. Aldan sem skall
á land hafi hins vegar gengið miklu
lengra upp en aðrar fram að því. Átta
manns blotnuðu upp undir hné, að
sögn Stefáns en tvær konur misstu
fótanna og blotnuðu á höndum
líka. Leiðsögumaðurinn greip undir
handarkrikana á þeim til að tryggja
öryggi þeirra.
Fólki var að sögn Stefáns brugðið
en sækja þurfti þurr föt í rútuna eftir
atvikið, þar sem hugað var að fólkinu
sem blotnaði. Fyrirtækið hafi síð
an verið í sambandi við þá sem fyrir
öldunni urðu, til að athuga hvernig
þeir hefðu það. Enginn hafi sem bet
ur fer meiðst. Hann segist aðspurður
ekki meta það svo að fyrirtækið þurfi
að breyta verklagsreglum vegna
þessa atviks. „Leiðsögumaðurinn fór
að öllum fyrirmælum og hafði stjórn
á aðstæðum.“
Ekki hægt að loka öllu
Stefán segir að nokkur fjöldi annarra
ferðamanna hafi verið staddur í fjör
unni. Nokkrir hafi verið neðar en
hópurinn en Stefáni er ekki kunnugt
um hvernig þeim reiddi af. Líklega
hafi þeim tekist að hlaupa undan
öldunni og þannig sloppið við að
blotna.
Búið er að grípa til ráðstafana
í Reynisfjöru til að vara við mikilli
hættu sem þar skapast. Jónas Guð
mundsson, sem sér um slysavarna
mál hjá Landsbjörg, sagði við DV í
sumar að allir sem koma í fjöruna
ættu að verða varir við skilti sem vara
við þeirri hættu sem þar getur skap
ast. „Ég veit satt best að segja ekki
hvort eitthvað væri hægt að gera til
að koma í veg fyrir að fólk fari sér að
voða. Þetta er hættulegur staður ef
fólk fer kæruleysislega um.“
Stefán segist ekki telja að bæta
þurfi merkingar í Reynisfjöru eða
grípa til frekari varúðarráðstafana.
„Það er ekki hægt að loka öllu og
girða allt af. Okkar leiðsögumaður
stoppar við stórt og ítarlegt upplýs
ingaskilti þar sem hann fer vel yfir
hættuna.“ Svona atvik séu einfald
lega hluti af því að umgangast óblíða
náttúru Íslands. Sem betur fer hafi
ekki farið illa. n
Leiðsögumaður greip í tvær konur sem féllu niður á hnén þegar stór alda gekk á land
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
„Það er
ekki
hægt að
loka öllu og
girða allt af
Stórhætta Örskömmu eftir að þessi ljósmynd var tekin gekk alda á land. Mægðurnar komust upp úr fjörunni við illan leik.
Forstjórinn Stefán segir að leiðsögu-
maðurinn hafi farið að fyrirmælum
á vettvangi og tryggt öryggi ferða-
mannanna. Mynd ÞorMar ViGnir GunnarSSon