Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2015, Blaðsíða 40
Helgarblað 29. október–2. nóvember 20154 Matur og veitingar - Kynningarblað
Kjúklingastaðurinn Suðurveri fagnar 48 ára afmælinu
Einn elsti skyndibita-
staðurinn í Reykjavík
K
júklingastaðurinn Suður-
veri, Stigahlíð 45–47, er lík-
lega elsti starfandi skyndi-
bitastaðurinn í Reykjavík.
Staðurinn hóf starsfemi
sína í Suðurveri árið 1967 og fagn-
ar því 48 ára afmæli sínu nú í ár. Jón
Eyjólfsson tók við rekstri veitinga-
staðarins í september 2006 og er
þriðji eigandi hans. Ári síðar var
Jón búinn að stækka og endurnýja
allan veitingastaðinn.
Gómsætur kjúklingur
Kjúklingastaðurinn í Suðurveri
sérhæfir sig auðvitað í kjúklinga-
réttum. Sérkryddaðir steiktir
kjúklingabitar eru án efa aðals-
merki staðarins en á matseðlinum
kennir ýmissa grasa. Á kvöldin er
hægt að fá heilan grillaðan kjúkling
sem er hægeldaður upp á gamla
mátann. Þannig helst hann bragð-
mikill og safaríkur. Karríkjúklingur-
inn er líka gríðarlega vinsæll,
borinn fram með hrís-
grjónum og dásamlegri
karrísósu. Kjúklinga-
borgarinn er lagaður úr
heilum kjúklingabring-
um og borinn fram með
frönskum sem sumir vilja
meina að séu þær bestu í
bænum.
Ekki bara kjúklingur
Kjúklingastaðurinn í Suðurveri
ber nafn með rentu en það úti-
lokar þó ekki aðra gómsæta rétti af
matseðlinum. Fyrir hina sem kjósa
hamborgara þá verða þeir alls ekki
sviknir og er djúpsteikti fiskurinn
fyrir löngu orðinn að föstum lið vik-
unnar hjá mörgum íbúum í hverf-
inu. Nautasteikin bráðnar í munni
með kryddsmjöri, smjörsteiktum
sveppum og bragðgóðri sósu sem
er að sjálfsögðu löguð á staðnum.
Reyndar eru allar sósurnar sem fást
á Kjúklingastaðnum heimalagað-
ar frá grunni rétt eins og hrásalatið,
sem er víst að nálgast heimsfrægð.
Mikil leynd er yfir uppskriftinni
sem hefur haldist eins frá opnun,
1967. Það er lagað daglega og er því
alltaf ferskt. Jón segir að svo vin-
sælt sé það að fyrir hver jól komi
heilu fjölskyldurnar sem kaupa
það í magni með jólasteikinni.
Þverskurður
samfélagsins
Þéttur hópur
fastagesta hefur
haldið tryggð við
staðinn í gegnum
árin. Það er alltaf
mikið að gera á
Kjúklingastaðnum í
Suðurveri og í hádeginu og
á kvöldin er staðurinn iðandi af
lífi. Kúnnahópurinn er breiður og
á hverjum degi sest þverskurður
af þjóðfélaginu niður til að seðja
hungrið eða grípur matinn með
heim. Jón segir að staðinn sæki all-
ir, allt frá unglingunum í hverfinu,
þjóðþekktum einstaklingum, eldri
borgurum, að fjölskyldufólki.
Notalegt umhverfi
Jón leggur mikið upp úr því að
skapa traustum viðskiptavinum
sínum huggulegt andrúmsloft.
Bæði bekkir og borð eru stór og
breið þannig að vel fer um fólk og
er allur matur á staðnum borinn
fram á alvöru borðbúnaði og sker
sig þannig úr frá öðrum skyndi-
bitastöðum.
Kjúklingastaðurinn í Suðurveri
er opinn alla daga frá kl. 11.00 til
21.30. n
„Mikil
leynd er
yfir uppskriftinni
sem hefur hald-
ist eins frá opn-
un, 1967.