Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2015, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2015, Blaðsíða 29
Fréttir Erlent 29 GÆÐI•ÞEKKING•ÞJÓNUSTA Góð þjónusta í yfir 60 ár Gæðahreinsun þvottahús Dúkaleiga fyrirtækjaþjónusta sækjum & sendum Efnalaugin Björg Háaleitisbraut 58-60, 108 reykjavík sími: 553-1380 Helgarblað 29. október–2. nóvember 2015 F yrir tíu árum sór Doris Payne, þá rúmlega 75 ára, og sárt við lagði að hún væri hætt að stela skartgripum. Árið 2013 lofaði hún aftur öllu fögru og sagð- ist steinhætt þjófnuðum, hún yrði heiðarleikinn uppmálaður þaðan í frá. Eitthvað gengur henni þó illa að halda sig á beinu brautinni þar sem hún var handtekin á dögunum með eyrnalokka í vasanum í verslun Saks Fifth Avenue í Atlanta. Eyrnalokkana hafði hún tekið ófrjálsri hendi, en þeir voru verðmetnir á um 650 dollara, eða tæpar 130 þúsund ís- lenskar krónur. Payne er ágætlega þekkt fyrir glæpaferil sinn sem nú spannar sex áratugi. Hún er fædd í október árið 1929 og er því 86 ára. Hún hefur reglulega komist í kast við lögin bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu. Hún hefur einnig verið iðin við að ræða við fjölmiðla um glæpastarfsemina í gegnum árin. Að þessu sinni tók öryggisvörður eftir því á öryggismyndbandi að hún laumaði Christian Dior-eyrnalokk- um í vasann. Hún hraðaði sér svo út úr búðinni. Þegar hún var handtek- in kom í ljós að lögreglan í Mecklen- berg-sýslu í Norður-Karólínu hafði látið lýsa eftir henni fyrir svipaðan glæp. Hún var færð í gæsluvarðhald og ákærð fyrir þjófnað. Byrjaði 23 ára AP fréttastofan greinir frá því að Payne hafi að líkindum hafið glæpaferilinn þegar hún var 23 ára. Þá gekk hún út úr skartgripabúð í Pittsburgh með demant sem var þá verðmetinn á 22 þúsund dollara. Þetta er fyrsti glæpurinn sem hún gekkst sjálf við, en hún hefur ítrekað verið handtekin og dæmd til fangavistar. Hún var til dæmis dæmd í fimm ára fangelsi í Colorado í eitt skiptið. Þá hefur hún reynt að flýja úr varðhaldi og var árið 2011 dæmd í 16 mánaða fangelsi, þá áttræð, fyrir að stela demantshring. Árið 2014 var hún aftur dæmd í fang- elsi, en losnaði á skilorði fljótlega eftir að afplánun hófst. Payne hafði og hefur sérstakan sjarma. Hún klæðir sig upp, er með rándýrar handtöskur og spjall- ar mikið við afgreiðslufólkið, segir því sögur sem hún spinnur á staðn- um. Hún þykist vera efnuð og fær af- greiðslufólkið til að aðstoða sig, spyr mikið og vill fá nákvæmar upplýs- ingar. Afgreiðslufólkið telur sig vera að ræða við efnaða og veraldarvana konu og gerir henni ýmsa greiða til að liðka fyrir því að hún kaupi skart- gripi. Margir fá árangurstengd laun og gera því ýmislegt til að tryggja sölu. Payne tekur skartgripina af sér, setur þá á sig aftur og ruglar fólk- ið. Þannig tekst henni að skapa hálf- gerðar sjónhverfingar og oftar en ekki gengur hún út úr versluninni án þess að nokkur verði var við neitt. Hættir ekki AP fréttastofan greinir frá því að hún hafi í gegnum tíðina notað 22 dul- nefni hið minnsta og að allar líkur séu á því að hún hafi sloppið mun oft- ar en margir geri sér grein fyrir. Árið 1970 voru samtök skartgripasala far- in að vara við henni. „Það er í raun hreint ótrúlegt að glæpamaður skuli ná að eiga að baki sér þetta langan af- brotaferil. Yfirleitt hætta þeir þegar þeir telja sig hafa nægilega mikið á milli handanna eða þeir treysta sér ekki til þess að standa í þessu lengur. Nú eða þá að þeir eru dauðir,“ segir John J. Kennedy, formaður samtak- anna. Hann segir að margir verði hvumsa þegar þeir heyri af henni og heillist jafnvel af sögu hennar. Það sé eitthvað alveg sérstakt við feril henn- ar, sérstaklega eftir því sem hún verð- ur eldri. Sjálf gerir hún grín að þeim og árið 2005 ræddi hún ítarlega við AP, sagði gamansögur af uppátækjum sínum og hló. Hún sagðist helst stela demöntum, það væri auðveldast. Þá sagðist hún fyrst og fremst vera glæpa- maður þar sem það væri skemmtileg en ekki vegna þess að hún vildi græða á því fé. „Þessu fylgir eftirsjá en ég hef líka skemmt mér vel,“ sagði hún þá en í sama viðtali lofaði hún að hún væri hætt að stela og kvað það vera tíma- bært. Í samtali við mann sem var að gera um hana heimildamynd árið 2013 gaf hún sama loforð. John J. Kennedy segist ekki búast við því að hún láti af þessu á næst- unni. „Ég hef lengi sagt það að hún er atvinnuglæpamaður og ég efast um að hún hafi nokkurn áhuga á að hætta þessu. Ef þú ert kominn á þennan ald- ur og ert enn að, þá er ekki nokkur von til þess að þú hættir,“ segir hann. n „Hún er atvinnuglæpamaður“ n 86 ára skartgripaþjófur handtekinn n Hefur verið að í sex áratugi og virðist hvergi nærri hætt Handtekin Doris, sem er í dag 86 ára, hefur ítrekað verið handtekin og henni stungið í fangelsi fyrir glæpi sína. Líklega hefur hún þó oftar en ekki komist upp með þjófnaðinn. Þessi ljósmynd er frá 1965. „Það er í raun hreint ótrúlegt að glæpamaður skuli ná að eiga að baki sér þetta langan afbrotaferil.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.