Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2015, Síða 28
28 Fréttir Erlent Helgarblað 29. október–2. nóvember 2015
A
lgjör lögleysa ríkir í fang-
elsum í Pernambucano-
héraði í Brasilíu. Fang-
elsunum er stjórnað af
fámennum hópi fanga
sem jafnvel eru með lyklavöld. Þá
er dópsala daglegt brauð og þeir
fangar sem skulda eiga á hættu að
verða barðir til óbóta, jafnvel myrt-
ir. Þetta er samkvæmt rannsókn
sem Mannréttindavaktin, Human
Rights Watch, hefur unnið að
undanfarna mánuði.
Fara með lyklavöldin
Vefútgáfa Mail Online fjallar um
málið en í umfjöllun vefmiðilsins
kemur fram að stjórnendur fang-
elsanna í héraðinu, sem í flestum
tilfellum eru yfirfull, séu hræddir
við valdamestu fangana, sem jafn-
an eru kallaðir „chaveiros“. Þeir hafa
svo lyklavöld í þeirri fangelsisálmu
sem þeir afplána í, en þetta ku vera
gert til að viðhalda „reglu“ í álm-
unni. Þeir fangar sem njóta þessara
réttinda eru stórhættu legir glæpa-
menn; morðingjar, nauðgarar og
dópsalar. Skýrsla Human Rights
Watch tók til fjögurra stórra fang-
elsa í Pernambucano-héraði en í
þessum fangelsum er aðeins einn
fangavörður fyrir hvern 31 fanga.
Lifa í lúxus
Í skýrslu Human Rights Watch
kemur meðal annars fram að ber-
skjaldaðir fangar verði oft fyrir
barðinu á nauðgurum og ættingjar
annarra fanga, fyrir utan veggi fang-
elsisins, verði oft fyrir kúgunum og
hótunum vegna fíkniefnaskulda
ástvina þeirra í fangelsinu. Þeir
fangar sem ekki njóta virðingar í
fangelsinu eru látnir dúsa í yfirfull-
um fangaklefum en þeir sem hafa
lyklavöldin lifa í hálfgerðum lúxus.
Þeir eru einir í klefa þar sem þeir
hafa aðgang að sjónvarpi, ísskáp,
baðherbergi og njóta fullrar þjón-
ustu annarra fanga. Þá eru fangar
sem neðstir eru í virðingarstigan-
um látnir borga skatt sem samsvar-
ar á bilinu 160 til 1.500 krónum á
viku. Þeir sem geta ekki greitt eiga
á hættu að verða lamdir eða jafnvel
myrtir af undirmönnum þeirra sem
stjórna og hafa lyklavöldin.
Selja fíkniefni
Þeir hæst settu, chaveiros, hafa
einnig aðgang að fíkniefnum, allt
frá krakki til kókaíns, sem þeir
selja öðrum föngum. Fangaverðir
eða lögreglumenn smygla efnun-
um inn í fangelsin. Í skýrslunni er
vitnað í konu að nafni Sandra sem
á son sem afplánar dóm í einu
fangelsanna. Hún segir að sér hafi
verið hótað greiði hún ekki fíkni-
efnaskuld fyrir son sinn. Annað-
hvort borgi hún eða kaupi líkkistu
undir hann. Sandra segist hafa selt
allar sínar eigur og gefið sjónvarpið
sitt sem fangi, ofarlega í virðingar-
röðinni, nýtur nú væntanlega góðs
af.
Í skýrslu Human Rights Watch
kemur fram að þeir sem hafa
lyklavöld hagnist einnig á að leigja
út betri fangaklefa til annarra
fanga. Þeir sem hafa efni á geti
borgað 20–65 þúsund krónur fyrir
rúm og fámennari klefa.
Frumskógarlögmálin gilda
Fangelsi í Brasilíu hafa haft orð
á sér fyrir að vera hrottafengin
og yfir full. Skýrsla Human Rights
Watch staðfestir þetta en ástandið
virðist vera verra en margir hafa
talið. Frumskógarlögmálin gilda í
umræddum fangelsum og algjör
lögleysa virðist ríkja. Þannig er haft
eftir konu í skýrslunni, Maria að
nafni, að frændi hennar hafi sætt
skelfilegu ofbeldi og meðal annars
verið barinn með kylfum. Hún seg-
ist ekki hafa þorað að tilkynna of-
beldið af ótta við hefndaraðgerð-
ir. Ekki nóg með að líkamlegt
ofbeldi sé daglegt brauð heldur
verða fangar einnig fyrir kynferðis-
legu ofbeldi. Í skýrslunni er vitnað
í fanga að nafni Jorge, sem afplán-
aði í COTEL-fangelsinu í borginni
Recife í Pernambucano. Hann segir
að tíu fangar sem hann deildi með
klefa hafi nauðgað sér. Fangarnir
hafi látið plastpoka yfir höfuð hans,
bundið hendur hans fyrir aftan bak
áður en þeir nauðguðu honum.
Að því loknu hafi þeir hótað hon-
um lífláti ef hann segði einhverj-
um frá. Annar fangi hefur svipaða
sögu að segja. Sá er samkynhneigð-
ur og heitir Paulo, en honum var
hópnauðgað í fangaklefa sínum í
PAMFA-fangelsinu í nóvember í
fyrra. Hann deildi fangaklefa með
67 föngum. Í skýrslunni er bent á að
nauðganir séu líklega stór ástæða
þess að tíðni HIV sé 42 sinnum
hærri í fangelsum í Pernambucano
en meðal almennings í Brasilíu.
Yfirfull fangelsi
607 þúsund fangar eru nú í brasil-
ískum fangelsum en fangelsin
rúma þó aðeins 377 þúsund fanga.
Í Pernambucano eru 32 þúsund
fangar í fangelsum sem eru hönnuð
til að rúma 10.500 fanga. Bent er á
það í skýrslu Human Rights Watch
að 59 prósent þeirra sem eru í fang-
elsum bíði enn eftir dómi. Human
Rights Watch heimsótti fangelsin
á þessu ári og var skýrsla unnin
upp úr viðtölum við 40 núver-
andi og fyrrverandi fanga auk þess
sem viðtöl voru tekin við ættingja
fanga. Einnig var rætt við fanga-
verði, dómara, talsmenn fangels-
isyfirvalda, lögmenn og lögreglu-
menn. n
Hópnauðganir,
lúxuslíf og ofbeldi
n Ótrúlegar myndir úr skýrslu Human Rights Watch n Svört skýrsla um stöðu fangelsismála
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Yfirfull Fangelsi í
Pernambucano eru
yfirfull. 32 þúsund
fangar dvelja í fang-
elsum sem ætluð eru
fyrir 10.500 fanga.
Hrottalegt
ofbeldi Föngum
sem eru neðarlega
í virðingarröðinni er
jafnan hótað og þeir
beittir ofbeldi.