Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.2015, Blaðsíða 69
Menning 61Helgarblað 29. október–2. nóvember 2015
Hitabangsarnir
Yoohoo félagar
komnir aftur
Aðeins 2 mín í örbylgjuofni og þeir verða mjúkir,
hlýjir og dásamlegt að kúra með þeim. Þeir eru
fylltir með hirsi og smá ilm af Lavander.
Allir
þurfa Yoohoo í líf sitt
H
ar
ðp
ar
ke
tÞýsk gæði!
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is
Bíómyndir sem líkja
eftir listaverkum
n Sjónræn ljóðlist og blekkingar
13 Melancholia (2011) og Ófelía (1852) Danski óláta
belgurinn Lars von Trier hleður
kvikmyndir sínar oftar en ekki
tilvísunum í gjörvalla menningar
sögu Vesturlanda. Í upphafsatriði
heimsendadramans Melancholia
birtist brúðurin, leikin af Kirsten
Dunst, í hlutverki hinnar dönsku
hefðarkonu Ófelíu (úr leikritinu um
Hamlet) eins og hún er máluð af
Bretanum John Everett Millais. Mál
verkið sjálft birtist síðar í myndinni.
14 Django Unchained (2012) og The Blue Boy (1977)
Quentin Tarantino sótti innblástur
í málverk Bretans Thomas Gains
borough þegar hann lét leysingjann
Django klæðast bláum glans
klæðnaði. Blái drengurinn hefur
reyndar áður verið í aðalhlutverki í
kvikmyndum en F.W. Murnau gerði
heila mynd um verkið – en hún er
glötuð. Það er kannski tilviljun en
Murnau þessi bjó einmitt til kvik
myndatækni sem hann kallaði laus
hangandi upptöku – sem útleggst á
ensku „unchained.“
15 Under the Skin (2013) og Ferðalangur ofar skýjum
(1818) Ein mest ógnvekjandi mynd
síðari ára er sálrænn hryllingur
Jonathans Glazer, Under the skin.
Hryllingur kvikmyndarinnar er
sjónrænn og súrrealískur. Leikstjór
inn notar tilvísanir í listasöguna
og vitnar meðal annars beint í eitt
þekktasta verk þýska rómantíska
málarans Caspers Davids Friedrich
af ferðalangi sem stendur á fjalli og
horfir yfir skýin.
Dagur Kári verðlaunaður
Annar Íslendingurinn til að vinna kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs
D
agur Kári Pétursson hlaut
kvikmyndaverðlaun Norður
landaráðs fyrir kvikmynd
sína, Fúsi.
Þetta er í annað skipti í röð sem
Íslendingur hlýtur verðlaunin en
Benedikt Erlingsson hlaut verðlaun
in í fyrra, fyrstur Íslendinga, fyrir
kvikmyndina Hross í oss.
Dagur Kári veitti verðlaununum
viðtöku þegar þau voru veitt í Hörpu
á þriðjudagskvöld. Hann sagði verð
launaféð, rúmar 6,5 milljónir, koma
sér vel enda skuldaði hann skattin
um pening. Þá talaði hann hlýlega
til Gunnars Jónssonar, aðalleikara
myndarinnar.
Barnabókaverðlaun ráðsins hlaut
Svíinn Jakob Wegelius fyrir bókina
Mördarens apa, en í bókinni slæst
lesandinn í för með górillunni Sallý
Jones um sóðalegt hafnarhverfi
Lissabonborgar. Norðmaðurinn Jan
Fosse hlaut bókmenntaverðlaun
in fyrir verk sitt Trilogien: Andvake.
Olavs draumar. Kveldsvævd. Verkið
er sagt „tímalaus ástarsaga; prósi sem
hefur greinilega ljóðræna eiginleika
og jafnframt meðvitaða og gáska
fulla afstöðu til mannkynssögunnar.“
Tónlistarverðlaunin hlaut sænska
tónskáldið, selló og bassaleikarinn
Svante Henryson en færeyska orku
fyrirtækið SEV hlaut náttúru og um
hverfsiverðlaun ráðsins. n