Skagfirðingabók - 01.01.2012, Side 39

Skagfirðingabók - 01.01.2012, Side 39
JÓN S. NIKÓDEMUSSON VÉLSMIÐUR Á SAUÐÁRKRÓKI Skeggjabrekkudal. Hin hola Ólafs- firðinga heitir OH-00 og er 70 m djúp hitaleitarhola í nágrenni Ólafs- fjarðar. Heimamenn töldu sig sjá þar merki jarðhita á yfirborði, og var bor- að í þann blett. Þegar betur var að gáð, var „heiti bletturinn“ aðeins leki frá stofnæðinni frá Skeggjabrekkudal inn í byggðina! Þá var höggborinn not- aður til þess að bora sex kaldavatnshol- ur, SK-01 til SK-06, á Sauðárkróki á árunum 1965–1969. Þrjár voru bor- aður undir Nöfunum, SK-01 er 12 m djúp, SK-5 er 14 metrar en óþekkt er dýpið á SK-04. SK-03 er í Kirkju- klaufinni 18 m djúp. SK-02 er við Skagfirðingabrautina 22 m og SK-6 er austan við gömlu flugbrautina 40 metr a djúp. Síðast var höggborinn leigður Laxárvirkjun í Aðaldal. Gunn- ar Helgason fór með hann þangað, setti hann upp og kenndi Ólafi Guð- mundssyni frá Sölvanesi á hann. Þar tókst svo illa til við borunina að mastr- ið bognaði og stóra tannhjólið brotn- aði, og var nýtt smíðað á Akureyri. Ekki er vitað hvort boruð var ein hola eða fleiri. Líklega var ætlunin að ná í kalt vatn. Þar með lauk höggborinn hlutverki sínu. Nú er ekki úr vegi að staldra við. Á þessum árum var atvinnuástand bágt á Sauðárkróki sem og víða úti um land. Jafnframt því var bæjarsjóður veik- burða og ekki fjárhagslegt svigrúm til framkvæmda sem þessara. Þetta var bæjarstjórn auðvitað ljóst, og sam- kvæmt því var að sjálfsögðu leitað sparnaðar við útgjöld og fyllsta hófs gætt í lántökum til verksins. Hita- veit u nefnd og hitaveitustjóri voru því í nánu samstarfi við bæjarstjórnina, þegar ákvarðanir voru teknar um alla þætti framkvæmda og framvindu verks. Jón var hófsamur ráðdeildar- maður, og ekki þarf að efa, að hann muni hafa lagt sig fram við að halda kostnaði í lágmarki. Smiðja Jóns var ekki stór, og varla mun tækjabúnaður þar hafa vaxið neinum stéttarbræðra hans í augum. En þegar í ljós kom, að ýmsir hlutir í þeim aðkeypta búnaði, sem fenginn hafði verið til hitaveitu- lagnanna frá verksmiðjum, dugðu ekki, tók Jón við og gekk til smiðju sinnar. Þar var margt smíðað fyrir hita veituna. Jón smíðaði dælu16 eða „vatnslyft- ara“, til þess að reyna að auka upp- streymi úr holunni, sem mest vatn fékkst úr. Dæluhjólið var líkast bátsskrúfu á lóðréttum öxli og knúið með rafmótor. Á fundi hitaveitunefnd- ar, 29. apríl 1964, kemur fram í skýrsl u hitaveitustjóra, að hann „taldi að allar líkur bentu til að ekki væri meira heitt vatn á svæði því sem borað hefði verið á við Áshildarholtsvatn, þar sem vatnslyftari sá sem hann útbjó hafi ekki aukið vatnsmagnið, þar sem hola sú sem vatnslyftarinn var settur á tók frá hinum holunum þannig að það varð ekki um aukningu að ræða.“ Svo sem ljóst má vera jókst þörfin fyrir heitt vatn með stækkun byggðar og auknum umsvifum af ýmsum toga. 39 16 Verkstæði á Selfossi og í Reykjavík smíðuðu djúpdælur fyrir hitaveitur. Hins vegar tókst ekki að smíða djúpdælur sem dugðu í 100°C heitu vatni eða heitara fyrr en Jóhannesi Zoēga hita- veitustjóra í Reykjavík datt í hug að nota teflon í legurnar. Verksmiðjur í Bandaríkjunum sérsmíðuðu slíkar djúpdælur fyrir Hitaveitu Reykjavíkur, fyrst haustið 1967.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191

x

Skagfirðingabók

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skagfirðingabók
https://timarit.is/publication/1154

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.