Fréttatíminn - 18.12.2015, Page 34
Græna byltingin í Kaliforníu
„Það var alveg rosalegur munur
á því að læra í Þýskalandi og Kali-
forníu,“ segir Trausti sem hélt utan
í doktorsnám eftir að hafa unnið í
nokkur ár hjá Þróunarstofnun við
skipulagsmál borgarinnar. „Ég varð
dálítið ferkantaður og stífur af því
að búa í Berlín því Þjóðverjar eru
svo skipulagðir. Það er svo mikil röð
og regla á öllu, en ég hafði sjálfsagt
gott af því þar sem mig vantaði aga.
En í Kaliforníu eru mýktin og nær-
gætnin allsráðandi. Á þessum tíma
var Berkley Mekka skipulagsfræð-
anna og þáverandi ríkisstjóri Jerry
Brown setti til að mynda inn í lög-
gjöf allskonar umhverfisreglur og
lét byggja byggingar í Sacramento
sem nýttu sólarljós og löguðu sig að
umhverfi sínu.
Það er oft sagt að í Los Angeles
finni maður það yfirborðskennda
en að í San Fransisco sé meiri dýpt
og nánd við náttúruna. Manni var
kennt að hlusta vel á náttúruna
og að vera næmur fyrri öllu um-
hverfi og umhverfisáhrifum, sem
er almenn regla í skipulagi í dag
en var það alls ekki á þeim tíma,“
segir Trausti sem útskrifaðist frá
Berkley árið 1987 og varð þá fyrsti
Íslendingurinn til að öðlast dokt-
orsgráðu í faginu. Eftir heimkomu
varð hann svo fyrsti maðurinn til
að kenna fræðin á Íslandi og hefur
síðan miðlað fræðunum í 12 bókum
og yfir 150 greinum.
„Þegar fór að nálgast það að ég
þyrfti að hætta, samkvæmt lands-
lögum, þá datt mér í hug að búa til
samantektarbók. Ég ákvað að hafa
hana í persónulegum ævisögustíl til
að ná betur til almennings. Frekar
en að skrifa óaðgengilegan fræði-
texta langaði mig til að lýsa mínu
sjónarhorni á fræðin.“
Íslendingar eru óskipulagðir
„Hugmynd með skipulagi er sú
að byrjað er á heildarhugsun, sem
kallast aðalskipulag,“ segir Trausti
aðspurður um Íslendinga og skipu-
lagsmál. „Þegar aðalskipulag hefur
svo verið samþykkt þá á að vinna
það nánar í deiliskipulag og svo
í einstök hverfaskipulög. En Ís-
lendingar eru ansi óskipulagðir og
gjarnir á að stytta sér leið. Oft er
það svo að menn hugsa ekki málin
fyrr en jarðýturnar eru komnar af
stað. Gott dæmi um það er Land-
spítalinn. Staðsetningin á honum,
við Hringbraut, var ákveðin árið
1977 og þá hefði verið rétti tíminn
til að fara í umræðu. Svo var gert
deiliskipulag fyrir lóðina og hús-
in hönnuð og Hringbraut breytt
með mislægum gatnamótum, og
þá fyrst blossar upp umræða, en í
millitíðinni er búið að eyða mörg-
um milljörðum í staðsetninguna.
Þetta finnst mér vera lýsandi dæmi
um grunneðli skipulags en líka um
það hvað við getum verið óskipu-
lögð.“
Miðbærinn fyrir ofurríkt fólk
og hótel
Og hvernig líst skipulagsfræðingn-
um á þróun höfuðborgarinnar í dag?
„Unga fólkið vill gjarnar búa á
þéttum og lifandi svæðum, líkt og
gamli miðbærinn býður upp á. Það
hefur einnig sýnt sig að menntað
fólk vill ekki búa á einangruðum
svæðum þar sem lítið er um afþrey-
ingu. Hluti af hugmyndinni að þétt-
ingu byggðar var sú að hægt væri að
koma fyrir byggingamassa í gamla
bænum fyrir fólkið en það sem hef-
ur því miður gerst er að það hafa
verið byggð hótel og hús fyrir ríkt
fólk. Góð íbúð í gamla bænum er
orðin hörgulvara þannig að verðið
hefur rokið upp svo ungt fólk hefur
ekki efni á að búa þar. En ef okkur
tekst ekki að veita ungu fólki kost á
að búa í lífrænni gamalli borg, þeirri
einu á landinu, og ef eini valkostur-
inn eru úthverfi, þá er ég hræddur
um að þetta fólk flytji frekar til út-
landa.
Það hefði getað bjargað málun-
um að byggja gott hverfi fyrir 20.-
30.000 manns í Vatnsmýrinni en
það svæði hefur því miður orðið
að pólitísku skæklatogi og ég veit
ekki hvort eða hvenær mun leysast
úr því. En það væri drauma-stað-
setning fyrir unga fólkið. Það þyrftu
ekki að vera stórar íbúðir því fólk er
ekki að hlaða á sig jafn miklu dóti í
dag, fólk er farið að lifa léttari lífs-
stíl. En lóðirnar mættu ekki fara á
frjálsan markað því þá yrðu þær allt
of dýrar, líkt og gerðist við Skúla-
götuna.“
„Miðbærinn er mitt draumasvæði
og ég fer í bæinn á hverjum degi, lít
í bókabúð, hitti fólk og fæ mér eitt-
hvað að borða. Sjálfur bý ég í blokk
við Háaleitisbraut, því ég erfði þar
íbúð foreldra minna, en ég byggi í
miðbænum ef ég hefði efni á því.
Það er því miður bara fyrir ofurríkt
fólk.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Rennibraut á Arnarhóli:
Árið 1974 setti borgin í gang hugmyndasamkeppni að leiksvæðum og fékk Trausti fyrstu
verðlaun fyrir hugmynd sína að rennibraut á Arnarhóli.
Ég byggi í
miðbænum
ef ég hefði
efni á því.
Ljósmynd/Hari
Opið um helgina frá 10 - 18 | Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogur, sími 577 6000, garmin.is
vívoactive
Verð 46.900
vívofit 2
Verð 19.900
Hvort sem það er einfaldleik-
inn við vívofit 2 sem þarf ekki
að hlaða, snjallsímalausnir og
innbyggði púlsmælirinn í
vívosmart HR eða GPS mót -
takarinn og golfvellirnir í
vívoactive þá eiga heilsuúrin
frá Garmin það sameiginlegt
að hreyfa við þér.
Láttu Garmin hreyfa við þér,
þinn líkami á það skilið!
vívosmart HR
Verð 26.900
Heilsuúrin
sem hreyfa við þér!
34 viðtal Helgin 18.-20. desember 2015