Fréttatíminn - 18.12.2015, Qupperneq 62
Leitin að réttu gjöfinni
Val á réttu jólagjöfinni getur reynst þrautinni þyngra sérstaklega
ef gjöfin á að slá í gegn. Oftar en ekki er hægt að fá óskalista
frá þeim sem á að fá gjöfina en hann er ekki alltaf til staðar og
stundum veit fólk ekki sjálft hvað það vill í jólagjöf. Hinsvegar er
hægt að fylgja ákveðinni formúlu til að finna gjöf sem gleður.
Hún felst í því að hlusta, fylgjast með og leggja sig fram.
Jólasveinar í
Árbæjarsafni
Jólasveinar, þessir gömlu íslensku,
láta sjá sig á Jóladagskrá Árbæjar-
safnsins á sunnudaginn, 20. des-
ember, en dagskráin er frá klukkan
13 til 17. Klukkan 14 verður guðs-
þjónusta í safnkirkjunni. Prestur er
séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson
og organisti er Sigrún Steingríms-
dóttir. Klukkan 14.30 verða hugljúf-
ir jólatónleikar í safnkirkjunni með
Huga Jónssyni einsöngvara og Kára
Allanssyni organista.
Klukkan 15 hefst jólatrésskemmt-
un á torginu. Þar verða sungin jóla-
lög og dansað í kringum jólatréð,
við harmónikkuundirleik og kór-
söng.
Klukkan 14 til 16 verða gömlu
íslensku jólasveinarnir síðan á
vappi um safnsvæðið, hrekkjóttir
og stríðnir að vanda og taka þátt í
dansinum kringum jólatréð.
Síðustu
jólasveinarnir
koma í Þjóð-
minjasafnið
Íslensku jólasveinarnir heimsækja
Þjóðminjasafnið daglega klukkan
11 frá 12. desember en það hafa
þeir gert frá árinu 1988. Jólasvein-
arnir skemmta gestum með söng og
skemmtisögum með fróðlegu ívafi
og nokkrir eiga enn eftir að koma
en það eru: 17. desember Askas-
leikir, 18. desember Hurðaskellir,
19. desember Skyrgámur, 20. des-
ember Bjúgnakrækir, 21. desember
Gluggagægir, 22. desember Gátta-
þefur, 23. desember Ketkrókur
og 24. desember sá síðasti, Kerta-
sníkir.
Allir eru velkomnir en hópar eru
beðnir að bóka heimsóknir á jóla-
sveinadagskrá hjá kennsla@thjod-
minjasafn.is.
Hlustaðu Þetta er fyrsta og sennilega eitt mikilvægasta skrefið. Hlustaðu á þann
sem gjöfin er ætluð með því að taka eftir vísbendingum sem eru gefnar meðvitað
eða ómeðvitað um hvað það sem hann/hana langar í. Þetta þýðir að þú þarft að
beita athyglisgáfunni eftir bestu getu, og meira til, svo þú látir hvorki augljósar og
ekki svo augljósar vísbendingar framhjá þér fara. Hlustaðu vel eftir því sem hann/
hún stingur upp á að gefa öðrum, því þar geta leynst vísbendingar.
Fylgstu með Það er hægt að komast að því hvað gerir fólk ánægt með því einu að fylgjast
með því. Taktu eftir hvað viðkomandi er að skoða í verslunum, á netinu og í tímaritum og
blöðum. Það leynir sér oft ekki þegar fólk sér eitthvað sem því finnst spennandi eða vekur
áhuga þeirra, augun stækka og því lengur sem fólk er að skoða hlutinn því líklegra er að
þetta sé eitthvað sem það langar í.
Leggðu þig fram Gjöf sem
gleður er ekki endilega sú
sem kostar mikið, heldur
sú sem gefandinn lagði sig
allan fram við að finna eða
búa til. Gjöfin þarf ekki að
vera handgerður skúlp-
túr af hjarta viðkomandi
heldur er þetta spurning um
persónulegt handbragð. Til
dæmis með því að fá bókina
af óskalistanum áritaða af
höfundi, láta heimaprjónaða
ullarsokka fylgja með göngu-
skónum, eða finna einu
hljómplötuna sem vantar til
að fullkomna safnið.
Ómissandi
á jólunum
Sérvalin blanda af
bestu kaffiuppskerum
ársins.
kaffitar.is
62 jól Helgin 18.-20. desember 2015