Fréttatíminn


Fréttatíminn - 18.12.2015, Blaðsíða 102

Fréttatíminn - 18.12.2015, Blaðsíða 102
Stafrænn Hákon gaf út plötuna Eternal Horse í nóvember. Ljósmynd/Ómar Örn Smith  TónlisT sTafrænn Hákon gefur úT eTernal Horse Gamlir karlar með börn og vinnu Hljómsveitin Stafrænn Hákon hefur verið starfandi síðan 1999 og gefið frá sér níu plötur. Sú nýjasta, Eternal Horse, kom út í nóvember hjá ensku plötuútgáfunni Darla. Ólafur Josephsson, forsprakki og stofnandi sveitarinnar, segir margt hafa breyst og þróast á þessum 16 árum sem hann hefur gefið út efni undir nafninu Stafrænn Hákon. Eternal Horse er töluvert meira hljóm- sveitarverkefni en fyrri plötur. Þ etta er níunda platan og mér finnst þessi plata svona aðgengilegust af því sem ég hef verið að gera í gegnum tíðina,“ segir Ólafur Josephsson í Stafrænum Hákon. „Við gáfum út plötuna Sanitas árið 2010 sem var líka frekar aðgengileg og það er sami hóp- ur og er með mér á Eternal Horse. Ég gerði að vísu tvær plötur í millitíðinni þar sem ég var meira einn að leika mér, en var því alltaf með þessa plötu á kantinum. Þetta er stærra verk- efni. Það hefur tekið tíma að vinna að henni og við höfum tekið upp á löngu tímabili. Ég bjó í Danmörku og flutti heim árið 2010 og síðan hefur þetta band breyst í hljómsveit að vissu leyti,“ segir hann. „Áður var ég bara einn í þessu og það er kannski merki um einhvern þroska hjá mér,“ segir Ólafur en með honum í Stafrænum Há- kon eru þeir Árni Árnason bassaleikari, Lárus Sigurðsson gítarleikari, Róbert Már Runólfs- son trommuleikari og Magnús Freyr, gítar- leikari og söngvari. „Við erum ekki að spila mikið en við munum spila í Lucky Records 21. desember á vegum Mid-Atlantic þar sem við erum með umboðsmann þar,“ segir Ólafur. „Stefnan er svo að halda útgáfutónleika á næsta ári þegar vínyllinn kemur út, segir hann. „Platan er bara fáanleg á CD núna og kom út um alla Evrópu á vegum Darla Records, en það er búist við vínyl útgáfu í mars og þá gerum við eitthvað. Við höfum aldrei haldið útgáfutónleika. Það er svo stefnan að fara út um páskana og spila í Evrópu. Það er eitthvað sem ég hef alltaf gert og fyrir tíu árum síðan kom smá kippur í þetta hjá sveitinni, en síðan höfum við bara breyst í gamla karla með börn og vinnu og þetta eru svona okkar golf-ferðir í dag,“ segir Ólafur Josephsson, Stafrænn Há- kon. Eternal Horse fæst í öllum helstu hljóm- plötuverslunum. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Ég bjó í Danmörku og flutti heim árið 2010 og síðan hefur þetta band breyst í hljómsveit að vissu leyti. Ný bók eftir metsöluhöfundinn Þorgrím Þráinsson. Falleg og fyndin saga sem kemur sífellt á óvart. „… full af fallegum boðskap sem á erindi til allra.“ INGVELDUR GEIRSDÓTTIR / MORGUNBLAÐIÐ (UM ERTU GUÐ, AFI?) w w w.forlagid. i s | Bókabúð Forlags in s | F i sk i s lóð 39 102 menning Helgin 18.-20. desember 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.