Fréttatíminn - 08.01.2016, Blaðsíða 12
dagsgildum. Eins og svo víða ann-
ars staðar kom fjöldi verkafólks er-
lendis frá til Danmerkur eftir stríð
til þess að hjálpa við uppbygging-
una. Framan af fór vel á með að-
komumönnum og innfæddum en
það átti eftir að snúast alla leið yfir
á rönguna eftir að olíukreppan skall
á Danmörku af allnokkrum þunga
árið 1972. Þá fór raunar allt í bál og
brand í samskiptum Dana og inn-
flytjenda. Nokkur hópur flóttafólks
hafði einnig komið frá Miðaustur-
löndum, Norður-Afríku og af Balk-
anskaga sem innfæddir Danir fóru
smám saman að snúast gegn. Fyrst
um sinn var danska innflytjenda-
löggjöfin frjálslynd og aðkomufólk
fékk meira að segja nokkuð greiða
komu að ríkulegu velferðarkerfinu.
En svo syrti heldur betur í álinn.
Jarðskjálftakosningarar
Á svipuðum tíma og Jean Marie Le
Pen var að ræsa sína rasísku frönsku
Þjóðfylkingu árið 1972 skaust álíka
einkennilegur fugl fram á sjónar-
sviðið í dönskum stjórnmálum og
átti eftir að umturna öllu. Skatta-
lögfræðingurinn Mogens Glist-
rup óð um ljósvakann í andstöðu
við himinháa skattheimtu í Dan-
mörku – raunar þá hæstu í lýð-
frjálsum heimi. Hann taldi skattsvik
til mannréttinda og stofnaði utan
um sig stjórnmálaflokk til
höfuðs elítunni, danska
Framsóknarflokkinn
(Fremskritspar-
tiet). Svo mjög
nötraði pólitíkin
að þingkjörið
1973 var síðan
jafnan kallað
jarðskjálfta-
kosningarnar.
Flokkurinn
sem Glistrup
skilgreindi sem
anarkískan and-
stöðuflokk fólks-
ins hlaut sextán
prósent atkvæða.
Á sama tíma kom
fram álíka and-
stöðuhreyfing í Nor-
egi, sem síðar hlaut
sama nafn. Glistrup
hélt sig alla tíð á jaðri
stjórnmálanna og sótti
að kerfinu með stuðandi
ummælum. Smám saman bættist í
púkkið andstyggileg andstaða við
útlendinga, einkum þó múslímska
flóttamenn – eins og sjá má í ummæl-
unum sem vísað er til hér að framan.
Glistrup átti þó eftir að flækjast um
fortíðina þegar hann árið 1983 var
dæmdur í fangelsi fyrir skattsvik.
Fram úr skugga hans spratt þá sá
stjórnmálamaður sem átti eftir að
leggja undir sig dönsk stjórnmál svo
um munaði: Pia Kjærsgaard. Fram-
sóknarflokkurinn var andstöðu-
flokkur á jaðri stjórnmálanna og
þótti sem slíkur óboðlegur í siðaðri
stjórnmálaumræðu. Þó hafði Poul
Schluter forsætisráðherra í tvígang
neyðst til þess að semja við flokkinn
um framgang mála – Í Danmörku
voru þjóðernispopúlistar því ekki al-
farið útilokaðir frá samstarfi eins og
raunin var lengst af í Svíþjóð. En svo-
leiðis samstarf heyrði þó enn til und-
antekninga. Og því vildi Kjærsgaard
breyta.
Nei-drottningin þýtur fram
Kjærsgaard lagði áherslu á að færa
flokkinn inn af jaðrinum, án þess
þó að slá af strangri innflytjenda-
stefnunni. Flokkurinn var áfram
jafnt á móti sköttum og útlending-
um. Framganga hennar var þó öll
fágaðari en Glistrups. Hún fór fyrir
hófsemdarmönnum sem áttu eftir
að slíta sig frá harðlínumönnum
og stofna Danska þjóðarflokkinn
(Dansk folkeparti) árið 1995 eft-
ir samstuð fylkinganna á flokks-
þingi Framsóknarflokksins sama
ár. Danski þjóðarflokkurinn naut
strax frá upphafi hylli kjósenda en
almenn pólitísk viðurkenning var
ennþá langt undan. Þáverandi for-
sætisráðherra, Poul Nyrup Rasm-
ussen, sagði að þau yrðu aldrei
talin húsum hæf í dönskum stjórn-
málum. Það átti þó
Mogens Glistrup: Grundvallarbreyting varð á dönskum stjórnmálum þegar
Mogens Glistrup stökk fram á sjónarsviðið og óð á súðum í andstöðu við
skattheimtu í aðdraganda þingkosninganna 1973. Flokkur hans, Framsóknar-
flokkurinn (Fremskridtpartiet) hlaut nálega 16 prósent atkvæða í kosningun-
um sem síðar hafa verið kallaðar jarðskjálftakosningarnar í Danmörku. Auk
skattalækkunaráherslu varð málflutningur hans gegn innflytjendum stöðugt
harðari. Múslimum líkti hann eitt sinn við dropa af arseniki í tæru vatni Dana.
Árið 1983 var Glistrup dæmdur í fangelsi fyrir skattsvik.
1984
0
35
.0
00
70
.0
00
1985
1986
1987
1988
1989
1990
1991
1992
1993
1994
1995
1996
1997
1998
1999
2000
2001
2002
2003
2004
2005
2006
2008
2009
2010
2011
2012
2013
2014
2015
Flutningur erlendra
ríkisborgara til
Danmerkur
n Vesturlandabúar
n Ekki vesturlandabúar
eftir að breytast skjótar en nokk-
urn óraði. Nokkrir lykilatburðir
réðu því. Þjóðarflokkurinn var sá
eini á hægri vængnum í andstöðu
við innleiðingu evrunnar í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni árið 2000 þegar
danskur almenningur sendi meg-
instraumsöflunum tóninn og neit-
aði að taka upp hinn sameiginlega
evrópska gjaldmiðil. Sökum þess
og vegna andstöðunnar við Maast-
richt-sáttála ESB árið 1992 höfðu
fjölmiðlar uppnefnt Píu Kjærsga-
ard Nei-drottninguna í Danmörku
– titil sem hún bar af stolti. Næsti
atburður var enn frekar afgerandi.
Við árásirnar í Bandaríkjunum 11.
september 2001 þótti mörgum sem
Þjóðarflokkurinn hefði haft rétt
fyrir sér í andstöðu sinni við mús-
limavæðingu Danmerkur. Fyrir það
var flokknum ríkulega umbunað í
kosningum nokkrum vikum síðar.
Inn í valdamiðjuna
Þingkosningarnar 2001 mörkuðu
álíka þáttaskil og jarðskjálftakosn-
ingarnar 1973. Danski þjóðarflokk-
urinn hlaut tólf prósent atkvæða
og festi sig í sessi á meðal megin-
flokka landsins. Úti var um tilraunir
til þess að loka hann frá áhrifum og
borgaralegu flokkarnir undir for-
ystu Anders Fogh Rasmussen buðu
Kjærsgaard til liðs við stjórnarmeiri-
hlutann. Næsta áratuginn varð Þjóð-
arflokkurinn líkast til sá áhrifamesti
í landinu þótt hann tæki ekki sæti
í ríkisstjórn heldur verði hana falli
og styddi við fjárlög í skiptum fyr-
ir innleiðingu áhersluatriða sinna.
Flokkurinn var kominn af jaðrinum
og alla leið inn í sjálfa valdamiðj-
una. Innflytjendaumræðan hef-
Skopmyndateiknngar Jótlands-
póstsins: Aukin pólaríseríng á milli
innfæddra Dana og aðkominna mús-
lima kristallaðist í deilunni um Mú-
hameðsteikningar Jótlandspóstsins
árið 2005. Birting myndanna tólf var
vísvitandi ögrun í eldfimu ástandi og
svo urðu harkaleg viðbrögð fylgis-
manna íslam, bæði í Danmörku og
víða í Mið Austurlöndum til þess að
magna átökin enn frekar. Við það
óx fylgi Danska þjóðarflokksins enn
frekar.
Bæjarhraun 2 3 hæð www.listdansskoli.is S:894 0577
Skráning og allar nánari upplýsingar
eru á listdansskoli.is
LISTDANSSKÓLI
HAFNARFJARðAR
Spennandi dansnám
Fullorðnir
Skvísutímar
Tjútt í hádeginu
fyrir fullorðna NÝTT
Börn
Ballett
Barnadansar
Djassdans
Silki byrjendur
Silki
Hipp hopp
NÝTT
Skráning er hafin!
Glæsileg vorsýning í Borgarleikhúsinu
Dansbikarinn & Dansferð til Akureyrar
Unglingar
Ballett
Djassdans
Nútímadans
Showdans
Silki byrjendur NÝTT
NÝTT
Nútímadans
byrjendur 12 ára+
12 | fréttatíminn | Helgin 8. janúar-10. janúar 2015