Fréttatíminn - 08.01.2016, Blaðsíða 72
12 | fréttatíminn | Helgin 8. janúar-10. janúar 2016
„Ég er bara hress, ég var uppi
í Kringlu áðan,“ segir hin níræða
anna Stígsdóttir. anna vann við
skrifstofustörf fyrr
á árum.
„Ég fer tvo
daga í viku
á Múlabæ, á
þriðjudögum
og fimmtudögum.
Þar spilum við til dæmis og förum
í stólaleikfimi. Þá erum við bara að
gera æfingar, eins og gert er með
okkur gamla fólkið. Það eru voða
góðar stelpur sem eru með okkur.
Það koma oft til okkar skemmti-
kraftar eftir hádegið.
Mér finnst ofsalega gott að koma
í Múlabæ. Ég er búin að fara svo
lengi – í ellefu ár – að ég tími ekki
að hætta því. Ég gæti ekki hugsað
mér það.“
Ertu mikið á ferðinni?
„já, ég geng alltaf. Ég fer alltaf út. ef
það er hált þá set ég á mig brodda.
Ég hef alltaf hreyft mig mikið, ég
verð að gera það. Kannski er það
ofvirkni. Það var nú bara sagt þegar
ég var lítil að ég væri óþekk, þá
þekktist ekki þetta orð.“
anna kveðst lesa mikið. „Ég les
blöðin, ég les heilmikið. nú er ég að
lesa hann Árna bergmann og finnst
hann stórskemmtilegur. Þetta er
yndisleg bók sem mér finnst að allir
ættu að lesa.“
Hvað gerir þú til að slaka á?
„Ég geri það ekki. Ég kann ekki að
slaka á. en ég ligg stundum og les.“
Borðarðu hvað sem er eða hugs-
arðu um það sem þú lætur ofan
í þig?
„Ég borða bara hvað sem er. Við
fáum mat uppi á Múló. Það er ekki
alltaf gott en við látum okkur hafa
það. Það er allt í lagi. en ég drekk
aldrei kaffi. Ég hef aldrei kunnað
það.“
Hvað með áfengi og tóbak?
„Ég reykti þegar ég var ung, eins
og allir. Það eru nú orðin 24 eða
25 ár síðan ég drap í. Um leið og
ég gerði það þoldi ég ekki aðra
sem reyktu. Hvað áfengið varðar
þá skálar maður kannski í sérríi
við og við en ég hef aldrei getað
drukkið bjór.“
Hvernig er hefðbundinn morgun-
matur hjá þér?
„Ég fæ mér stundum jógúrt og svo
fæ mér alltaf hafragaraut hjá stelp-
unum. Mér finnst hann svo góður.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir
áður en þú ferð að sofa?
„Ég les bækur. Svo er ég með
blöðin. Ég er nú ekki mikill sjón-
varpsglápari. Ég horfi alltaf á fréttir
en annað þarf að vera eitthvað
alveg sérstakt.“
Hefurðu sett þér einhver markmið
varðandi heilsuna á nýju ári?
„nei, ég þarf ekki að gera það. Ég
verð bara eins og ég hef alltaf verið.
Ég vona bara að ég geti haldið
áfram að hreyfa mig.“
Heilsa
Hef aldrei kunnað
að drekka kaffi
Heilsuvenjur Önnu Stígsdóttur - 90 ára
ára
90
Anna Stígsdóttir segist
alltaf hafa hreyft sig
mikið, hún verði að gera
það. Það sé kannski
ofvirkni, en þegar hún var
lítil hafi bara verið sagt
að hún væri óþekk. Ljós-
Mynd/Rut Sigurðardóttir
Enginn
viðbættur sykur,
ekkert ger.VILTU
HRÖKKVA
Í GÍRINN?
Þeir sem hugsa um hollustuna velja BURGER hrökkbrauð. Í því er enginn
viðbættur sykur og ekkert ger. Það er líka einstaklega bragðgott!
Það er engin tilviljun að BURGER er vinsælasta hökkbrauðið á Íslandi.
HUGSAÐU UM
HOLLUSTUNA!
Þeir sem hugsa um hollustuna velja
BURGER hrökkbrauð. Í því er enginn
viðbættur sykur og ekkert ger. Það er
líka einstaklega bragðgott! Það er engin
tilviljun að BURGER er vinsælasta hrökk-
brauðið á Íslandi.
Enginn
viðbættur sykur,
ekkert ger.VILTU
HRÖKKVA
Í GÍRINN?
Þeir sem hugsa um hollustuna velja BURGER hrökkbrauð. Í því er enginn
viðbættur sykur og ekkert ger. Það er líka einstaklega bragðgott!
Það er engin tilviljun að BURGER er vinsælasta hökkbrauðið á Íslandi.
HUGSAÐU UM
HOLLUSTUNA!
Enginn
viðbættur sykur,
ekkert ger.VILTU
HRÖKKVA
Í GÍRINN?
Þeir sem hugsa um hollustuna velja BURGER hrökkbrauð. Í því er enginn
viðbættur sykur og ekkert ger. Það er líka einstaklega bragðgott!
Það er engin tilviljun að BURGER er vinsælasta hökkbrauðið á Íslandi.
HUGSAÐU UM
HOLLUSTUNA!
Enginn
viðbættur sykur,
ekkert ger.VILTU
HRÖKKVA
Í GÍ INN?
Þeir sem hugsa um hollustuna velja BURGER hrökkbrauð. Í því er enginn
viðbættur sykur og ekkert ger. Það er líka einstaklega bragðgott!
Það er engin tilviljun að BURGER er vinsælasta hökkbrauðið á Íslandi.
HUGSAÐU UM
HOLLUSTUNA!
Frettatiminn 2x20.indd 1 6.1.2016 15:49:11
Daði Jónsson læknir hefur hafið
störf með aðstöðu hjá Atlas endur
hæfingu í ÍSÍ húsinu við hliðina á
Laugardalshöllinni, Engjavegi 6.
Daði er sérfræðingur í endurhæfinga
lækningum og vinnur mikið með íþróttafólk.
Tímapantanir í síma 552 6600 og
afgredsla@atlasendurhaefing.is