Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 08.01.2016, Blaðsíða 40

Fréttatíminn - 08.01.2016, Blaðsíða 40
Í Brautarholti 4a er til húsa skóli ólíkur mörgum öðrum, Dáleiðslu- skóli Íslands. Þar fer fram kennsla í meðferðardáleiðslu. ingibergur Þorkelsson, skólastjóri Dáleiðslu- skólans, segir þá dáleiðslumeð- ferð sem kennd sé þar alls ólíka hinni svokölluðu sviðsdáleiðslu. Segir hann dáleiðslumeðferð hafa slæmt orð á sér vegna hennar og ýmissa bíómynda sem komi inn ranghugmyndum. „Mér finnst að meðferðardáleiðsla ætti að heita eitthvað annað, eins og t.d. huglæg endurforritun. Það myndi ekki vekja upp þessi hörðu viðbrögð og er rétt lýsing á nýjustu og öflugustu aðferð- unum,“ segir ingibergur. Undirvitundin veit hver orsökin er „Maðurinn er öðruvísi en flest önnur dýr að því leyti að þau fæðast nokkurn veginn full forrituð. Þannig stendur folald fljótlega á fætur og er farið að hlaupa stuttu síðar. Börn fæðast í raun óforrituð að mestu leyti sem þýðir að þau geti lært hvað sem er og aðlagast kringumstæðum þar sem þau koma í heiminn. Vísindamaðurinn David Eagleman hefur skrifað fróðlegar bækur um heilann og hugann, nú síðast „Brain“. heilinn er þannig að börn fæðast með tvöfalt fleiri tengingar á milli heilafrumna en fullorðnir hafa. Ef valið er að nota tengingarnar þá er verið að virkja þær, annars fölna þær og deyja. Svipað og með stíginn í skóginum sem hverfur og vex yfir ef enginn notar hann,“ segir ingi- bergur. Segir hann forritunina fara þann- ig fram að þegar maðurinn lærir eitthvað þá verður til eitthvað nýtt í huganum, nýr þáttur. „Þegar þú lærir að binda skóreimar, þá ertu búinn að búa til þátt í huganum sem verður þar og þú þarft ekki að hugsa um hvernig eigi að binda skóreimar framar. Þetta er svo sjálf- virk athöfn að erfitt getur verið að útskýra fyrir öðrum hvernig þú reimar. Svona erum við samansafn af fjölmörgum þáttum – þúsundum þátta – sem allir sjá um eitthvað ákveðið.“ ingibergur segir þetta vera ágætis kerfi en það geta komið upp vandamál. „Þegar við þroskumst og breytumst hentar ekki lengur hvernig sumir þættir eru forritaðir. Þá kemur dáleiðslumeðferð til skjal- anna og hún getur leyst þessi vanda- mál. Það er, undirvitundin getur leyst vandamálið með því að finna og leysa orsökina.“ Í námskeiðinu sem Dáleiðsluskólinn býður upp á er farið í þróaðar aðferðir sem ingi- bergur segir að séu að sumu leyti nýlegar og ofboðslega kröftugar. Þar er unnið með innri vitund, en Dr. Edwin Yager hefur þróað þá með- ferð hana í um 30 ár. „hún byggir á því að endurforrita þætti hugans,“ segir ingibergur. hann segir að hægt sé að ímynda sér að heilinn sé tölva og hugurinn sé forritin sem vinna á tölvunni. Þetta sé þó einföldun vegna þess að auðvitað starfi heilinn með alls kyns boðefnum og tengingum í allar Hafnarfjörður Sjúkraþjálfarinn | Strandgötu 75 Sími 693 9770 | afgreidsla@sjukrathjalfarinn.is Reykjavík Sjúkraþjálfun Reykjavíkur | Seljavegi 2 Sími 898 9638 | thorgeir@srg.is Akureyri Efling sjúkraþjálfun | Hafnarstræti 97 Sími 861 3252 | efling@eflingehf.is Öflug námskeið með áherslu á fræðslu og sértækar æfingar, haldið af reyndum sjúkraþjálfurum á þremur stöðum á landinu. Námskeiðin hafa fengið frábærar viðtökur og hefjast næstu námskeið 25./26. janúar. Hámark 12 í hverjum hópi. Kennt er tvisvar sinnum í viku. Tveggja vikna námskeið : Fræðsla og kennsla æfinga kr. 20.000 Átta vikna námskeið: Að auki; mælingar, sex vikna sértæk þjálfun og eftirfylgni kr. 45.000 www.slitgigt.is Slitgigtarskólinn Huglæg endurforritun Ingibergur Þorkelsson, skólastjóri Dáleiðslu- skóla Íslands, býður upp á námskeið í með- ferðardáleiðslu þar sem einn kennara verður Roy Hunter, höfundur bókarinnar Listin að dáleiða. Unnið í samstarfi við Dáleiðsluskóla Íslands Ingibergur Þorkelsson, skólastjóri Dáleiðsluskóla Íslands, verður með námskeið í meðferðardá- leiðslu sem byrjar í febrúar. Ljósmynd/Hari áttir en að þetta sé þægileg nálgun til að gera sér grein fyrir hvað verið er að gera. hann segir frá hvernig dáleiðandinn vinnur með skjólstæð- inginn. „Dáleiðandinn sest þá niður með skjólstæðingi og ræðir vanda- málið. oftast er þetta eitthvað sem skjólstæðinginn langar að gera, t.d. að tala opinberlega, en getur ekki, hann finnur fyrir fyrirstöðu. Dáleiðarinn getur náð sambandi við undirvitundina og fengið hana til að breyta því sem er að trufla einstak- linginn.“ hann segir því meðferðardáleiðslu geta unnið bug á ýmsum meinum sem trufla okkur í daglegu lífi, eytt vanda og aukið hæfileika í íþróttum og á ýmsum sviðum. Námskeið í meðferðardáleiðslu Þann 5. febrúar byrjar 22 daga nám- skeið í meðferðardáleiðslu. Það er í 2 hlutum, fyrst er það grunnnám- skeið í 10 daga og síðan framhalds- námskeið í 12 daga í apríl og maí. Strax á fyrsta degi skiptast nem- endur á að hlusta á kynningar og fyrirlestra svo og að gera æfingar. „Nemendur byrja strax á að æfa sig að dáleiða hvert annað og gera það oft á dag út námskeiðið,“ segir ingibergur. Níu kennarar skipta námskeiðinu á milli sín, þar á meðal er hjúkrunarfræðingur og læknir, svo og roy hunter sem er höfundur bókarinnar listin að dáleiða. Enn er opið fyrir skráningar og fara þær fram á www.daleidsla.is 40 | fréttatíminn | hElgiN 8. jaNúar-10. jaNúar 2016 auglýsingardeild fréttatímans S. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.isKynningar | Námskeið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.