Fréttatíminn - 08.01.2016, Blaðsíða 43
Hildur Elín Vignir, fram-
kvæmdastjóri IÐUNNAR,
segir fræðslusetrið bjóða upp
á 300 - 350 námskeið á ári.
Á síðasta starfsári nýttu um
3.300 manns sér þjónustuna.
Ljósmynd/Rut
„Var mjög ánægð með námskeiðið í heild sinni.
Góðir fyrirlestrar og umræður voru um fjármál og
það sem helst breytist við starfslok og taka lífeyris
hefst. Fjármálin voru skoðuð vel og þar kom ýmis-
legt á óvart sem ég vissi ekki áður, t.d. hvað tekjur
minnka mikið við töku lífeyris og hvaða tekjur hafa
áhrif á greiðslur lífeyris frá Tryggingastofnun. Einn-
ig voru á námskeiðinu góðir fyrirlestrar og umræð-
ur um heilsu, mataræði og hreyfingu. Mæli hiklaust
með þessu námskeiði og ættu sem flestir að sækja
það og helst strax um sextugs aldurinn.“
Anna Helgadóttir
„Mér fannst þetta námskeið mjög gagnlegt og fræð-
andi. Vel upp sett og skipulagt .
Það er mjög gott að fá svona fræðslu og upplýsing-
ar um það hvernig maður á að fara að og hvert á að
leita þegar að því kemur að fá greiddan út lífeyrinn
og séreignasparnaðinn.
Ég mæli eindregið með því að fara á svona nám-
skeið fyrir alla sem eru komnir á eftirlaunaaldurinn.
Það er gott að kynna sér þetta vel og tímanlega.
Það er svo margt sem þarf að athuga.“
Ari Jónsson
Umsagnir um námskeiðið
Nýtt líf eftir starfslok
símenntun á mjög breiðu sviði,
hefur umsjón með raunfærnimati
í ýmsum löggiltum iðngreinum,
umsjón með sveinsprófum og
nemaleyfum og býður upp á náms-
og starfsráðgjöf. IÐAN sinnir einn-
ig námssamningum og ýmislegri
verkefnavinnu á innlendum sem
og erlendum vettvangi. Fyrir stuttu
hlaut IÐAN fræðslusetur gæða-
viðurkenningu menntaáætlunar
Evrópusambandsins fyrir verkefnið
Íslenskir iðnnemar í vinnustaðanámi
í Evrópu.
10 ára afmæli IÐUNNAR
IÐAN heldur upp á 10 ára starfsaf-
mæli í ár og verður tímamótanna
minnst með margvíslegum hætti.
Boðið verður upp á spennandi
námskeið fyrir almenning þar sem
sérþekking kennara IÐUNNAR
kemur að góðum notum. Nám-
skeiðin verða haldin mánaðarlega
og fer það fyrsta af stað í febrúar
undir yfirskriftinni Hvað er Twitter
og Snapchat. Af öðrum nám-
skeiðum má nefna: Hvernig nýta á
Ipad, Gotterí í garðinum sem er í
umsjá Guðríðar Helgadóttur, Léttar
reiðhjólaviðgerðir og Ert þú að huga
að fasteignakaupum. Ljóst er að
af mörgu er að taka og spennandi
tímar fram undan.
Hildur Elín Vignir, framkvæmda-
stjóri IÐUNNAR, segir fræðslu-
setrið bjóða upp á 300 - 350 nám-
skeið á ári. Á síðasta starfsári nýttu
um 3300 manns sér þjónustuna.
„Aldrei hefur verið meira framboð
af námskeiðum en á vorönn 2016
sem nú er að hefjast. Lögð hefur
verið sérstök áhersla á að ná til
sem flestra um land allt, m.a. með
því að efla fjarnám. Einnig er nú í
fyrsta skipti boðið upp á örnám-
skeið í upplýsingatækni sem verða í
formi stuttra, hnitmiðaðra kennslu-
myndskeiða.“
IÐAN fræðslusetur mun standa
fyrir sérstakri fræðsluviku í iðnaði
á Akureyri 22.-26. febrúar næst-
komandi. Þar verður í boði fjöl-
breytt úrval af námskeiðum auk
þess sem fyrirtæki á svæðinu verða
sótt heim.
Mikið er um að vera hjá IÐUNNI
þessa dagana að sögn Hildar og
í nógu að snúast. „Við munum
halda upp á Dag íslensks prent-
iðnaðar þann 5. febrúar og bjóða
upp á fjölda fyrirlestra og hin ýmsu
örnámskeið. Er það í annað skiptið
sem við stöndum fyrir þeim við-
burði. Þann 4. maí munum við svo
halda veglega afmælisráðstefnu, þar
sem það er hinn eiginlega afmælis-
dagur IÐUNNAR,“ segir Hildur.
Námskeiðið Nýtt líf eftir starfslok
í umsjón Sigþrúðar Guðmunds-
dóttur, markþjálfa og ráðgjafa, er
ágætt dæmi um þann fjölbreytileika
sem einkennir námskeiðsframboð
IÐUNNAR. Námskeiðið hefur verið
vel sótt og mun IÐAN því endur-
taka leikinn í vor. Á námskeiðinu
er fjallað um helstu breytingar sem
fólk þarf að búa sig undir til að
njóta tímabilsins eftir að það lýkur
störfum. Fjallað verður um lífeyris-
mál, réttindi hjá TR, eignastýringu
og sparnað, endurskipulagningu
fjármála, áhrif hreyfingar og nær-
ingar á heilsufar, tómstundir áhuga-
mál og félagslíf.
Skráningar á námskeið fara fram
á vef IÐUNNAR www.idan.is
| 43fréttatíminn | HELGIN 8. JANúAR-10. JANúAR 2016
Fræðsla og þjónusta
fyrir námsmenn
Það þarf ekkert að sannfæra námsmenn um
mikilvægi þekkingar. Kíktu á vefinn okkar og
búðu þig undir spennandi framtíð.
arionbanki.is/namsmenn
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
5
-2
3
5
0
Vertu skre
fi
á undan
auglýsingardeild fréttatímans
S. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.isKynningar | Námskeið
ára
ára
ára
á a